Leita í fréttum mbl.is

Þekking og meðvituð vanþekking

Þekking er forsenda upplýstrar umræðu. Það tekur tíma að afla sér þekkingar og sumir veigra sér við að taka þátt í opinberri umræðu af því að þeir telja sig ekki hafa næga þekkingu. Aðrir láta skeyta að sköpuðu og umræðan verður þá því marki brennd. Enn aðrir neita að afla sér þekkingar af því að þeir hafa fyrir fram mótaðar skoðanir sem þeir telja stórasannleik og vilja ekki heyra neitt sem gæti breytt því.

Fólk ræður því hvað það vill vita eða ekki vita. Það er hins vegar alvarlegt þegar stjórnmálafólk og fréttafólk hefur þá afstöðu að það hafi höndlað stóra sannleikann og vilja ekki heyra neitt sem gæti breytt því.

Fréttaelítan og pólitíska elítan á Íslandi og víðar hefur höndlað stóra sannleikann varðandi hælisleitendur og Íslam og neitar að kynna sér staðreyndir sem gætu breytt þeim viðhorfum. Þetta fólk neitar að kynna sér og viðurkenn að íslam er mótað á rasisma. Það neitar að kynna sér að Íslam byggir á kenningakerfi sem er fjandsamlegt grundvallarmannréttindum eins og þau eru skilgreind í íslensku stjórnarskránni. Það neitar að viðurkenna að herhvöt íslamistanna í dag er til höfuðs einstaklingnum og einstaklingsbundnum réttindum hans.

Í gær var fundur með norska rithöfundinum Hege Storhaug, sem hefur kynnt sér Íslam og skrifað bækur um það efni m.a. bókina "Þjóðaplágan Íslam". Hege rekur í bókinni staðreyndir um undirgefnina, heildarhyggjuna, rasismann, kvennfyrirlitninguna og fleira í Íslam. Hege er í þeirri kjörstöðu að vera hvorki hvítur kristinn karlmaður né til hægri í pólitík. Hefðbundnir merkimiðar frétta og stjórnmálaelítunnar gagnvart henni duga því ekki.

En þá er þá hægt að þegja hana í hel.

Á fjölmennum fundi sem haldinn var í gær með Hege Storhaug, gerði hún grein fyrir rannsóknum sínum á Íslam. Engin kjörinn fulltrúi á þjóðþingi Íslands eða borgarstjórn Reykjavíkur mætti. Fjölmiðlafólkið af RÚV var heldur ekki sjáanlegt. Þóra Arnþórsdóttir gætti þess vel að óæskilegar skoðanir Hege Storhaug, sem gætu upplýst fólk um hvers konar fyrirbrigði Íslam er fengi ekki rúm í Kastljósi undir hennar stjórn. Það er óneitanlega nöturlegt að fólk sem hefur kynnt sér málin og sér hvað það eru alvarlegir hlutir á ferðinni varðandi Íslam og að hér er á ferðinni hættuleg heildarhyggja andstæð persónufrelsi og einstaklingsfrelsi, skuli jafnan vera sakað um rasisma, fasisma eða eitthvað álíka af fjölmiðla- og stjórnmálaelítunni. Þær nafngiftir sýna betur en nokkuð annað að þekking þessarar elítu á hvað um er að ræða er engin og það er skelfilegt að verða vitni að því.

Þessi sama elíta stjórnmála- og fréttafólks vegur stöðugt að vestrænum og kristilegum lýðræðisgildum og herpist við að viðhalda vanþekkingu sinni á Íslam. Þar virðist sama vera upp á teningnum hvort heldur fólk skilgreinir sig til hægri eða vinstri í þessari elítu. Þegar allt kemur til alls þá er sami grauturinn í öllum skálunum. Það er sú skeflilega staðreynd sem þjóðin verður að horfast í augu við og bregðast við.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jón

Burtséð frá trúarbrögðunum, þá eru fjölmargir múslimar vel menntað, upplýst fólk sem neitar að fylgja kreddunum. Hinir sem eru kreddufullir og óupplýstir eru jafnan þeir sem hætta stafar af. Það er þó engan veginn einhlítt, sbr. arkitektinn Atta o.fl. Sjálfur þekki ég múslima sem vara við eigin trúbræðrum og vitna til fáfræði þeirra.

Ég hef sjálfur miklu meiri áhyggjur af þeim sem þú nefnir hér að ofan. Þeir eru hinir "nytsömu sakleysingar" nútímans.

Bestu kveðjur,

Einar S. Hálfdánarson (IP-tala skráð) 26.5.2016 kl. 16:18

2 identicon

Ekki hægt að orða þetta betur Jón.

Þetta er alveg með ólíkindum þessi þöggun

varðandi þetta grafalvarlega vandamál sem

Islam býður uppá.

Allstaðar á Norðurlöndum, þar sem þessi plága

hefur náð að festa sér rætur, ég kalla þetta plágu hvað

sem örðum finnst, þá er allt í kaldakoli og

vitleysu. Nú um daginn bárust fréttir frá Svíþjóð

að það væri hvorki meira né minna en 56 gettó sem lögreglan

fer ekki inní af ótta við ofbeldi.

Stutt er síðan íslenski músliminn Sverrir Agnarsson hafnaði

því algjörllega að eitthvað slíkt væri til í Evrópu.

Segir allt sem segja þarf.

Íslendingum, sem halda alltaf að þeir séu að finna

upp hjólið, átta sig ekki á því að þeirra uppfinning

er alltaf ferköntuð.

Af hverju..? Af hverju má ALDREI læra af reynslu

annarra..?? Er það bara einhver skylda að reyna

að prófa, til þess eins að geta sagt að við

reyndum líka..???

M.b.kv.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 26.5.2016 kl. 17:12

3 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir góða og hnitmiðaða grein í Mogga Einar um fáráðslög innanríkisráðherra. Við erum alveg sammála um þetta. En í bók Hege Storhaug þá rekur hún einmitt þetta og sjálf á hún mjög góða vini sem eru múslimar en hún segir að þeim sé í raun ógnað af Íslamistunum og ekki síður slappleika og aumingjaskapar Vesturlanda.

Jón Magnússon, 26.5.2016 kl. 22:09

4 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir gott innlegg Sigurður.

Jón Magnússon, 26.5.2016 kl. 22:10

5 Smámynd: Sigurður Rósant

Það er kannski ekkert skrýtið að stjórnmálamenn séu ekki meira inni í þessum málaflokki en raun ber vitni.

Það tekur mörg ár, mikinn bóklestur og kynni af margs konar trúuðu fólki, líkt og Hege Storhaug hefur öðlast með afskiptum sínum af hlutskipti ungra kvenna hjá hjálparsamtökum á borð við Stígamót í Noregi.

Engir eða fáir skilja t.d. afstöðu mína í þessum málum, enda kynnst trúsöfnuðum af eins konar köllun eða forvitni síðustu 50 árin. Svo vill til að ég var með fremur jákvætt viðhorf til Íslam, líkt og Hege Storhaug lengst framan af.

En, um það leyti sem ég reyndi fyrir mér á mbl.blog.is, þá var ég beggja blands, en áttaði mig svo smátt og smátt á að Íslam er rót alls ills í félagsmálum vesturlanda nú síðustu árin.

Til viðbótar miklum skoðanaskiptum á blogginu, las ég Kóraninn í þýðingu Helga Hálfdánarsonar, margar frásagnir kvenna í Danmörku sem lent höfðu í slæmum sem góðum kynnum af Íslam og múslimum, og nú síðustu árin las ég bækur eins og Min afsked med islamismen eftir Ahmed Akkari, Frjáls eftir Ayaan Hirsi Ali, Dóttirin eftir Hannah Shah (dulnefni), Barist fyrir frelsinu eftir Björn Inga Hrafnsson og svo Þjóðaplágan Íslam. Auk þess fleiri bækur, bæði um Íslam og aðra minni söfnuði kristinna sem glíma við svipuð vandamál og söfnuðir múslima.

Svona reynslu og lestur aflar fólk sér ekki á sama hraða og að fylgjast með knattspyrnuleikjum.

Sigurður Rósant, 27.5.2016 kl. 00:09

6 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Jón ég er viss um að hræðsla á alþingi við að vera kallaður rasisisti er mikil en þeir sem láta sér annt um þjóðina veigra sér vegna árása á þá. Það hlýtur að vera hægt að taka á þessu máli með einhverja taktíkt. Vondu múslímarnir eru eins og vonda colesterol-ið en þeir hafa blinda stefnu að vinna trúarstríð en ekki lönd. Ég legg til að fólkið sendi forseta strax beiðni um að þessi útlendingalög verði tekin af umræðu og sér herlög sett á vegna neyðarástands í heiminum.  

Valdimar Samúelsson, 27.5.2016 kl. 08:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1212
  • Sl. sólarhring: 1218
  • Sl. viku: 6857
  • Frá upphafi: 2277495

Annað

  • Innlit í dag: 1127
  • Innlit sl. viku: 6365
  • Gestir í dag: 1055
  • IP-tölur í dag: 1021

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband