Leita í fréttum mbl.is

Hræsnarar allra landa sameinist.

Óskilgreindur hópur kvenna ætlar að mótmæla á Arnarhóli niðurstöðu lýðræðislegra kosninga í Bandaríkjunum.

Mótmælakonurnar telja það brýnast í kvenfrelsismálum að láta Trump finna fyrir mótmælum og andúð vegna áratugs gamlla ummæla um konur, sem hann hefur beðist afsökunar á og eiginkona hans fordæmt. Hverju breyta þessi mótmæli. Engu. Þau eru ömurleg hræsni og þjóna ekki tilgangi í réttindabaráttu kvenna.

Mér til sárra leiðinda sé ég nafn fyrrverandi utanríkisráðherra Lilju Alfreðsdóttur tengd mótmælunum. ´Hingað til hef ég haft meira álit á henni en það að hún tæki þátt í þessu ómerkilega lýðskrumi, sem "fræðimaðurinn" Eiríkur Bergman kallar pópúlisma.

Vinstri öfga pópúlistinn Birgitta Jónsdóttir er að sjálfsögðu í forsvari. Við því mátti búast. Það er hins vegar illskiljanlegt að konur eins og t.d. Lilja og ýmsar aðrar sem þarna eru á skrá og eru bærar til að sjá hlutina af raunsæi og skynsemi skuli leggja nafns sitt við þessa ömurlegu hræsni.

Það er víða pottur brotinn hvað varðar réttindi kvenna. Konum er víða misboðið. Réttindi þeirra eru skert m.a. hefur Íslamska ríkið um árabil hneppt konur sigraðra trúarhópa og annarra andstæðinga sinna í kynlífsþrælkun, myrt og svívirt. Konur víða í löndum Íslams njóta mjög takmarkaðra réttinda og mun minni en karlar.

Ég hef ítrekað skorað á kvenréttindahreyfingar og samtök að taka undir með mér í baráttu gegn þeirri svívirðilegu kynlífsþrælkun og þrælasölu  kvenna, sem viðgengst í heiminum og er jafnvel að finna hér  á landi. Þar er barátta sem verður að taka og þeir sem unna réttlæti hvort heldur konur eða karlar þurfa að taka höndum saman um að uppræta. En ég hef hingað til ekki orðið þess var að kvennahreyfingar hér á landi hafi sinnt þessum réttindamálum kvenna.

Þær Arnarhólsstöllur hafa ekki haft neitt um undirokun og kynlífsþrælkun kvenna að segja undanfarin ár. Þær hafa ekki marsérað á Arnarhól. Jafnvel ekki boðað til þögulla mótmæla eða nokkurs gagnvart þessari svívirðu. Lilja Alfreðsdóttir sýndi þessum málum auk heldur engan áhuga meðan hún var utanríkisráðherra Íslands. Hvað kom eiginlega fyrir hana núna?

Þegar þetta háttalag mótmælakvenna gegn Bandaríkjaforseta er haft í huga og virt í skynrænu samhengi þá veður þessum mótmælum á Arnarhóli kl. 14 í dag ekki gefið annað heiti en: Ömurleg hræsni.

Mótmælakonurnar á Arnarhóli kl. 14 í dag eru hluti hóps vinstri öfga-kvenna- pópúlískra hreyfinga, sem í dag sameinast í hræsnisfullum aðgerðum á sama tíma og þær gera ekkert til að koma í veg fyrir raunverulegt misrétti sem konur eru beittar.

Vei yður hræsnarar.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sannarlega, nafni, hefurðu hér á réttu að standa: að það ekki alvarlegast í kvenréttinda-málefnum víða um heim, að Donald Trump hafi sleppt út úr sér grófri karlrembu fyrir tveimur áratugum. Hvað er að þessum mótmælakonum, sáu þær ekki brýnni tilefni til að standa með rétti kúgaðra kynsystra sinna en þetta?!

Þú rekur hér réttilega, hvernig konur víða í löndum islams njóta mjög takmarkaðra réttinda, eru teknar af lífi opinberlega fyrir hórdóm í Saudi-Arabíu, kristnar konur myrtar og svívirtar á áhrifasvæði Ríkis islams, jafnvel neyddar í kynlífsþrælkun og þrælasölu, án þess að Kvenréttindasamband Íslands hræri legg eða lið, enda eru það samband nú komið undir stjórn harðlínu-femínista vinstra og hægra megin í pólitík. Og allar eiga þeir það sameiginlegt að óvirða ...

rétt ófæddra kvenna !

Ræðumenn dagsins gleymdu sem oftar því, sem mikilvægast er, sjálfri forsendu allra annarra réttinda, réttinum til lífsins.

Íslenzkar konur! Á hverju ári eru nálægt 500 kynsystur ykkar sviptar réttinum til lífs á sjúkrahúsum landsins. Eiga þau ófæddu MEYBÖRN ekki líka tilkall til samúðar ykkar og órofa samstöðu?

Jón Valur Jensson, 21.1.2017 kl. 22:14

2 Smámynd: Bjarni Jónsson

Þetta er mmjög góð og þörf hugvekja hjá þér, Jón, og þessi mótmæli á Arnarholi verðskulda einkunnina "hræsni". Þau eru algerlega óþörf og bæta ekki hlut nokkurs manns.  Hvers vegna er ekki safnazt saman og kvennakúgun Íslams mótmælt ?  Hún er komin til Íslands. 

Bjarni Jónsson, 22.1.2017 kl. 09:41

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Frábær pistill að venju Jón.

Tek undir með öllum hér að ofan.

Ömurleg hræsni.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 22.1.2017 kl. 13:31

4 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Takk fyrir þennan pistil Jón, sammála með Lilju, kemur á óvart. Hins vegar virðast margir okkar alþingismanna vera "þrælar" Tíðarandans.

Tíðarandinn er harður húsbóndi, kallaður " Veldisproti guðleysisins " í ritningunni. Hins vegar er hann eins og vindurinn, þú veist aldrei hvaðan hann blæs. 

Verð að segja að Trump hefur það a.m.k. fram yfir pírata þingmenn, að hann játar afglöp sín og biðst fyrirgefningar. 

Kristinn Ásgrímsson, 22.1.2017 kl. 15:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 601
  • Sl. sólarhring: 627
  • Sl. viku: 2987
  • Frá upphafi: 2294538

Annað

  • Innlit í dag: 558
  • Innlit sl. viku: 2725
  • Gestir í dag: 529
  • IP-tölur í dag: 512

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband