Leita í fréttum mbl.is

Sýndargóðmennskan

Frans páfi flaug til eyjunnar Lesbos og náði í 12 flóttamenn, en skyldi 1000 aðra eftir í flóttamannabúðunum. Hann hvatti aðra til að vera jafn góðir og hann. Frans páfi þarf ekki að óttast atvinnumissi þó flóttamenn streymi inn, þó það e.t.v. grafi undan stofnuninni sem hann veitir forstöðu. Hann þarf ekki að búa í hverfum innflytjenda þar sem lögreglan fer ekki inn í nema þungvopnuð.

Í nýafstöðnum kosningum til forseta í Austurríki sameinaðist elítan til hægri og vinstri til að koma í veg fyrir að frambjóðandi með aðrar áherslur í pólitík en Evrópska uppgjafarstefnan næði kjöri. Litlu munaði þó, þrátt fyrir að Afturhaldið, Íhaldið, Vinstrið, Græningjar og aðrir sameinuðust gegn honum. Það sem hins vegar var athyglisvert er að Nobert Hofer var frambjóðandi verkalýðsins. Hann naut stuðnings um 80% verkalýðs Austurríkis, en velferðarfarþegar ríkisins,sem eru áskrifendur að laununum sínum kusu nánast án undantekningar fulltrúa Græningja, Afturhalds og Sósíalista.

Inn í Evrópu hafa streymt innflytjendur hundruðum þúsunda saman. Flutningur fólks frá Afganistan, Sýrlandi, Norður Afríku og víðar frá til Evrópu er blómlegur atvinnuvegur sem skilar fólkinu sem sér um flutningana gríðarlegum fjármunum. Eftir sitja þeir verst eru settu sem hafa ekki peninga til að borga.

Þegar elítan í Evrópu ber sér á brjóst með Fransis páfa í broddi fylkingar og krefst þess að landamærin verði opnuð þá er það af sýndargóðmennsku. Fjármunirnir mundu nýtast betur til að aðstoða þá mörgu sem á þurfa að halda í námunda við heimkynni þeirra.

Einn Sýrlendingur flytur á annan tug barna með sér og danskir skattgreiðendur þurfa að standa undir velferðarframlögum til þeirra. Þau framlög ein mundu duga til að sjá tug ef ekki hundrað sýrlenskra flóttafjölskyldna í Tyrklandi fyrir mannsæmandi lífskjörum. En sýndargóðmennskunni verður að þjóna.

Elítan sem knýr á um viðhald sýndargóðmennskunnar nýtur þess með mismunandi hætti. Sumir geta nýtt sér ódýrt vinnuafl sem lækkar laun þeirra lægst launuðu. Aðrir fá hálaunavinnu sem sérfræðingar vegna elítustefnu opinna landamæra. Ekkert af þessu fólki þarf að þola þá áþján og lífskjaraskerðingu sem margir venjulegir borgarar þurfa að líða vegna þessa í formi versnandi lífskjara, verra velferðarkerfis, öryggisleysis og hruns fasteignaverðs þar sem innflytjendur setjast að í stórum stíl.

Í öllum fréttatímum RÚV er fjallað um hvað margir flóttamenn hafi farist þann daginn á Miðjarðarhafinu eða verið bjargað. Eina leiðin til að koma í veg fyrir að flóttamenn farist á Miðjarðarhafinu er að loka fyrir þá aðkomuleið og snúa öllum til baka sem koma á lekahripum í þeirri von að tekið verði á móti þeim opnum örmum. Það er sú leið sem Ástralir fóru með góðum árangri. En með óbreyttri stefnu munu fleiri farast og fleirum verða bjargað og aukinn fjöldi koma inn í Evrópu með þeirri lífskjaraskerðingu, auknu öryggisleysi almennra borgara og eyðileggingu velferðarkerfisins sem því óhjákvæmilega fylgir.

Við Íslendingar eigum að gera góðir við þá sem eiga um sárt að binda. En við eigum ekki að gera það á grundvelli sýndargóðmennsku Fransis páfa, Angelu Merkel og pótintáta af þeirra tegund. Við eigum að verja myndarlegum fjárhæðum til hjálparstarfs fyrir flóttafólk og styðja það í nágrenni við heimili sitt eins og raunar flóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna byggir á.

Við eigum að taka stjórn á eigin landamærum. Við eigum að vísa ólöglegum innflytjendum burt innan 48 klukkustunda eftir að þeir kemur til landsins og tryggja að þeir fari ekki út af móttökustað.

Í stað þess erum við með rútubílafarma af ólöglegum innflytjendum sem Útlendingastofnun bagsar með svo mánuðum skiptir allt á kostnað íslenskra skattgreiðenda og valsa þessir ólöglegu innflytjendur um að eigin vild eftirlitslausir. Auk þess fá þessir ólöglegu innflytjendur meira frá íslenska ríkinu en innlendir öryrkjar eða aldraðir almennt. Svo ranglega er nú skipt hinum veraldlegu gæðum í ríki sýndargóðmennskunnar.  

Við höfum skyldum að gegna við framtíðina við börn okkar og barnabörn. Viljum við að þau fái að njóta þess sem við höfum notið? Öryggis, mannréttinda, velferðar? Sé svo þá skulum við forðast að eyðileggja velferðar- og öryggisnet íslensks samfélags á grundvelli sýndargóðmennskunnar.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jón. Góð og þörf grein hjá þér. En það eru svo fáir sem eru tilbúnir að ræða þessi mál án öfga og upphrópana. Málefnið geldur fyrir það.

Með kveðju.

SB.

Sigurður Bjarklind (IP-tala skráð) 29.5.2016 kl. 17:22

2 Smámynd: Jón Magnússon

Því miður þá er þetta alveg rétt hjá þér Sigurður.

Jón Magnússon, 29.5.2016 kl. 18:04

3 Smámynd: Theódór Norðkvist

Hvað skyldi nú gullið og allir dýrgripirnir í Vatikaninu duga til að lina fátækt margra milljóna? Síðan kemur páfinn með enn eitt leikrit hræsninnar, 12 manns. Það er ekki að ástæðulausu að margir kristnir menn telja Páfadóm vera Andkrist/dýrið í Opinberunarbókinni.

Theódór Norðkvist, 29.5.2016 kl. 20:14

4 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Móttaka flóttamanna getur verið einnig verið góður business fyrir "góða fólkið", sem færi ýmis störf og tekjumöguleika. Þannig er ansi góður business að reka flóttmannaheimili eins og t.d. á Arnarnesi þar sem gamla hælið, nú í einkaeigu að því er ég tel hýsir flóttamenn og ríkið borgar.Hjálparstofnanir svo sem Rauði krossinn bólgna út og þeir sem voru bara venjulegir starfsmenn eru allt í einu orðnir millistjórnendur með undirsáta og hærri laun. Lögfræðingar eru á þönum við að tryggja stöðu hælisleitanda og ríkið borgar o.s.fr.

Valdimar H Jóhannesson, 29.5.2016 kl. 21:02

5 Smámynd: Elle_

Enn einn frábær pistill, Jón.

Elle_, 29.5.2016 kl. 21:10

6 Smámynd: Jón Magnússon

Við skulum ekki dæma páfadóminn eftir þessum sem nú situr og við skulum ekki gleyma að þetta er elsta stofnunin í mannlegu samfélagi tæplega 2000 ára gömul. Hún ætti því að geta gert betur en þetta og búa yfir meira mannviti en Fransis páfi sýnir alla jafnan. Forverar hans síðustu tveir voru allt annarar gerðar og vöruðust pópúlisma, sem Fransis hins vegar nærist á.

Jón Magnússon, 30.5.2016 kl. 08:19

7 Smámynd: Jón Magnússon

Það er rétt Valdimar það er góður business fyrir marga að taka á móti flóttamönnum t.d. sálfræðinga, lögfræðinga, eigendur húsnæðis o.s.frv. o.s.frv. Sveitarstjórnarmenn fengu líka gullglýju í augun yfir því að geta boðið fram aðstöðu og fá fullt af peningum frá ríkinu. Þar eru skammtímasjónarmið tekin fram yfir langtímasjónarmið. Samanber dapurlegt dæmi um Akranes, sem hélt að þeir væru að grípa Gullgæsina þegar þau ákváðu að taka á móti flóttamönnunum sem Ingibjörg Sólrún tók á móti til að tryggja atvkvæðí fyrir sig og sína í Öryggisráð Sameinuðu  þjóðanna um árið.

Jón Magnússon, 30.5.2016 kl. 08:21

8 Smámynd: Jón Magnússon

Takk Elle. Sona ummæli eru heldur betur uppörvandi.

Jón Magnússon, 30.5.2016 kl. 08:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 342
  • Sl. sólarhring: 1039
  • Sl. viku: 6086
  • Frá upphafi: 2277837

Annað

  • Innlit í dag: 325
  • Innlit sl. viku: 5631
  • Gestir í dag: 321
  • IP-tölur í dag: 314

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband