Leita í fréttum mbl.is

Tjáningarfrelsi og hinn eini rétti sannleikur

Sama dag og Frakklandsforseti flaug til Íslands til að tala um hnattræna hlýnun í Hörpunni, var helsti veðurfræðingur franska sjónvarpsins látinn hætta. Afbrot hans var að gagnrýna vísindamenn og stjórnmálamenn vegna fullyrðinga þeirra um hnattræna hlýnun.

Veðurfræðingurinn Philippe Verdier sagði þegar hann kynnti bók sína "Climat Investigation" að við værum í viðjum hnattræns hneykslis vegna loftslagsbreytinga þar sem markmiðið væri að vekja ótta meðal fólks. Verdier segir líka að loftslagsfræðingum sé stjórnað vegna þess að þeir reiði sig á ríkisstyrki og hann vísar til þess að alþjóðlegar stofnanir eins og IPCC hafi ítrekað þurkað út staðreyndir sem fari gegn staðhæfingum þeirra um hnattræna hlýnun.

Verdier segir að hlýnun undanfarið sé eðlileg náttúruleg breyting og hann hafi ákveðið að skrifa bókina 2014 eftir að forsætisráðherra Frakklands hafi fyrirskipað fréttamönnum að tala um loftslagshryllingin "climate chaos" í veðurfréttum, eftir að hafa verið á forsíðu tímarits þar sem hann hélt því fram að það væru bara 500 dagar eftir til að bjarga jörðinni.

Verdier segir að ofsi heimsendaspámanna hnattrænnar hlýnunar sé slílkur að engar gagnrýnisraddir megi þola. Nú hefur hann heldur betur fengið að finna fyrir þessu þar sem hann fær ekki lengur að segja veðurfréttir í fanska sjónvarpinu.

Á sama tíma talar Frakklandsforseti um hnattrænu hlýnunina sem hann hafi orðið áþreifanlega var við á Íslandi- Jafnvel þó nýjustu fréttir segji að Hofsjökull sé að stækka og við Esjugöngumenn sjáum að snjórinn í Suðurhlíðum Esjunnar hverfur ekki lengur og snjóalög voru meiri s.l. vetur en allan áratuginn á undan. En það er e.t.v. ekkert að marka - Alla vega ekki þar sem tjáningarfrelsið er skert og eingöngu má segja fréttir sem styðja "hinn eina rétta sannleika" um "climate chaos".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Margir heimsþekktir og virtir vísindamenn hafa á undanförnum árum tjáð efasemdir sínar um hlýnunar hysteríuna. Þeir hafa þó viðurkennt að hafa ekki þorað því fyr en þeir voru hættir að vinna og komnir á eftirlaun, af ótta við að verða reknir fyrir skoðanir sínar.

Meðal þessara vísindamanna er t.d. Freeman Dyson, en viðtöl við hann má sjá á youtube.

Gunnar Th. Gunnarsson, 17.10.2015 kl. 16:16

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þakka fyrir þetta innlegg Jón. Ágúst H. Bjarnason er búinn að tala um þessi mál lengi. En það rísa alltaf upp einhverjir handhafar stórasannleiks, frá Al Gore og d´Hollande til Höska og Svatla sem vita allt upp á hár.Skólabróðir minn dr. Baldur Elíasson í Sviss er einn líka. Ég held að hann hafi unnið við að dæla CO2 niður í Atlantshafið fyrir Brown Bowery Corporation. Á síðu agbjarn er tengill á ræðu sem fyrrum formaður Greenpeace flytur eftir að hann lét sannfærast af rökum að hnattræn hlýnun væri ekki að eiga sér stað.Hann segir að CO2 séu byggingarefni lífsins á jörðinni og ef að þau skorti sé gróðurinn í  hættu. Ef hann deyr þá deyjum við líka úr súrefnisskorti.

Ég held að þetta sé orðinn bísness hjá mörgum að prédika fyrir þessu og loka eyrym fyrir öllum rökræðum. Páll Bergþórsson hefur látið efasemdir í ljós og sagt að kólnun væri einnig möguleg.

Halldór Jónsson, 17.10.2015 kl. 17:36

3 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Ég spái því að á næstu 5 árum muni fjara undan rökstuðningi um loftslagsbreytingar af mannavöldum. Við munum líklega fá eins og eina skýrslu í viðbót frá IPCC, en síðan hætta menn að taka mark á öllu tali um skaðsemi koltvísýrings á loftslag. Ein ástæðan hvers vegna haldið er lífi í þessu líki er viðskiptakerfi með losunarheimildir sem metur útblástur koltvísýrings til fjár.

Erlingur Alfreð Jónsson, 17.10.2015 kl. 19:22

4 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þer fyrir þetta innlegg Gunnar. Hræðilegt að verða vitni að þvi að visindasamfelagið skuli lata kaupa sig til að koma a fjölda hræðslu við eitthvað sem þarf ekki að ottast.

Jón Magnússon, 18.10.2015 kl. 10:49

5 Smámynd: Jón Magnússon

Eg hef fylgst með þessu Halldor. Mer finnst Agust hafa verið með baða fætur a jörðinni allan timann og synt fram a innihaldsleysi orðræðu helvitisspamannanna.

Jón Magnússon, 18.10.2015 kl. 10:50

6 Smámynd: Jón Magnússon

Vona það Erling

Jón Magnússon, 18.10.2015 kl. 10:50

7 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þau gögn sem ýmsir hafa fært sem eiga að sýna fram á að ekki sé um loftlagsbreytingar af mannavöldum að ræða hafa flest sameiginlegt að sýna skammtímabreytingar sem gefa ranga mynd. Staðreyndin er sú að hver einasti áratugur langt aftur í tímann hefur verið hlýrri en sá næsti á undan. Það eru nánast allir vísindamenn með þekkingu á þessum málum sammála um lofslagsbreytingar af mannavöldum og þeir fáu sem tala gegn því eru flestir tengdir aðilum sem hafa hag að því að ekki sé ráðist gegn lofslagsbreytingum,

Það mun því fekki fjara undan rökstuðiingi fyrir loftslagbreytingum af mannavöldum eins og Erlingur segir hér að ofan heldur mun smátt og smátt fjara undan rökstuðingin þeirra sem afneita þeim.

Sigurður M Grétarsson, 18.10.2015 kl. 11:20

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Verdier var látinn fara í frí vegna þess að hann braut starfssamning sinn við sjónvarpsstöðina. Hann er ekki veðurfræðingur heldur blaðamaður og sjónvarpsstjarna. Páll Bergþórsson er ekki efasemdar maður um hnattræna hlýnun af mannavöldum. Hann var einna fyrstur íslendinga til að ræða um hana. Hann hefur hins vegar oft viðrað kenningu sínar um á að giska 30 ára sveiflur í hitafari norðurhjara, sem er bara huti jarðarnnar, þar sem hvert kulda og hlýindaskeið er hlýrra en það sem á undan er komið- vegna hlýnunar jarðar. Vísa hér svo á pistil tveggja hófsemdarmanna, sem vara er hægt að kalla stórasannleikspostula, hvað þá hysteríska,  þar sem m.a. er komið inn á ætlað eiinhvers konar samsæri vísindamanna. http://www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/1805/

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.10.2015 kl. 13:29

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

En það er sannarlega ofríki þegar stjórnmálamenn fara að skipa veðurfréttamönnum fyrir verkum eins og forsæstisráðherra Frakklands hefur gert.

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.10.2015 kl. 13:36

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Vedrier er sjónvarpsstjarna á franska ríkisjónvarpinu. Reglur þess segja að meðan stafsmenn þess vinni þar megi þeir ekki kynna einkaskoðanir sínar í hagnaðarskyni en það var Vedrier einmitt að gera með þvi að auglýsa bók sína. Þess vegna var hann látinn fara. Hann fór ekki eftir þeim reglum sem hann hafði skuldbundið sig til að fara eftir.

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.10.2015 kl. 16:24

11 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ætli Frakka-foringjar og aðrir frakkaklæddir hvítflibbanna foringjar verði ekki búnir að hernaðar-kála öllu lífi jarðarinnar, áður en hin mikla "ógn" loftslagsbreytinga-(eitthvað), nær að kála landrændum, hnattferða-flýjandi og deyjandi flóttajarðarbúum?

Skólagráðulærða-"vitið" valdakúgunarkeypta verður víst ekki í askana látið nú til dags, frekar en fyrr á öldum.

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 19.10.2015 kl. 01:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 15
  • Sl. sólarhring: 66
  • Sl. viku: 1676
  • Frá upphafi: 2291566

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 1504
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband