Leita í fréttum mbl.is

Gróusögur og mannorðsmorð

Það er ekki tilviljun að DV skuli hamast að  Guðlaugi Þór Þórðarsyni alþingismanni nokkrum dögum fyrir prófkjör.  Svo nátengt er blaðið forustu Vinstri grænna að það vill að losna við þann þingmann eða skaða, sem hefur verið óþreytandi  að spyrja Steingrím J. Sigfússon óþægilegra spurninga á kjörtímabilinu og sýna fram á hvílík mistök Steingrímur hefur gert aftur og aftur í ráðherratíð sinni einkum varðandi afskipti sín af fjármálastofnunum.

Af hverju fjallar DV ekki um þau mál sem Guðlaugur Þór hefur vakið sérstaka athygli á?  Er það vegna þess að það var óþægilegt fyrir sérstakan vin blaðsins Steingrím J. Sigfússon

DV hefur ítrekað sótt að forustumönnum Sjálfstæðisflokksins sérstaklega formanni flokksins og Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Ítrekaður fréttaflutningur af meintum ávirðingum er án sannana eða nauðsynlegs samhengis.

Svarið við því þegar ráðist er að forustumönnum Sjálfstæðisflokksins að ástæðulausu af andstæðingum flokksins eins og DV gerir nú gagnvart Guðlaugi Þór er að tryggja þeim öflugan stuðning.

Það er ekki versti gróðurinn sem rotturnar helst vilja naga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Lestu DV virkilega Jón? Ég viðurkenni að ég les það stundum ef ég rekst á það frítt og finni til illgirni í garð einhvers sem er til umfjöllunar. En í því stendur yfirleitt fátt nema sem flokkast til rökræðna eða málefnaumfjöllunar.

Halldór Jónsson, 23.11.2012 kl. 13:10

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já Jón Magnússon, þakka þér fyrir stuðninginn við manninn sem nennir að segja og gera.  Rétt er það og að rottur eru það, en þær verða langtenntar þá þær bíta alltaf í tómt og svo hamingjusamlegt sem það er okkur, þá getur það riðið þeim að fullu.

   

Hrólfur Þ Hraundal, 23.11.2012 kl. 23:11

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já Jón Magnússon, þakka þér fyrir stuðninginn við manninn sem nennir að segja og gera.  

Rétt er það og að rottur eru það, en þær verða langtenntar þá þær bíta alltaf í tómt og svo hamingjusamlegt sem það er þá getur það riðið þeim að fullu.

   

Hrólfur Þ Hraundal, 23.11.2012 kl. 23:20

4 identicon

Sæll Jón, það er ein stór ástæða fyrir því að bæði VG og Gunnar Anderssen eru að reyna að steypa Guðlaugi af þingi. Byr -málið er örugglega stærsti parturinn af þeirri ástæðu. Spurningin er hvort að Byr og flest allir hinir sparisjóðirnir hafi nokkuð verið gjaldþrota yfir höfuð. t.d í tilfelli Byrs þá er 71 milljarður tap vegna áætlaðar afskriftaþarfar, en það er ekki endanlegt tap eins og fjölmiðlar eru búnir að láta það líta út, auk þess þá er 7,6 milljarða tap vegna virðisrýrnanna á inneignum inni hjá öðrum lánastofnunum, svo við yfirfærslu eigna frá byr sparis yfir í byr hf þá myndaðist 36,6 milljarða jákvæður gjaldeyrissjöfnuður sem að var skrúfaður niður í 1,4 milljarð vegna gengislána, (þetta var samt erlendur peningur hversu heimskir þurfa menn hjá FME að vera til að sjá þetta ekki) það var aldrei gert grein fyrir niðurfærslunni í bókhaldi hvað tölurnar varða 35,2 milljarðar hverfa ekki bara, það var búið að setja 71 milljarð í afskriftir áður en jákvæði gjaldeyrisjöfnuðurinn kom inní myndina svo hvar er peningafærslan það er ekki hægt að hafa kredit og sleppa debet er það þetta var kennt í bókfærslu í 10 bekk grunnskóla.

Það er líka undarlegt að Basel 2 hafi ekkert komið upp á yfirborðið og mér finnst að þeir þingmenn og embætismenn meigi nú athuga sinn gang, sérstaklega í ljósi þess að sparisjóðirnir féllu útaf regluverki sem að má ekki ræða um. 

Það voru búnir að nást samningar við kröfuhafa Byrs sparsjóðs á sínum tíma, en Steingrími tókst að eyðileggja þá með því að fara að bjóða erlendum kröfuhöfum Byrs upp á víkjandi skuldabréf og ríkisskuldabréf sem að eru ekki einu sinni innan áhættugruns Byrs(Tier 2) innan Tier 2 þar er fjallað um breytileg skuldabréf og víkjandi lán. Steingrímur J ætti að segja af sér.

valli (IP-tala skráð) 24.11.2012 kl. 16:37

5 Smámynd: Jón Magnússon

Nei Halldór ég les ekki DV örðuvísi en á netmiðlinum eins og í þessu tilviki.

Jón Magnússon, 25.11.2012 kl. 11:05

6 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir þitt innlegg Hrólfur.

Jón Magnússon, 25.11.2012 kl. 11:05

7 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir gott innlegg Valli. Ég hef engu við það að bæta.

Jón Magnússon, 25.11.2012 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 36
  • Sl. sólarhring: 60
  • Sl. viku: 1697
  • Frá upphafi: 2291587

Annað

  • Innlit í dag: 33
  • Innlit sl. viku: 1523
  • Gestir í dag: 30
  • IP-tölur í dag: 30

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband