Leita í fréttum mbl.is

Dýr mundi Steingrímur allur

Nú liggur fyrir að ákvarðanir Steingríms J. Sigfússonar varðandi sparisjóðinn í Keflavík mun kosta skattgreiðendur 25 milljarða króna.  Tap af aðgerðum Steingríms vegna Sjóvá-Almennar tryggingar kostar 4 milljarða og Byr-ákvarðanir Steingríms kosta a.m.k.  100 milljónir. 

Þessu til viðbótar fengu VBS, Saga Capital og Askar Capital  52 milljarða frá Steingrími þegar hann lánaði þessum félögum þá fjárhæð.  Í ákvörðun eftirlitsstofnunar EFTA kemur fram hvað VBS og Saga Capital mátu þennan ríkisstuðning til margra milljarða þannig að það þarf enginn að velkjast í vafa um það.

Beint tap ríkisins vegna Steingríms er hátt í 80 milljarðar króna. 

Þá er ótalið mögulegt tjón vegna gengisákvæða í uppgjörssamningum Landsbankans. Undirverðlagning við sölu bankanna til kröfuhafa (vogunarsjóða). 

Sem betur fer tókst Steingrími ekki að koma 500 milljarða Icesave kröfunni til viðbótar á þjóðina eins og hann lagði til eftir sumarsamninga flokksbróður hans Svavars Gestssonar, sem sá enga ástæðu til að gæta hagsmuna íslensku þjóðarinnar af því að það var komið sumar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hefur altaf verið mín skoðumn að það styttist í Landsdóm Steingríms.

Enda á hann og Ríkisstjórnarmeðlimir Jóhönnu sem voru í hrunastjórninni og settust í dómarasætið gegn samáðherrum sínum sem ekki voru samflokka, ekkert annað skilið.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 31.1.2013 kl. 00:40

2 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Af hverju heldur þú enn áfram að ljúga sökum upp á Steingrím. Eins og ég hef skýrt vel út í síðasta pistli þínum þá á hann enga sök á tapi vegna Sparisjóðs Keflavíkur. Það voru fyrrum stjórnarmenn hans sem voru þegar búnir að reka hann í þrot með forkastenlegri og sennilega glæpsamlgri meðferð fjár. Þeir eru hátt settir í Sjálfstæðisflokknum svo því sé haldð til haga.

Hvað Sjóvá varðar þá var það líka sett í þrot af fjárglæframönnum sem einnig tengjat Sjálfstæðifslokknum. Þeir voru þar að auki búnir að tapa bótasóði þess með því að leggja hann undir í áhættufjárfestungum sem reyndar er ólöglegt. Það bar hæft þann gjörning sem kenndur er við Vafning og núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins skrifaði undir fyrir föður sinn og frænda. Þar brást FME algerlega við að stöðva þann ólöglega gjörning að setja bótafjóðin í áhættufárfestingar.

Tap ríkissjóðs vegna Sparisjóðs Keflavíkur og Sjóvár er því ekki sök Steingríms heldur fjárglæframanna sem allti hafa sterk tengsl við Sjálfstæðiflokkinn.

Svo er það bull að Svavar samningurinn hefði kostað 500 milljarða hefði hann verið samþykktur. Sú tala miðaði við mjög svartsýnt mat á söluverðmæti eigna úr þrotabúi Landsbankans sem nú er ljóst að mun greiða upp allan höfuðstól Icesave skuldanna. Í þessu efni þarf líka að hafa í huga að hefði verið samið á þeim tíma hefði það flýtt fyrir öllum fyrirgreiðslum til Íslands og þá værum við mun lengra komin í að byggja upp hagkerfið eftir hrun en við erum í dag og því alveg óljóst hvort staða okkar væri betri eða verri en hún er í dag.

En úr því þú ert að tala um menn sem hafa skaðað íslenskt þjófélag mikið fjárhagslega af hverju minnist þú ekki á Íslandsmeistarann í því efni. Það er Davíð Oddson. Henn leiddi þá ríkisstjórn sem framkvæmdi allar þær aðgerðir sem ollu hruninu auk þess að valda Seðlabankanum 270 milljarða króna tjóni sem ríkissjóður varð að greiða.

Sigurður M Grétarsson, 31.1.2013 kl. 11:11

3 Smámynd: Jón Magnússon

Munurinn á Geir H. Haarde og Steingrími hvað Landsdómsákærur varðar er að Steingrímur yrði dæmdur fyrir raunverulegar sakir.

Jón Magnússon, 1.2.2013 kl. 15:31

4 Smámynd: Jón Magnússon

Sigurður þú ert búinn að skrifa þrjár athugasemdir þar sem þú heldur alltaf fram sömu tuggunni um að það sem ég er að vísa til í skjalfestum gögnum, ársreikningum og gögnum frá FME og síðan Fjármálaráðuneytinu varðandi Sparisjóð Keflavíkur og Sp/Kef sé allt saman bull og vitleysa.  Ég nenni satt að segja ekki að elta ólar við þetta hjá þér. Þú skalt bara kynna þér gögnin sjálfur þetta liggur allt fyrir.  Þú minnir óneitanlega á Framsóknarmanninn sem hélt ákveðnum hlutum fram varðandi bygginguí Reykjavík á framboðsfundi fyrir nokkrum árum og mótframbjóðandi hans kom með ljósmynd af byggingunni sem sýndi að Framsóknarmaðurinn var ekki að fara með rétt mál. Þá sagði Framsóknarmaðurinn þessa ógleymanlegu setningu, sem þú hefur greinilega tekið þér til fyrirmyndar. "Lygi er lygi jafnvel þó hún sé á ljósmynd."

Jón Magnússon, 1.2.2013 kl. 15:34

5 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Svo má ekki gleyma

http://www.t24.is/?p=4401

Og ekki heldur að unnir tíma að meðaltali hafa dregist saman (á ársgrundvelli) um 10,5 % úr 6,65 milljón tímum í rétt rúmlega 6,02.

Á sama tíma hafa lán okkar hækkað um 22,5% vegna verðbólgu.

S-gjaldborgin nær ekki upp í þessa hækkun svo að hún er í raun negatíf.

Óskar Guðmundsson, 1.2.2013 kl. 15:35

6 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Steingrímur gerði nokkuð sem er því miður (fyrir hann) skýlaust brot.

Hann laug að þingi (að engir samningar væru í burðarliðnum)

Hann undirritaði einnig skuldbindingu sem hann hafði ekki heimild fyrir í lögum né hafði hann meirihluta fyrir þeirr samþykkt á þingi enda 6 í VG á móti og m.v. það aðeins 27 þingmenn með sér en hefði þurft 32.

Hylming Steingríms er engu minni (nema síður sé) en hylming sú er Geir var dæmdur fyrir.

Óskar Guðmundsson, 1.2.2013 kl. 15:39

7 Smámynd: Jón Magnússon

Góð upprifjun Óskar.

Jón Magnússon, 1.2.2013 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 82
  • Sl. viku: 1663
  • Frá upphafi: 2291553

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1492
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband