Leita í fréttum mbl.is

Bannfæringar og mannorðsmorð

Fyrrum utanríkisráðherra Íslands var beðinn um að kenna í Háskóla Íslands. Enginn efast þekkingu hans og enginn frýr honum vits. Enginn velkist heldur í vafa um að þarna hafði Háskóli Íslands fengið einn af bestu fyrirlesurum þjóðarinnar.

En nei. Þegar til átti að taka gat ekki orðið af kennslunni vegna þess að kennarar í furðulegheita fagi sem heitir kynjafræði og er kennd í Háskóla Íslands af ástæðum sem Guð einn kann e.t.v. að útskýra, mótmæltu því að nemendur Háskóla Íslands ættu þess kost að hlusta á úrvals fyrirlesra annast kennslu á sviði sem hann gjörþekkir.

Enn einu sinni horfir fólk upp á það hvernig sérhagsmunahópar og sjálfskipaðir talsmenn siðferðis í þjóðfélaginu taka sér vald til að bannfæra og veitast að öðru fólki fyrir litlar eða engar sakir. Sú varð raunin í þessu tilviki og því miður féll Háskóli Íslands hrapalega á prófi umburðarlyndis og mannréttinda.

Í dag er það Jón Baldvin Hannibalsson sem verður fyrir þessu. Fyrir nokkru fór   guðfræðikennari í leyfi vegna athugasemda trúleysingja. Við marga er ekki talað af því að þeir hafa skoðanir sem sérhagsmunahópar eru á móti.

Það ber brýna nauðsyn til að þeir sem unna málfrelsi, skoðanafrelsi og lýðréttindum láti kröftuglega í sér heyra og mótmæli þeirri ásókn og skoðanakúgun sem beitt er í þjóðfélaginu.

Nú er það musteri frjálsrar hugsunar Háskóli Íslands sem misvirðir mannréttindi, skoðanafrelsi og eðlilega starfshætti. Er skrýtið að fólk veigri sér við að taka þátt í almennri umræðu í þjóðfélaginu?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það er annars merkilegt af hvaða hvötum fólk tekur þátt í svona galdrabrennum. Það er þekkt í mankynssögunni að smámenni týndu sprek á báköstinn til að bjarga eigin skinni. Kannski þarf einhver í fordæmingarhernum að bæta mannorð sitt?

Sigurður Þórðarson, 31.8.2013 kl. 16:55

2 Smámynd: Þórólfur Ingvarsson

Það er bara þannig að þegar sérhagsmuna og minnihlutahópar eiga í hlut þá snýst allt uppí andhverfu sína og endar í tómu bulli, hef orðið skömm á þessu og hef ekki lengur áhuga á því að sýna því skilning sem er verið að berjast fyrir þó svo að ekki sé það allt samkvæmt því sem minn hugur stendur til. En varðandi þetta mál hér að ofan Jón þá spyr ég bara, hvar eru allir þessir hópar sem kenna sig við mannréttindi, tjáningarfrelsi, bætt mannlíf og kærleika?

Þórólfur Ingvarsson, 31.8.2013 kl. 17:24

3 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Sammála þér Jón, þetta jaðrar við stjórnarskrárbrot skv. "hörku dómgreind" allir eiga rétt til lífsviðurværis.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 31.8.2013 kl. 17:30

4 identicon

Merkilegt að fylgjast með þessari umræðu. Musteri frjálsrar hugsunar? Er Birgir Þór Runólfsson musterisriddari sem nemendur mega ekki missa af? Þessi háskóli er brandari sem er fyrir löngu hættur að vera fyndinn. M.a.s. Ögmundur Jónasson, talsmaður forvirkra rannsóknarheimilda, missir marks með gríni sínu um grundvallarreglur réttarríkisins.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 31.8.2013 kl. 17:43

5 Smámynd: Valur Arnarson

Sæll Jón,

Ég þakka þér fyrir góða grein og get tekið undir allt hér. Seint verð ég sammála Jóni Baldvini í hinum ýmsu málum en vinnubrögð Háskóla Íslands í þessu máli eru til háborinnar skammar. Það að þetta mál hafi ekki fengið meiri umfjöllun en raun ber vitni sýnir bara hvað okkar þjóðfélag er illa statt vegna hræðslu við fólk, eins og þessa kynjafræðikennara, sem vill móta skoðanir allra eftir sinni eigin hugmyndafræði.

Valur Arnarson, 31.8.2013 kl. 19:24

6 Smámynd: K.H.S.

 Jón Baldvin kann ekki að skammast sín, en samt á hann sinn rétt í samfélagi manna og því rangt af Háskólanum að refsa honum sérstaklega

Jón Baldvin er ekki s´ða sem ég trega 

K.H.S., 31.8.2013 kl. 21:11

7 identicon

Háskóli sem lætur tengja nafn sitt við hindurvitni og ríkisstyrktan trúarlegan heilaþvott saklausra barna með því að reka prestaskóla ætti varla að henda mikið af steinum.

Magnus S. Magnússon (IP-tala skráð) 1.9.2013 kl. 01:58

8 Smámynd: Theódór Gunnarsson

Mikið er ég sammála þér um allt sem þú segir hér, nema það að átök Vantrúar og Bjarna Randvers eru af allt öðrum toga og eiga ekki við í þessu samhengi. Vantrú lagðist ekki í neina rógsherferð. 

Theódór Gunnarsson, 1.9.2013 kl. 08:23

9 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka ykkur fyrir ykkar innlegg. Við erum greinilega öll sammála um aðalatriðið.

Jón Magnússon, 1.9.2013 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 569
  • Sl. sólarhring: 639
  • Sl. viku: 2955
  • Frá upphafi: 2294506

Annað

  • Innlit í dag: 529
  • Innlit sl. viku: 2696
  • Gestir í dag: 505
  • IP-tölur í dag: 490

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband