Leita í fréttum mbl.is

Allt upp á borðið strax.

Jóhannes Kr.Kristjánsson segist hafa undir hönum lista með nöfnum 600 íslendinga sem voru með fjármálastarfsemi í gegn um lögmannsstofuna í Panama og földu peningana sína á Tortóla eða öðrum álíka skattaskjólum.

Eftir Kastljós sem Jóhannes Kr. stýrði af miklum myndarskap á sunudaginn riðar ríkisstjórn Íslands til falls og allar líkur eru á því að forsætisráðherra verði að taka pokann sinn fyrr heldur en síðar og líklega tveir ráðherrar til viðbótar sem tengjast skattaskjólum eins og forsætisráðherrann.

Spurningin er þá hvað með hina 597 sem þjóðin á eftir að fá upplýsingar um í fyrsta lagi hverjir eru. Í öðru lagi hvað þeir gerðu. Í þriðja lagi hvað miklar peningalegar eignir um var að ræða. Í fjórða lagi hverjir tengdust viðskiptalega þessum einstaklingum og í fimmta lagi voru kjörnir fulltrúar fólksins eða háttsettir ríkisstarfsmenn tengdir eða viðriðnir aflandsstarfsemi þessa fólks.

Þjóðin þarf að fá að vita um öll þessi atriði og allar nauðsynlegar upplýsingar nú þegar til að geta gert sér grein fyrir heildarmyndinni og geta mótað afstöðu til þess hvernig á að bregðast við. Upplýsingarnar eru nauðsynlegar í lýðræðislegri umræðu og það er ekki tækt fyrir Jóhannes Kr. Kristjánsson að halda þessum upplýsingum frá þjóðinni og birta þær eftir geðþótta næstu daga og/eða vikur. Annar er hætt við að umræðan verði ekki nægjanlega markviss eða niðurstaðan rétt.

Við verðum að fá allt upp á borðið strax. Það er eðlileg krafa þjóðar í lýðræðisríki. Okkur er í mun að bregðast við og hreinsa þá óværu sem enn býr með þjóðinni af þjóðarlíkamanum.

Jóhannes Kr. Kristjánsson birtu listann strax í dag annað gengur ekki ef þú vilt að nú þegar fari fram upplýst lýðræðisleg umræða.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Ef ætlunin er að hreinsa til á Íslandi þarf þetta að gerast þegar í stað svo unnt sé að taka umræðuna heilstæða. Eru fleiri en gjaldkeri Samfylkingarinnar sem eru með óhreint mjöl í pokahorninu. Við kunnum að upplífa þessa daga sem myrka daga í sögu landsins en kannski er þetta bestu tíðindi sem við gátum fengið og þurfum því ekki lengur að lifa í þeirri fíflaparadís að Ísland sé fyrirmyndarríki hvað varðar spillingu og svíarí.

Valdimar H Jóhannesson, 5.4.2016 kl. 10:42

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Eimitt þetta þarf að fá á hreint.

Sigurjón Þórðarson, 5.4.2016 kl. 13:22

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Gallinn er sá að Jóhannes og félagar eru ekki nema með brotabrot af upplýsingum um skattaskjól. Þó Jóhannes birti þennan lista með 600 nöfnum Íslendinga, veður einungis um sýnishorn að ræða. Einungis er um að ræða viðskiptamannalista einnar lögmannsstofu. 

Sigurður Þórðarson, 5.4.2016 kl. 19:31

4 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Sæll Jón.

Það er engin von til þess að þessi nöfn verði birt fyrr en búið er að ákveða hvort þingkosningum verður flýtt eða ekki. Krafan er kosningar á lágmarkstíma, sem eru 6 - 8 vikur og ætlunin er að birta valin nöfn jafnóðum og það hentar inn í þá kosningabaráttu.

Annað hvort á að birta þetta strax og áður en ákveðið er að halda inn í  kosningar, eða setja lögbann á birtingu gagnanna þar til eftir kosningar.

það sér hver heilvita maður að gögn eins og þessi geta verið hættuleg lýðræðinu á þeim tíma sem kosið er til þings og hvað þá þegar forsetakosningar gætu nánast farið saman í tíma við þingkosningar.

Sindri Karl Sigurðsson, 5.4.2016 kl. 20:31

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ALgjörlega sammála því Jón. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.4.2016 kl. 09:23

6 identicon

Eftir því sem hann heldur listanum leyndum lengur, lítur þessi Kastljósþáttur lítið skondin við og sterkir ekki tiltrú til RÚV! Þrátt fyrir að listinn sé jafnvel ekki í höndum RÚV! RÚV hefði þá ekki átt að sína þáttinn fyrr en listin var tæmdur! Gjaldkeri Samfylkingarinnar fannst þetta bara sjálfsagður hlutur með aflandsfélög og það þykir öllum sem vilja nota samfélagsþjónustuna, en ekki tilbúnir að vera með og borga í form af sköttum!

Ingolfur Torfason (IP-tala skráð) 6.4.2016 kl. 10:45

7 Smámynd: Sigurður Rósant

Miðað við umræðurnar, viðbrögðin og reiðina sem við Íslendingar upplifum þessa stundina, er það vissulega að bera í bakkafullan lækinn að birta nöfn þeirra 600 aðila sem einnig geyma fé, hlutabréf og kröfur í erlendum skattaskjólum.

Mig minnir að skattrannsóknarstjóri hafi sagt að um 30 mál væri að ræða sem þyrfti að rannsaka, úr þeim gögnum sem hann fékk að kaupa af Huldumanni tengdum Evu Joly fyrir nokkra tugi milljóna.

Af þessum 600 gætu verið fyrirtæki, félög og einstaklingar sem okkur hefur ekki órað fyrir að ættu fé í aflandsfélögum sem hafa hvað verst orð á sér og sýna yfirvöldum annarra ríkja lítinn sem engan samstarfsvilja.

Hvernig yrði okkur við ef stofnanir eins og Hjálparstofnun kirkjunnar, Rauði Krossinn, Hvítasunnusöfnuðurinn, Stöð 2, Frumherji, Toyota umboðið, Flugleiðir, Eimskip o.fl. væru á þessum lista?

Við héldum sennilega ekki ró okkar næstu mánuði eða ár ef öll undanskotin kæmu upp á yfirborðið í einu. Þá þigg ég forræðishyggju Jóhannesar og hans félaga frekar. En ég vil endilega samt fá að vita af þessum aðilum eins og fleiri hér á spjallþræði þínum, Jón.

Kannski setja stjórnvöld lög um bann við birtingu þessara gagna eins og Kínverjar hafa gert, að viðlögðum hörðum refsingum?

Sigurður Rósant, 6.4.2016 kl. 13:40

8 identicon

Sammála því Jón. Það þarf að kryfja þessa lista til mergjar og það tímanlega fyrir næstu kosningar, hvenær sem þær verða. Það þarf að átta sig á mögulegum spillingartengslum úr þessum lista við frambjóðendur í næstu kosningum. Svo og auðvitað að létta leynd af gjörðum samtíma stjórnmála.

Arnar (IP-tala skráð) 6.4.2016 kl. 13:56

9 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka ykkur fyrir ykkar innlegg.

Jón Magnússon, 6.4.2016 kl. 17:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 50
  • Sl. sólarhring: 1258
  • Sl. viku: 1580
  • Frá upphafi: 2293048

Annað

  • Innlit í dag: 43
  • Innlit sl. viku: 1434
  • Gestir í dag: 43
  • IP-tölur í dag: 43

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband