Leita í fréttum mbl.is

Heyra má ég erkisbiskups boðskap en ráðinn er ég í að halda hann að engu.

Um aldir var um það deilt í kristna heiminum, hvort "Guðs lög" þ.e. klerkaræði eða almenn lög leikra manna skyldu vera æðri. Frægasta dæmið í Íslandssögunni um þetta, eru orð Jóns Loftssonar, Oddaverja sem mestur var höfðingi á landi hér í sinni tíð þegar hann sagði þegar biskup krafðist ættaróðals hans á grundvelli kirkjulaga:

"Heyra má ég erkibiskups boðsskap, en ráðinn er ég í að halda hann að engu og eigi hygg ég, að hann vilji betur eða viti, en mínir foreldrar Sæmundur hinn fróði og synir hans." Biskup hótaði þá að bannfæra Jón, en hann lét sig ekki og biskup þurfti frá að hverfa og var það hin mesta sneypuför.

Í kjölfar umbrota á síðmiðöldum og í kjölfar sigurs heimspeki upplýsingaaldarinnar, var oki kirkju og  klerkadóms létt af þjóðum kristna heimsins. Í kjölfarið varð sú þróun,að Evrópa varð forustuálfa um tjáningafrelsi,lýðréttindi, almenn mannréttindi og lýðræði. Af því leiddu framfarir í verklagi og skipulagi sem gerði Evrópu ekki bara að forustuálfu hvað varðar réttindi einstaklingsins heldur einnig á öllum sviðum verklags og viðskipta.

Því miður hefur Íslamski heimurinn ekki gengið í gegn um sama þróunarferli og því hamlar stirnað klerkaræði framþróun í þeim löndum sem klerkaræðið ríkir og á mikið undir sér.

Svo merkilega brá við þ.29.júní s.l., að biskupinn yfir Íslandi lýsti því yfir ásamt nokkrum prelátum sínum, að kirkjulög væru eftir allt saman æðri lögum leikra manna settra á Alþingi. Biskupinn og prelátarnir sögðu að hvað svo sem menn hefðu af sér brotið þá skyldu þeir eiga kirkjugrið án þess að útfæra það frekar. Helst var að skilja að kæmist afbrotamaður í kirkju þá gætu lögleg lýðræðislega kjörin stjórnvöld ekki komið fram lögum. Þessi skoðun biskups er afturhvarf til viðhorfa sem voru við lýði í kirkjurétti fyrir um 800 árum, en eru fyrir löngu aflögð, sem betur fer, lýðræði og borgaralegum réttindum til heilla.

Það er ekkert í íslenskum lögum, sem veitir sökuðum mönnum eða afbrotafólki vernd í kristnum kirkjum. Það væri ósvinna hin mesta að ætla að færa það í lög nú eða af kirkjunni að ætla að taka sér það vald. Þá yrði farið á svig við grunnréttinn um jafnrétti borgaranna hvað þá trúfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar. Þeir sem ekki kæmust í kirkju yrðu dæmdir og tuktaðir en þeir sem í kirkjuna kæmust fengju að sinna störfum kórdrengja allt undir náð biskupsins og preláta hennar. Hætt er þó við að þeir yrðu seint hvítskúraðir kórdrengir.

Í Laugarneskirkju var fyrir mannsöfnuður nokkur þ.29 júní og vildi varna því að lögreglan gæti framfylgt lögum. Allt var undirbúið og leikritið æft. Myndavélum var komið fyrir í   áróðursskyni fyrir aðstandendur "opinna landamæra" og gott fólk sem vill ekkert illt sjá eða heyra. Prelátarnir og aðrir sem að þessu stóðu og rugluðu um kirkjugrið í fyrirfram tilbúnu leikverki sínu, voru í raun að gerast brotlegir við 106.gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og eftir atvikum einnig 107.gr.sömu laga. 

Viðbrögðin létu ekki á sér standa öfgatrúleysingjafélagið Vantrú lýsti yfir stuðningi við þetta framferði Biskupsins yfir Íslandi og preláta hennar í Laugarneskirkju og stór hópur fólks sem þekkt hefur verið fyrir þjónkun við ákveðin kristnifjandsamlega isma máttu vart vatni halda af gleði yfir þessari lagalegu sjálftöku prelátanna í Laugarneskirkju. Fréttastofa RÚV sýndi áróðursmyndbandið svikalaust og Fréttablaðið sagði að fólk væri almennt slegið óhug yfir aðgerðum lögreglunnar. Sá óhugur virðist þó mjög staðbundinn við andstæðinga kirkju og kristni, biskupinn og legáta hennar.

Innanríkisráðherrann hafði það eitt að segja um málið að lögreglan væri sífellt að skoða verkferla sína. Það er heldur betur munur fyrir lögreglu og Útlendingastofnun að hafa yfirmann eins og Innanríkisráðherra sem stendur aldrei með sínu fólki og lögunum í landinu heldur sýnir í besta falli hlutleysi eða gengur þá í lið með upplausnaröflunum.

Nú hlítur það að vera verkefni ríkissaksóknara að kalla eftir rannsókn á málinu með tilliti til þess hvort prelátarnir og eftir atvikum biskupinn hafi brotið gegn 106.gr. sbr. 107.gr. almennra hegningarlaga. Ríkissaksóknara er þó nokkur vorkunn að ætla að framfylgja lögum í landinu og lögboðnum starfsskyldum sínum að þessu leyti þar sem að hennar æðsti yfirmaður mundi þá e.t.v. gera kröfu um endurskoðun á öllum verkferlum og fordæma það að saksóknari hagaði störfum sínum með þeim hætti að allir væru jafnir fyrir lögunum.

Vitið þér enn eða hvað?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Góður pistill kæri Jón.

Ekki láta þér þó detta í hug að allir prelátar þjóðkirkjunnar séu byskupi órum sammála í þessu, hvað þá prelátunum í Laugarneskirkju. Þó eru ótrúlega, raunar óþ´gilega margir, preláta landsins sammála þessu. Góður er, og þarfur seem þinn, pistill Jóns Vals um þetta efni og læt ég fylgja slóðina á hann :

.

http://jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/entry/2175756/

.

.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 30.6.2016 kl. 11:35

2 identicon

Sæll Jón, ég segi það aftur. Þú þessi skemmtilegi maður og það meina ég. Ég hvet þig með vinsemd og virðingu til að líta í kring um þig og sjá allt það góða í heiminum, ekki aðeins það vonda, því ef þú gerir það ekki þá verður þetta erfitt. Þú getur ekki þráast svona við fram eftir öllum aldri Jón.

Það eru mörg mörg málefni sem maður með þína menntun og reynslu getur unnið mikið gagn, þetta mál er ekki eitt þeirra.

bkv

g

Gunnar Waage (IP-tala skráð) 30.6.2016 kl. 16:38

3 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir það Prédikari. Ég veit að margir kirkjunar þjónar eru æfir út í biskupinn og þessa Laugarnesvillu. En þeir þora ekki að láta í sér heyra því miður. Óttinn við reiði öfgafólksins um opin landamæri og nytsömu sakleysingjanna sem halda að það sé verið að hjálpa fólki í neyð er svo mikill.

Jón Magnússon, 30.6.2016 kl. 17:06

4 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir hólið Gunnar minn. Ég geri það daglega að líta í kring um mig og horfa á það góða í heiminum og fegurð fjallanna. Ég veit hins vegar að það er rétt hjá þjóðskáldinu sem kvað: Guð það hentars heimi fann það hið blíða blandað stríðu, allt var gott sem gjörði hann.

Ég óska mér ekki þess hlutskiptis Gunnar að þurfa stöðugt að þurfa að skrifa greinar til varnar tjáningarfrelsi og kristilegum gildum í landinu og benda á þá ógn sem steðjar að íslensku samfélagi. Það er hins vegar þannig Gunnar að þetta er mesta alvörumálið sem við stöndum frammi fyrir og ef við töpum því að hér sé ein þjóð í einu landi þá er miklu glatað. Við getum rifist um kvótakerfi, verðtryggingu, okur gagnvart neytendum og þá má laga og lagast vonandi sem fyrst, en þau mál hlaupa ekki frá okkur. Hins vegar er það svo að ef við töpum samfélagsgerðinni og hér fara að myndast ghettó eða samfélög sem jafnvel tala ekki íslensku og hata og fyrirlíta mannréttindi og kristilega arfleifð þjóðarinnar þá náum við því aldrei til baka. Þess vegna neyðist ég þessi skemmtilegi maður til að vera í vörninni hvað þetta varðar.  Kæmir þú og fleiri af afli í þessa baráttu með mér Gunnar, þá mundi ég hafa meiri tíma til að fjalla um annað og skemmtilegra sem lífið hefur upp á að bjóða.

Jón Magnússon, 30.6.2016 kl. 17:13

5 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Það er ekki að sjá á myndbandinu að nokkur hefi verið að reyna að hindra lögreglu í starfi þegar þeir tóku mennina. Ég sá allavega engan reyna að stoppa þá. Einn gekk að lögreglumanni og sagði honum að sá sem hann væri að setja í járn væri bara 16 ára og var fyrir vikið beittur algerlega tileflnslausu ofbelsi af hálfu lögreglumannsins sem sló hann í andlitið. Það ætti að sjálfögðu að ávíta þennan lögreglumann fyrir það tilefnislausa ofbeldi.

Ég hel að það hafi verið harkan í aðgerðum lögreglunnar sem fór fyrir brjóstið á fólki en ekki það að þeir hafi þurft að framfyljga þeirri stjórsýsluákvörðun sem ákveðin var af Útlendingastofnun. Kirkjunnar menn voru ekki að mótmæla lögunum sem stjórnsýsluákvörðunin byggir á heldur stjórnsýsluákvörðuninni sem slíkri sem hefði verið hægt að hafa allt öðruvísi en samt innan ramma laganna. Það er fyrst og fremst beiting laganna en ekki lögunum sjálfum sem fólk er að mótmæla.

Hvaða fylgjandur "kristinfjandsamlega isma" ert þú að tala um?

Sigurður M Grétarsson, 30.6.2016 kl. 17:39

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þakkir fyrir góðan og þarfan pistil.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.6.2016 kl. 19:07

7 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég held ekki að kirkjugrið hafi nokkurn tíma verið ætluð afbrotamönnum. Þeir menn sem leituðu skjóls í Laugarneskirkju voru heldur ekki afbrotamenn. Þeir voru flóttamenn.

Þorsteinn Siglaugsson, 30.6.2016 kl. 20:02

8 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka góða grein og þetta voru undarleg skot frá Gunnari en hann er líklega með margar kinnnar.

Ég tel að þessar aðgerðir kirkjunnar eigi að kæra og sérstaklega biskup en hann er að fæla kristna frá kirkjunni.

Við í þessu samfélagi tökum ekki svona aðgerum sem leik og hvað þá aðgerðir NoBorder fólksins en þar á að setja lögbann og nálgunar bann á alla sem tilheyra og hjálpa þessum ef ég ma segja Anarkistum. 

Valdimar Samúelsson, 30.6.2016 kl. 20:26

9 Smámynd: Elle_

Góður pistill eina ferðina enn.  Skil ekkert í Gunnari Waage en haltu þínu striki Jón. 

Laugarnesvilla er gott orð yfir þessa villu og mikil skömm.  Lögreglumenn voru þarna að vinna sína vinnu og eins og ég best sá og skil þig, í samræmi við lög.  Persónulega ber ég enga virðingu fyrir presti kirkjunnar og ekki í fyrsta sinn sem þessi kona kemur fram eins og verndari þeirra sem brjóta lög.

Elle_, 1.7.2016 kl. 11:28

10 Smámynd: Jón Magnússon

Sigurður M. Grétarsson það liggur fyrir núna að þetta var sviðssetning af hálfu Kirkjunnar með blessun biskupsins yfir Íslandi. Ég er ekki sammála þér að lögreglan hafi ekki staðið faglega að þessu máli í alla staði. Lögreglan verður alltaf að ráða við aðstæður og þess vegna verður að stugga við fólki sem er að blanda sér í mál sem því kemur ekki við og það var gert og ekkert annað. Fólki er þvert á móti misboðið Sigurður Grétar yfir því hvernig kirkjan stendur að svona málum og hjálpar til við að gera áróðursmyndband og tálmar starfi löreglunnar. Áttar þú þig á að þessir lögreglumenn eru að gegna skyldustörfum og þeir eiga konur og börn það er verið að reyna að útmála þá sem einhver illmenni. Þetta var óþokkabragð af hálfu þessara vankristnu forustumanna Íslensku þjóðkirkjunnar.

Jón Magnússon, 1.7.2016 kl. 21:59

11 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir það Heimir.

Jón Magnússon, 1.7.2016 kl. 21:59

12 Smámynd: Jón Magnússon

Þeir voru ekki flóttamenn Þorsteinn. Þeir voru ólöglegir innflytjendur. Á því er mikill munur. Það var búið að fjalla um mál þeirra af þeim fagaðilum sem hafa með málið að gera og þetta var niðurstaðan. Niðurstöðu yfirvalda verða menn að hlýða hvort sem þeim líkar betur eða verr líka pokaprestar.

Jón Magnússon, 1.7.2016 kl. 22:01

13 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir það Valdimar. Sammála.

Jón Magnússon, 1.7.2016 kl. 22:01

14 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Elle sammála þér.

Jón Magnússon, 1.7.2016 kl. 22:02

15 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Jón. Það var ekki búið að fjalla um mál þessara manna af fagaðilum. Það var ákveðið að nýta sér Dyflinnar reglugerðina til að komast hjá því að fjalla um mál þeirra af fagaðilum. Og það er þessi staefna stjórnvalda að nýta sér alltaf þá heimild sem er til staðar í Dyflinnar reglugerðinni til að komast hjá því að afgreiða mál hér sem er verið að mótmæla. Eitt af því sem var verið að mótmæla þarna var að ekki skyldi skoðað hversu gamall yngri maðurinn er þar sem líklegt er að hann sé barn að aldri. 

Sigurður M Grétarsson, 4.7.2016 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 21
  • Sl. sólarhring: 72
  • Sl. viku: 874
  • Frá upphafi: 2291640

Annað

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 773
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband