Leita í fréttum mbl.is

500 þúsund deyja árlega úr malaríu og ábyrgð umhverfisverndarsinna.

Í frétt Daily Telegraph 2. júní kom fram að árlega deyja 500.000 einstaklingar vegna malaríu. Á tveggja mínútna fresti deyr barn úr malaríu. Hér er á ferðinni mannlegur harmleikur vegna áhrifa öfga umhverfisverndarsinna.

 Verulegur árangur hafði náðist í baráttunni gegn malaríu fram á áttunda áratug síðustu aldar. Þá var eiturefnið DDT bannað vegna áróðurs og áhrifa öfga umhverfisverndarsinna.

DDT bjargaði uppskeru, skógum,nytjadýrum og fólki. Árið 1970 taldi stofnunin: U.S National Academy of Science:, að DDT hefði bjargað meir en 500 milljón mannslífum. Ýmsir þar á meðal vísindamenn halda því fram að DDT sé ekki skaðlegt fyrir umhverfið og ætti ekki að banna.

Á Sri Lanka voru árið 1948 voru tæplega 3 milljónir sem smituðumst af malaríu og um 8 þúsund dauðsföll á ári. Með notkun DDT þá  náðist sá árangur árið 1963 að aðeins 17 voru smitaðir af malaríu og ekkert dauðsfall. Eftir að DDT var bannað fjölgaði malaríusmitum á Sri Lanka í 2.5 milljónir nokkrum árum síðar.

Hundruðir þúsunda dóu í Afríku eftir að DDT var bannað. Í Suður Ameríku gekk vel að ráða við malaríu þar sem DDT var notað.

Kostnaðurinn við að úða hús með DDT kostar um 300 krónur á ári. Önnur efni kosta margfalt meira og eru ekki eins áhrifarík.

Rík lönd sem eiga ekki við ógn malaríunar að glíma hóta fátækum löndum refsiaðgerðum ef þau nota DDT. 

Þjóðkirkjan, aðrar kirkjudeildir og annað velmeinandi fólk, sem er annt um fátækt fólk, ætti að taka höndum saman um að vinna bug á malaríunni og nota áhrifaríkusta efnið sem við eigum kost á til að koma í veg  fyrir að hundruðir þúsunda deyi árlega.

Væri það ekki verðugt og í raun skylduverkefni?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

DDT var nú reyndar ekki bannað að ástæðulausu. Þetta er töluvert skaðlegt efni fyrir umhverfið og getur líka haft skaðleg áhrif á fólk. Hér eru t.d. ágætar, hlutlausar upplýsingar um þetta efni: http://npic.orst.edu/factsheets/ddtgen.pdf

Þorsteinn Siglaugsson, 7.7.2016 kl. 23:10

2 identicon

Sæll, minn ágæti. Veistu að í gær létust tveir í Reykjavík, AF MANNAVÖLDUM. Ég er ekki að tala um hnífsstungur í miðri Dagsborg, nei völdum mengunar andrúmsloftsins sem knúið er áfram af hraðahindrunum, hægja á og gefa í. Öll sú mengun sem það skapar er í boði Reykjavíkurborgar og reyndar með fullu vitorði Borgarstjórans ef hann þá les nokkuð um heilbrigðismál. Enginn segir neitt.

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 7.7.2016 kl. 23:21

3 Smámynd: Jón Magnússon

Það eru deildar meiningar Þorsteinn um skaðsemi DDT fyrir umhverfið. En öll eiturefni hafa ákveðin skaðleg áhrif. DDT var virkasta og besta efnið til að vinna gegn malaríu og bannið hefur kostað milljónir lífið. Það er staðreyndin í málinu.

Jón Magnússon, 8.7.2016 kl. 09:25

4 Smámynd: Jón Magnússon

Liggur það fyrir Örn að tveir hafi látið lífið út af þessu? Ég er sammála þér um hraðahindranirnar. Þær eru gjörsamlega úr öllum takti við nokkra skynsemi. Ég mun styðja þann flokk í næstu borgarstjórnarkosningum sem lofar að fækka hraðahindrunum og hafa þær bara þar sem nauðsyn krefur. Hugsaðu þér Örn ég þarf að fara í gegn um 5 hraðahindranir til að komast út úr hverfinu mínu ef ég ek vesturleiðina, en 8 ef ég ek austurleiðina. Hvoru tveggja um kílómetra löng leið. Það þyrfti ekki að vera nema 1 á vesturleiðinni og 2 á austurleiðinni til að tryggja öryggi gangandi vegfarenda.

Jón Magnússon, 8.7.2016 kl. 09:29

5 identicon

Ég er að reyna að vekja athygli á mengunarmálum af völdum bíla. Nýkjörinn borgarstjóri í London var með þetta líka á lofti og nefndi tölu fallina árlega þar í borg. Einföld þríliða sýnir um 500 árlega í Rvk. Ég þekki London mjög vel, utan Oxford Street og hef fundið eina þar í borg, mjög lág, ekkert í stíl við fjallgarðana hér á landi. Að stöðugt vera að bremsa og gefa svo í, eykur eldsneytiseyðslu um 70-80% sem þýðir nær tvöfalda mengun.

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 8.7.2016 kl. 15:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 40
  • Sl. sólarhring: 886
  • Sl. viku: 2426
  • Frá upphafi: 2293977

Annað

  • Innlit í dag: 39
  • Innlit sl. viku: 2206
  • Gestir í dag: 39
  • IP-tölur í dag: 39

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband