Leita í fréttum mbl.is

ISIS hatar okkur fyrir það sem við erum og allt sem við stöndum fyrir.

Liam Fox fyrrum utanríkisráðherra Breta skrifar grein undir ofangreindu heiti í Daily Telegraph í dag. Þar segir hann:

"Það hræðilega við hryðjuverkin í París í dag er að þau verða sennilega endurtekin. Þau eru hluti af hugsun og hegðun sem skilgreinir Íslamismann. Það að skilja eitrað hugarfar þeirra er mikilvægt ef við ætlum að skilja hvað við stöndum frammi fyrir.

Heilagt stríð Íslamistanna er að hluta til trúarleg nauðhyggja og að hluta til ofbeldisfull andvestræn pólitísk hugmyndafræði. Uppskriftin er sú að setja fram öfgafulla skilgreiningu trúarinnar. Næst er að gera andstæðingana ómennska og muna að óvinurinn er ekki bara þeir sem eru ekki múslimar. Óvinirnir eru líka múslimar sem eru okkur ósammála af því að þeir eru trúvillingar og það þarf að losna við þá. Síðan þarf að muna að þetta er verk Guðs þetta er hans guðlegi vilji að sjá óvini sína drepna. Þið hafið verið kosnir til að vinna þessa vinnu og þið munuð fá ykkar verðlaun. Takið ekki tillit til neinna landamæra og takið ekki mark á neinum alþjóðalögum eða samningum eða hverju sem er. Notið öll meðul til að ná fram takmarki ykkar m.a. að slátra saklausum.

Til að skilja hvernig þetta fólk hugsar þá þurfum við líka að muna að þetta fólk hatar okkur ekki vegna þess hvað við gerum heldur vegna þess hverjir við erum og hvað við stöndum fyrir, sögu okkar og menningu. Þeir munu reyna að skaða okkur þegar þeir geta til að láta reyna á það hvað við erum einbeitt og láta reyna á öryggisráðstafanir til að finna veikleika.

-----------

Það er rétt hjá forsætisráðherranum (David Cameron) að við verðum að ráðast á ÍSIS á mörgum vígstöðvum. Ef við höfum rétt fyrir okkur um þá ógn sem okkur stafar af Íslamistunum  þá verðum við að velta hverjum steini í þeirri viðleitni að sigra og eyða þeim.

-----

Það eru erfiðar pólitískar og hernaðarlegar ákvarðanir sem við verðum að taka, en við stuðlum ekki að þjóðaröryggi með því að forðast þær."

Hér talar maður með mikla reynslu í utanríkismálum sem skrifaði fyrir nokkrum árum bókina "Rising Tides" þar sem hann fer yfir helstu vandamálin sem við stöndum frammi fyrir. Seint verður Liam Fox sakaður um að vera öfgafullur hægri maður, rasisti eða andvígur múslimum. Ekki frekar en forseti íslands, sá sem þetta ritar og svo margir fleiri sem hafa hvatt sér hljóðs til að vara við í því merkilega Undralandsþjóðfélagi sem íslenskir fjölmiðlar og stjórnmálamenn eru staddir í.

Það merkilega er að Ólafur Ragnar Grímsson forseti er eini stjórnmálamaðurinn sem er að tala á svipuðum nótum og stjórnmálamenn í Bretlandi, Frakklandi, Danmörku, Belgíu, Noregi og jafnvel Svíþjóð. Það hefði verið gaman hefði innanríkisráðherrann fundið hjá sér hvöt til að mæla örfá orð af skynsemi um þessi mál hvað þá formaður Sjálfstæðisflokksins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég myndi nú ekki taka mikið mark á manni, sem þykist vera á móti Islamistum, en hefur staðið fyrir þvi að þessir sömu aðilar hafa fengið greiðan aðgang að Evrópu.  Islam og Islamistar, eru þegar orðinn það sterkur hópur í Evrópu, og það er of seint að taka fyrir rassinn, þegar komið er í buxurnar. Þessi sami aðili er vildarmaður Saudi Araba, sem ekki geta talist annað en Islamistar.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 22.11.2015 kl. 23:46

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég lét mig hafa að opna fyrir Rúv.u.þ.l.sem farið var yfir frétta ágripið. Þá heyrði ég frétt um að forsetinn okkar hefði talað á svipuðum nótum og þau 6,sem þú telur hér upp. Ég varð harla glöð og ekki minna er hann segði það ,firru, að leyfa Moskubyggingu hér.Við þurfum og ættum ekki að að apa allt eftir eins og er í útlöndum,frekar halda sérstöðu okkar sem er harla eftirsóknarverð.

Helga Kristjánsdóttir, 23.11.2015 kl. 02:28

3 identicon

Það er auðvelt fyrir Íslendinga að vera friðelskandi og friðarboðandi þjóð þegar aðrir taka á sig höggin og vinna fyrir okkur skítverkin.

Eftir höfðinu dansa svo limirnir (eða er það kannski öfugt) pólitíkusarnir þora fæstir að ganga í berhögg við þessa furðulegu séríslensku "góðmennsku".

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 23.11.2015 kl. 07:27

4 identicon

Sammála. Ég las grein í Politiken í morgun eftir danskan blaðamann búsettan í Brüssel, sem segir, að þegar börnin sín komist ekki í skólann, þá hafi IS unnið sinn fyrsta sigur. Ég las líka grein í Aftenposten um helgina, þar sem var verið að lýsa því, hvernig smábörn eru uppalin og þjálfuð sem hryðjuverkamenn. Hrikalegt, verð ég að segja. Forsetinn okkar er magnaður, og ég gat tekið undir hvert orð, sem hann sagði. Hins vegar virðist það vera svo, að enginn má minnast á þessa hluti, án þess að vinstra liðið verði bandvitlaust, því að það vill ekki, að hlutum sé lýst, eins og þeir eru, og byrja að tala um sundrungu þjóðarinnar og þaðan af verra, ef bent er á þá augljósu staðreynd, að hryðjuverkamenn skuli vera til yfirleitt. Þessum vinstri mönnum finnst það víst allt í lagi, að Saudi-Arabar leggi fé í moskuna. Hvað myndi það hafa í för með sér, nema að þeir vilji ala þar upp herskáa múslími, eins og dönsku og norsku blöðin hafa verið að lýsa, að sé m.a. í moskunum hjá þeim og í öðrum ríkjum nálægt þeim. Varla viljum við hafa slíkt í þjóðfélagi okkar? Ég verð að segja, að ég skil ekki, hvað stjórnmálafræðingar stjórnarandstöðunnar eru að hugsa eða meina. Það má ekki segja hlutina, eins og þeir eru, og þeir vilja ekki viðurkenna, að til séu hryðjuverkamenn, sem vaða yfir öll lönd með vopnum sínum og tólum, drepandi mann og annan, og segja fólk misskilja orð manna, sem eru að breiða það út og vara við slíku fólki. Það eru allir flóttamenn svo óskaplega góðir og almennilegir í þeirra augum og enginn úlfur í sauðagæru þar á meðal. Mér finnst þetta málæði í vinstra liðinu hljóma eins og heimska. Ég verð að segja það eins og er, enda er ég orðin dauðþreytt á blaðrinu og vitleysunni í stjórnarandstöðunni, hvað þetta varðar, og ég skil ekki tilganginn. Ef nokkur er að sundra þjóðinni, þá er það stjórnarandstaðan með blaðrinu í sér og vitleysunni. Mál er að linni.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 23.11.2015 kl. 13:03

5 Smámynd: Elle_

Og svo vilja sumir sigrast á þessum böðlum með kærleik.  Og segja veiklulega hluti eins og að meiri hætta stafi af veðrinu og ekki megi vera með hatursumræðu og hæðast að morðingjunum.  En nákvæmlega ekkert mun stoppa þessa menn nema taka þá niður.

Gott þú kallaðir villimennina ISIS frekar en hinu hátíðlega óviðeigandi heiti Ríki Islam eins og þeir vilja vera kallaðir.  Þessir menn eru ekki ríki eitt eða neitt.  Það fer verulega í taugarnar á mér að lesa þessa morðingja kallaða Ríki Islam. 

Íslenskir stjórnmálamenn eru í heild alltof linir og þora ekki að standa gegn vindi.  Forsetinn er ein af undantekningunum.  Hann er  staðfastur og sterkur og ekki út í loftið að hann var kosinn aftur og aftur 5 sinnum.  Landið þarf á manni eins og honum að halda.  En Bjarne, hvar kemur fram að forsetinn sé vildarmaður Saudi-Araba, eins og þú orðaðir það?  Það er enginn vafi að forsetinn er gætinn maður þó hann hundsi ekki stjórnvöld þar.  

Elle_, 23.11.2015 kl. 14:10

6 Smámynd: Elle_

Og svo vil ég taka undir eftirfarandi frá Bjarna Gunnlaugi, mikill sannleikur í þessu og meðan margir Íslendingar kalla stjórnvöld í vestrænum löndum, eins og Bandaríkjunum, herská:  Það er auðvelt fyrir Íslendinga að vera friðelskandi og friðarboðandi þjóð þegar aðrir taka á sig höggin og vinna fyrir okkur skítverkin.

Elle_, 23.11.2015 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 68
  • Sl. viku: 853
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 752
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband