Leita í fréttum mbl.is

Eitthvað til að vera stoltur af?

Á sama tíma og hersveitir Sýrlandsstjórnar sækja að Aleppo síðustu borginni sem uppreisnarmenn í Sýrlandi hafa enn að hluta til á valdi sínu, lofar Obama Bandaríkjaforseti að styrkja uppreisnarmenn með viðbótarframlagi frá skattgreiðendum í Bandaríkjunum um 500 milljón dollara eða tæpa 60 milljarða og framlengja með því hörmungar og mannvíg í landinu.

Assad Sýrlandsforseti er einræðisherra og harðstjóri, en hann er síður en svo verri en bestu vinir Bandaríkjanna og Breta í Mið-Austurlöndum, Saudi Arabar eða furstafjölskyldurnar í Kuveit eða Quatar.

Uppreisnin í Sýrlandi var takmörkuð en með stuðningi og fjárframlögum og vopnum ríkisstjórna Tyrklands, Quatar, Saudi-Arabíu, Bretlands og Bandaríkjanna breiddist hún út og hefur verið viðhaldið með óbætanlegu tjóni og hörmunum fyrir almenna borgara í Sýrlandi.

Óneitanlega hlítur Barack Obama og David Cameron að líta yfir verk sín og velta því fyrir sér hvort þeir geti ekki verið stoltir af afskiptum sínum í Mið-Austurlöndum.

1. Eftir að hafa ráðist inn í Írak og farið síðan og skilið allt eftir í öngþveiti,  geisar þar blóðug borgarastyrjöld og klofningsbrot frá Al Kaída hefur tekið drúgan hlut landsins og hefur nú um milljón dollara tekjur á dag fyrir sölu á olíu.  

2. Í Sýrlandi hefur borgarastyrjöld verið viðhaldið með fjárframlögum, vopnum og flutningi þúsunda vígamanna til landsins.

3. Í Líbýu þar sem hinum illa Gaddafi var steypt af stóli berjast mismunandi hreyfingar Islamista og annarra um völdin og í síðustu kosningum þar í landi tók einungis lítill hluti þátt eða um eða innan við 20%. Borgarar eru ekki óhultir og mannréttindi eru af skornum skammti.

4 Í Afganistan undirbúa Bandaríkjamenn brottför hers síns eftir rúmlega 10 ára hernað gegn hryðjuverkum án nokkurs árangurs. Talíbanar eru þar enn í fullu fjöri.  

Utanríkisstefna Bandaríkjanna og Breta hefur haft hroðalegar afleiðingar þar sem þessar þjóðir hafa beitt virkasta diplómatíska vopni sínu, hernum.

Árrangursleysi af hernaði og sóun tuga þúsunda mannslífa og billjarða dollara sóun til einskis ætti að vera búið að kalla á hörð viðbrögð skattgreiðenda í Bandaríkjunum og Bretlandi. Það ætti líka að kalla á að kjósendur þessara  ríkja vikju frá þessum lánlausu stjórnmálamönnum sem hafa staðið að þessum glæpaverkum oft á tíðum í trássi við alþjóðalög. Menn sem nú vita ekki sitt rjúkandi ráð eftir að hafa komið illu einu til leiðar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Gleymdirðu ekki einu ríki sem brytjar niður fólk, börn þar á meðal, þessa dagana? Allt gert með velþóknun Bandaríkjamanna.

Gísli Sigurðsson, 13.7.2014 kl. 14:40

2 identicon

Sæll Jón

Hver segir að þetta séu ekki hryðjuverkamenn sem eru að berjast þarna gegn stjórnvöldum í Sýrlandi eða af hverju nefnir þú þá hérna bara "uppreisnarmenn"?
Það er hins vegar rétt hjá þér Jón að þessir hryðjuverkamenn og/eða uppreisnarmenn hafa verið fjármagnað af Bandaríkjamönnum, Bretum, Saudi Arabíu og Quatar, en hver segir að Assad Sýrlandsforseti sé bæði einræðisherra og harðstjóri?
Því að samkvæmt eftirlitsmönnum er fylgdust með þessum kosningum núna síðast, þú fundu eftirlitsmenn ekkert að þessum lýðræðislegu kosningum í Sýrlandi, þrátt fyrir allt þetta stríðsástand þarna.
Það er rétt að stjórnvöld í Bandaríkjunum notuðu pretext- lygar um að Írakar áttu að búa yfir gjöreyðingarvopnum (WMD) til þess þá að ráðast á Írak, og það er rétt að stjórnvöld í Bandaríkjunum notauðu einnig pretext -lygar, um að Gaddafi væri að dreifa smokkum og væri í því að reyna fá menn til þess að nauðga konum, eða allt til þess að ráðast á Líbýu, en hversu oft hafa stjórnvöld í Bandaríkjunum notað svona pretext -lygar til þess að hefja stríð?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 13.7.2014 kl. 14:46

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hér er ég ósammála þer um sumt, nafni, en sammála þér, að afskipti Bandaríkjamanna og ESB af Sýrlandsmálunum urðu til ills eins -- til að magna upp borgarastyrjöld sem á nokkrum árum hefur heimt líftóruna af meiri mannfjölda en sem nemur hálfri ísenzku þjóðinni. Mikil er ábyrgð vestrænna ríkisstjórna!

Nýjasta loforð Obama í þessu efni er í takt við önnur hans verstu glappaskot í starfi.

Jón Valur Jensson, 13.7.2014 kl. 19:10

4 identicon

Sæll, Jón og 100% sammála.

Almenningur í þessum löndum UK, US veit ekkert um herkostnað þjóðanna, þessu er öllu haldið leyndu í fjölmiðlum, en það er einmitt þaðan sem almenningur fær fréttirnar.

Meiri þöggun og almenningi líður betur, og það eru íþróttirnar sem gilda.

Það var dvöl mín í Svíþjóð sem opnaði augu mín fyrir þessu sálræna tryggsi. Íþróttir, íþróttir og aftur íþróttir fylla sendingartím fréttamiðla og á milli koma bullshitt þættir og verðlausar fréttir með ekkert gildi.

En það sem er að gerast í raun og veru er falið og fólkið borgar skattana í góðri trú.

Frá áramótum hefur verið sótt um landvistarleyfi á norðulöndunum, af flóttafólki, fyrst og fremst frá Sýrlandi, eftirfarandi:

Norge 5300

Danmark- 2800

Finnland- 1470

Sveriga- 32000

Þetta kemur ekki úr sænskum fréttamiðlum , heldur frá bloggsíðu þingmanns í Riegsdagen.

Sorglegt.

Valdimar Jóhannsson (IP-tala skráð) 13.7.2014 kl. 22:58

5 Smámynd: Jón Magnússon

Nei ég gerði það ekki Gísli. Það var ekki efni þessarar færslu. Ég var að fjalla um hernaðarleg afskipti Bandaríkjanna og Breta og þar sem þau hafa kynt undir ófriði í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafsins. Ég var ekki að fjalla um utanríkisstefnu þeirra að öðru leyti. Það er efni í margar bloggfærslur. 

Jón Magnússon, 13.7.2014 kl. 23:02

6 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er allt saman rétt og satt hjá þér Þorsteinn því miður. Það voru miklu fleiri lygar í gangi og hafa verið t.d. varðandi Sýrland. Ég skil ekki hvernig vestrænar fréttastofur, blöð og tímarit sem fjalla um stjórnmál og alþjóðamál hafa fallið í þann pytt að taka gagnrýnislaust við þeim fréttum sem CIA og þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna ýta að þeim.  Sennilega vegna leti og metnaðarleysi. Einn slíkur fréttamiðill er því miður fréttastofa RÚV.

Jón Magnússon, 13.7.2014 kl. 23:04

7 Smámynd: Jón Magnússon

Ekki veit ég hverju þú ert ósammála nafni. En ég er sammála þeim athugasemdum sem þú kemur með. Ábyrgð Bandaríkjanna, Breta, Tyrkja og Sádi Araba á hörmungum Sýrlensku þjóðarinnar er gríðarleg. Nýjustu tölur um mannfall í stryrjöldinni eru um 120 þúsund. Þar af þriðjungur óbreyttir borgarar.

Jón Magnússon, 13.7.2014 kl. 23:06

8 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála Valdimar. Eitt sem mér finnst ótrúlegt en það er að kristnar kirkjudeildir á Norðurlöndum og víðar skuli ekki vekja athygli á örlögum trúbræðra okkar í Sýrlandi og Írak t.d. þar sem harðast er sótt að þeim. En hinum værukæru kirkjum Vesturlanda virðist ekki koma það við. Svo er fjölmiðlaumfjöllunin á Vesturlöndum um átökin í Sýrlandi til háborinnar skammar. Ég hef t.d. ekki séð nokkurn fjölmiðil fjalla um eiturefnaárásir á almenna borgara með öðrum hætti en að ríkisstjórn Assads hafi staðið fyrir þeim. Maður les þó annað í ýmsum erlendum fréttamiðlum.

Jón Magnússon, 13.7.2014 kl. 23:11

9 identicon

Sæll aftur Jón og aðrir góðir gestir hérna


Það gleður mig að við séum sammála, en það er athyglisvert hvað stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa verið dugleg að ljúga til þess eins þá að hefja stríð í gegn öðrum löndum. Allt frá forsetatíð hans Lyndon B. Johnson eða jafnvel fyrr hafa verið notaðar lygar, nú og hver kannast ekki við lygarnar um, að strákarnir okkar séu fljótandi í sjónum eða hið svokallaða Golf of Tonkin atvik, er átti sér reyndar aldrei stað í raunveruleikanum, og allt til þess eins að hefja stríð gegn Víetnam? En Víetnamstríðið kostaði reyndar yfir 58 þúsund Bandaríkimenn lífið og yfir 2 miljónir Víetnama lífið, og allt var þetta fyrir bankana og herganaiðnaðinn, rétt eins og önnur stríð. 

Eitt er þó víst að ekki gekk allt upp núna síðast hjá Obama stjórninni með lygarnar um að yfirvöld í Sýrland eiga að hafa notað sarin- gas á sitt fólk, eða þar sem að það vantaði allar sannanir. Á sínum tíma þann 30. maí á síðasta ári, þá opinberaðu fjölmiðlar í Istanbul, að Tyrkneska lögga hefði komist yfir sarin gas er Al- Nusra hryðjuverkasamtökin höfðu hugsað sér að nota gegn Sýrlendingum (Sjá hérna Report: Police foil al-Nusra bomb attack planned for Adana), en af hverju kröfðust þeir John Kerry og Obama ekki að stríð yrði gert gegn þessum Al- Nusra hryðjuverkasamtökunum?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.7.2014 kl. 00:57

10 identicon

Það virðist þannig, að mælikvarðar séu mjög olíublautir þegar menn í DC ákvarða hvern þeir styðja.

Svo rigga menn upp allskonar áróðursherferðum, til að fá landsmenn til að samþykkja innrásir og nýta sér lægstu samnefnarana í þeim efnum, búa jafnvel til sviðsmyndir sem eru upplognar frá byrjun.  ,,Babys in incubators" var herhróp Bush eldri og svo kom ,,weapons of mass destruktion" hjá syninum, hvorugt átti við rök að styðjast en ,,ætlar þú að leyfa að þetta barn deyji" áróður er afar auðveldur og hefur nýttst mönnum við hin furðulegustu herferðir, nú síðast í flugvallarmálinu okkar hér á Fróni en aðferðirnar eru eins og spila á sömu strengi í öllum tilfellum.

ÞEtta lið ætti að kynna sér hvað ,,the founding fathers" lögðu til mála og hvernig þeir skipuðu málum.  Afar langt frá núverandi áróðri og langt væri milli helstu stuðningþega þeirra og núverandi valdhafa.

Bjarni Kjartansson (IP-tala skráð) 14.7.2014 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1209
  • Sl. sólarhring: 1220
  • Sl. viku: 6854
  • Frá upphafi: 2277492

Annað

  • Innlit í dag: 1124
  • Innlit sl. viku: 6362
  • Gestir í dag: 1052
  • IP-tölur í dag: 1018

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband