Leita í fréttum mbl.is

Steingrímur J. kostar margfalt meira en Icesave

Steingrímur  J. Sigfússon hefur kostað þjóðina margfalt meira en Icesave.

Nefna má má dæmi sem eitt og sér kostar þjóðina meira en Icesave, en það er meðferð Steingríms J á málum Sparisjóðs Keflavíkur.

Sparisjóður Keflavíkur átti rúma 5 milljarða í eigið fé samkvæmt ársreikningi sem kom út í apríl 2009 þar sem tekið hafði verið tillit til Hrunsins. Eiginfjárhlutfallið var undir lögbundnu lágmarki og því fékk Sparisjóður Keflavíkur undanþágu til að lagfæra eiginfjárhlutfallið. Sparisjóðurinn starfaði síðan á undanþágu í eitt ár með stórtapi.

Í apríl 2010 stofnaði Seingrímur J. nýjan sparisjóð SpKef, sem var að öllu leyti í eigu ríkisins. Fjármálaráðherrann Steingrímur J var eini stofnfjáreigandinn og fór með öllu völd. Eignir sem færðar voru í þetta nýja fjármálafyrirtæki Steingríms J. áttu að vera umfram skuldir.

SpKef sparisjóður Steingríms J starfaði í 11 mánuði án þess að uppfylla kröfur um lögbundið eiginfjárhlutfall, en slíkt er augljóst lagabrot.  SpKef tapaði stórfé á þessu tæpa ári sem Steingrímur J rak sparisjóðinn.

Kostnaður ríkisins vegna SpKef var rúmir 25 milljarðar en þá er eftir að telja nokkra kostnaðarliði.

Með því að reka Sparisjóð Keflavíkur og SpKef í 2 ár olli Steingrímur J ríkissjóði tjóni sem nemur að lágmarki 25 milljarða króna. Auk þess varð þetta brölt Steingríms J til mismuna samkeppnisaðilum á fjármálamarkaðinum.

Er ekki kominn tími til að stjórnarandstaðan leggi fram vantrausttillögu á þennan ráðherra. Þetta er bara eitt dæmi sem sýnir að Steingrímur er okkur dýrari en Icesave. Þrátt fyrir að þjóðinni hafi tekist að koma í veg fyrir að hann velti yfir á þjóðina hundruðum milljarða skuldbindingum vegna Icesave sem þjóðin bar aldrei ábyrgð á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þjóðin hefur sýnt Steinrími of mikla þolinmæði.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 29.1.2013 kl. 20:09

2 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þarna ert þú að hafa Steingrím fyrir rangri sök. Ástæðan fyrir því að bókhaldlegt virði Sparisjóðs Keflavíkur lækkaði um þessa upphæð var ekki sú að einhver rýrnun hafi orðið á verðmæti hans heldur voru eignirnar einfalelega ofmetnar í upphafi. Þetta tap var því til komið vegna endurmats á virði eignanna. Eigið fé sparisjóðsins var því neikvætt um þessa 25 milljarða þegar Steingrímur tók við honum. Þessa milljarða hefði ríkið alltaf þurft að greiða vegna ákvæða neyðarlaganna um tryggingu á innistæðum.

Sökin á þessu tapi ríkisins liggur alfarið hjá stjórnarmönnum í Sparísjóði Keflavíkur sem ollu því með mikilli óstjórn með peninga hans og að virðist jafnvel glæpsamlegri hegðan. Allavega hafa menn skoðað það að kæra þá. Þessir menn eru hátt settir í Sjálfstæðisflokknum sem er sá flokkur sem hefur valdið okkur Íslendingum meira tjóni en allir aðrir stjórnmálaflokkar til samans.

Það er ekki stórmannlegt hjá þér að reyna að klína þessu klúðri samflokksmanmna þinna á Steingrím.

Sigurður M Grétarsson, 29.1.2013 kl. 20:45

3 identicon

Sæll Jón,

Þetta er góð og rétt færsla hjá þér en þú minnist ekkert á það að Steingrímur J tók SpKef í tveim hlutum á okkur skattborgarana. Fyrst henti hann ca 20 mKr. þar inn úr ríkissjóði, svo henti hann SpKef inn í Landsbankann og lét hann borga um 10 mKr fyrir að yfirtaka hann. Þar sem íslenskir skattgreiðendur eiga ca 83% í Landsbankanum, þurftu þeir að bæta við um 8,3 mKr, svo alls nær 30 mKr. Steingrímur talar aldrei um hlut Landsbankans í þessu dæmi endar smámunir að hans "viti".

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 29.1.2013 kl. 22:43

4 Smámynd: Jón Magnússon

Skrýtið Heimir að það skuli ekki vera komin fram vantrausttillaga á hann á Alþingi.

Jón Magnússon, 29.1.2013 kl. 23:46

5 Smámynd: Jón Magnússon

Nei Sigurður ég er ekki að hafa Steingrím fyrir rangri sök. Ég geri hlut hans raunar betri en raunin er sbr. athugasemd Arnar Johnson hér fyrir neðan.  Þetta kúður skrifast algjörlega á Steingrím sem stóð fyrir því að Gunnar Andersen í FME veitti undanþágu til að Sparisjóður Keflavíkur héldi áfram starfsemi og síðan aftur og tók sparisjóðinn síðan sjálfur yfir og á þeim tíma sem hann var eini hluthafinn var SpKef rekinn lóðbeint til andskotans með Steingrím sem stafnbúa.

Jón Magnússon, 29.1.2013 kl. 23:48

6 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Örn þetta er alveg rétt hjá þér.

Jón Magnússon, 29.1.2013 kl. 23:48

7 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það hefur enga þýðingu að agnúast út í Jóhönnu, Hrannar og Jóhann stýra hennar talanda. Hún skilur ekki vantrauststillögu á eigin stjórn.

Steingrímur sem kallar menn öllum illum nöfnum á þingi auk þess að leggja hendur á ráðherra, hafnar starfi fjármálastjórastöðu Grikklands ( ;) ) og notar hvert tækifæri fyrir framan myndavélar og hljóðnema að tíunda "afrek" sín skilur að líkindum alvöru málsins.

Hann á að hafa döngun í sér til að biðjast lausnar.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.1.2013 kl. 08:35

8 Smámynd: Ívar Pálsson

Rétt, Jón, kannski að þú bætir Sjóvá á listann. Framkvæmd þessara þjóðnýtinga skulda er með ólíkindum.

Ívar Pálsson, 30.1.2013 kl. 12:54

9 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Það er nú ansoi langt seilst í ómaklegum ásökunum á Steibngrím að kenna honum um gjaldþrot Sparisjóðs Keflavíkur. Sú sök er alferið á hendi fyrrum stjórnarmanna sprísjósins og þar með talið allt tap ríkisins. Sparisjóðurinn var þegar farinn "lóðbeint til andskotans" fyrir þeirra tilstilli áður en Steingrímur tók við honum og lágnarkaði tjónið. Eins og ég sagði í fyrri athugasemd minni er eina ástæðan fyrir lækkuðu verðmæti eigna í bókhaldi sú að þær voru ofmetnar í upphafi og verðmæti þeirra því leiðrétt. Þar var það sama uppi á teningnum og varðandi mat á eignum peningamarkaðssóða bankanna. Endurskoðunarfyrirtæin sem voru fengin til að verðmeta eignirnar ofmátur þær stórlega.

Það er þannig að þegar illa fer fyrir fyrirtækjum þá verður oft meira tjón með því að láta þau fara í þrot heldur en að halda rekstri áfram þangað til búið er að endurskipuleggja reksturinn. Það var það sem Steigrímur gerði með heimild frá FME og þannig varð tapið af klúðri stjórnarmanna sparisóðsins minna en það hefði ella orðið.

Því er allt það tjón sem ríkissjóður varð fyrir vegna Sparisjóðs Kveflavíkur sjök þeirra stjórnarmanna sem settu hann í þrot með forkastanlegum og jafnvel glæpsamlegum meðförum á fjármunum hans.

Þessir menn eru í sama flokki og þú og því jafnvel kunningjar þínir og því eðlilegt að þú viljir bera af þeim blak. En að klína þeirra sök yfir á annan mann sem enga sök ber í málinu er lítilmannlegt. Getum við ekki lyft pólitískri umræðu á örlítið hærra plan en það?

Sigurður M Grétarsson, 30.1.2013 kl. 14:35

10 Smámynd: Jón Magnússon

Sennilega er það rétt að Jóhanna skilur þetta ekki. Hún hélt meira að segja blaðamannafund um dóm EFTA dómstólsins án þess að hafa lesið hann eða vita hvað hún var að tala um.  Erlendir fréttamenn voru eðlilega hissa á því að forsætisráðherra skyldi leyfa sér að halda blaðamannafund svona gjörsamlega úti á þekju. Íslensku fréttamennirnir urðu ekki hissa en á því eru eðlilegar skýringar.

Jón Magnússon, 30.1.2013 kl. 23:30

11 Smámynd: Jón Magnússon

Já Ívar ég gerði það í pistlinum sem ég var að setja inn.

Jón Magnússon, 30.1.2013 kl. 23:30

12 Smámynd: Jón Magnússon

Sigurður vandamál Sparisjóðsins í Keflavík urðu til eftir að hann fékk sérstakt leyfi til að starfa áfram á undanþágu frá FME og síðan ennþá frekar þegar Steingrímur J. var orðinn eini hluthafinn í Sp/Kef.  Hann ber alla ábyrgð á því að svona fór hvort sem einhverjum líkar betur eða verr. Það þarf ekkert að flokksgera það. Steingrímur J. stóð í brúnni og stýrði þessu ferli allan tímann síðast sem eini hluthafinn í sparisjóðnum.

Jón Magnússon, 30.1.2013 kl. 23:32

13 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Já Ívar. Tökum Sjóvá fyrir. Þar stóðu stjórnvöld frammi fyrir tveimur kostum. Annað hvort að ríkissjóður hlypi undir bagga með þeim kostnaði sem því fyldi eða að láta það fara í þrot. Það að Sjóvá hefði farið í þrot hefði haft tvær slæmar afleiðingar. Annars vegar hefðu margir sem orðið höfðu fyrir tjóni sem var bótaskyld hjá Sjóvá ogðið fyrir því að fá tjón sitt ekki bætt allavega ekki að fullu þar með talið fólk sem átti kröfur vegna alverlegs líkamstjónr upp á jafnvel tugi milljarða. Hins vegar var það mat manna að það leiddi til þess að endurtryggingarjálag íslenskra tryggingafélaga hækkaði mikið sem leiddi af sér hækkuð tryggingariðgjöld hjá almenningi í talverðan tíma. Það var einfaldlega mat stjórnvalda að það væri skátti kostur að bjarga Sjóvá. Þetta var því ekki klúður stórnfalda á þeim tíma.

Sá kostnaður sem skattgreiðendur lenntu í vegna Sjóvá var sök þeirra sem keyrðu það fyrirtæki í þrot og settu tryggingasjóð þess í áhættufjárfestingar sem töpðust sem er lögbrot því það er ólölgegt að setja tryggingasjóð tryggigafélags í áhættufjárfestingar. Hvað stjórnvöld varðar þá liggur sökin í því máli hjá þeim stjórnvöldum sem létu þessa menn komast upp með að setja tryggingasjóðin í áhættufjárfestingar. Það hefði FME átt að stoppa en gerði ekki enda unnu stjórnvöld á þeim tíma leint og ljóst gegn því að það gæti sinnt hlutverki sínu enda ekki í anda frjálshyggjustefnu þeirra að vera með slíkt eftirlit.

Það var fyrst og fremst sá gjörningur sem Bjarni Benediktsson skrifaði undir í umboði föður síns og frænda sem olli því að tryggingasjóður Sjóvá tapaðist. Það eru þeir sem eiga sökina á því tjóni sem varð vegna gjaldþrots Sóvár.

Sigurður M Grétarsson, 31.1.2013 kl. 10:55

14 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þvílík þvæla hjá þér Jón. Sparisjóður Keflavíkur var þegar kominn í þrot þegar Steingrímur tók við honum. Eina ástæðan fyrir breyttu eiginfjárhlutfalli í bókhaldi var sú að eignir hans voru ofmetnar þegar hann tók við honum og því þurfti að leiðrétta þær.

Enn og aftur. Það voru fyrrum stjórnarmenn í Sparisjóði Keflavíkur sem eiga alla sökina á tapi ríkisins.Steingrímur tók við þrotabúi og skilaði af sér þrotabúi. Með því að láta sparisjóðinn hætta rekstri hefðí tjónið orðið mun meira. Hann hélt honum því í rekstri þangað til hægt var að koma honum yfir á aðila sem gat tekið við honum án þess að ríkissjóður þyrfti að leggja honum til meira fé umfram neikvæða eiginfjárstöðu til að koma honum í lágmarks eiginfjárstöðu sem krafist er samkvæmt lögum.

Steingrímur kom því í veg fyrir að tapið vegna fjárglæfra fyrrum stjórnarmanna yrði enn meira en það varð.

Sigurður M Grétarsson, 31.1.2013 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 597
  • Sl. sólarhring: 628
  • Sl. viku: 2983
  • Frá upphafi: 2294534

Annað

  • Innlit í dag: 554
  • Innlit sl. viku: 2721
  • Gestir í dag: 525
  • IP-tölur í dag: 508

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband