Leita í fréttum mbl.is

Virkið í Sýrlandi

Frá því ér skýrt í fréttamiðlum að hersveitir stjórnarhers Sýrlands hafi sótt fram og nálgist nú rammlega víggirt virki Bandaríkjamanna og Breta í norðausturhluta landsins og hafi í gær verið um 15 mílur frá því.

Hvað þá rammlega víggirt virki Bandaríkjamanna og Breta í frjálsu og fullvalda ríki?????? 

Bandaríkjamenn sáu líka um þjálfun vígamanna í Afganistan sem síðan urðu Al Kaída o.fl. o.fl. Öll þeirra afskipti af þessum heimshluta síðustu áratugina hafa verið óverjandi og fætt af sér hörmungar sem þeir skilja ekki sjálfir að þeir bera alla ábyrgð á.

Fulltrúar Bandaríkjastjórnar segja að þetta sé virki þar sem þeir þjálfi vígamenn til að berja á Ísis. Engum sögum fer þó af sannleiksgildi þeirra staðhæfinga.

Í framhaldi og samfara þessum fréttum hafa talsmenn Bandaríkjastjórnar farið mikinn og haldið því fram að Assad stjórnin væri að láta brenna lík stjórnarandstæðinga sem hafi verið teknir af lífi og tölurnar í því sambandi eru með slíkum ólíkindum að skv. þessu þá minnir þetta á hvernig staðið var að verki í Auswitch fangabúðunum í Póllandi. Allt er þetta með ólíkindum.

Vestrænir fréttamiðlar hafa algjörlega brugðist í frásögnum af því sem er að gerast í Sýrlandi og flutt einhliða fréttir þóknanlegar ríkisstjórnum Bandaríkjanna, Bretlands, Saudi Arabíu og Flóaríkjanna, sem stóðu fyrir upphafi borgarastyrjaldarinnar í Sýrlandi og hafa fjármagnað uppreisnarmenn og leitt miklar hörmungar yfir borgara þessa ríkis.

Á sama tíma og vestrænir fjölmiðlar fluttu ítarlegar fréttir um hörmungar uppreisnarfólksins í Aleppo þegar uppreisnin var brotin á bak aftur og ítrekað var þess krafist að sókn stjórnarhersins yrði stöðvuð af mannúðarástæðum, þá hafa þeir hinir sömu fjölmiðlar þagað þunnu hljóði yfir ástandinu í Mosul sem Íraksher með stuðningi Bandaríkjanna o.fl. sækir nú að.

Gildir allt annað um hörmungar borgara Mósúl en Aleppó? Af hverju fáum við ekki hlutlægar fréttir af ástandinu mér er spurn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vel fram fært ... gott hjá þér. Fyrir löngu kominn tími til að fólk vakni upp og byrji að spyrja spurninga.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 17.5.2017 kl. 19:37

2 identicon

Sæll Jón

Ég er alveg sammála þér hérna, nú og þetta minnir óneitanlega á lygarnar um að gjöreyðingarvopn (WMD) væru í Írak, til þess eins þá, að hefja stríð gegn Írak 2003. Nú lygarnar um að borgarstríð væru í Líbýu virkuð líka fínt til þess eins að hefja stríð gegn Líbýu (Libya War Was Based on Lies, Bogus Intelligence, NATO Supported).  

Við áttum einnig að kaupa þessar sömu lygar um að borgarstríð væri í gangi Sýrlandi 2011, nú og við áttum alls ekkert að fá vita um að þetta væru málaliðarnir frá Saudi Arabíu og Katar (Wahhabi-istar) er Vesturlönd hefðu verið að fjármagna, þjálfa  og vopna.

Nú þrátt fyrir að hún Eva Bartlett fréttakona hafi heimsótt Sýrlandi og opinberað um þetta væri ekki borgarastríð, heldur innrásarlið málaliða frá Saudi Arabíu og Katar, halda fjölmiðlar hérna áfram þessum lygum um að borgarastríð sé og hafi verið í Sýrlandi. (Sjá hérna https://www.facebook.com/ScoopWhoopNews/videos/580686822128516/)

Þá er vitað til þess að fólk UN- ráðinu (UN Council) hafi opinberað, að þetta sé EKKI borgarastríð (UN Lady on Syria), heldur innrásarlið málaliða sem styrkt er af þjóðum eins og m.a. Saudi Arabíu, Ísrael og Katar, svo og styrkt af vesturlöndum, þá halda fjölmiðlar hér áfram og áfram þessum lygaáróðri.  Við höfum einnig frétt af þessum líka sérstaka stuðningi vesturlanda við Wahhabi-ista ISIS, sem að ritstýrðu fjölmiðlar hér passa sig á að fjalla ekki um :  

The US Seeks To Free Its Officers From The Death-Trap In Aleppo City?

RODNEY ATKINSON: BRITISH AND US TROOPS ALONGSIDE JIHADISTS IN ALEPPO

British military specialists arrive in Middle East to train Syrian rebels

BREAKING: Congress Makes Deadly Announcement, U.S. Has Been Funding ISIS For MONTHS

Updated: Syrian Special Forces captured 14 US Coalition officers captured in Aleppo

The Security Council meets in secret after the arrest of NATO officers in Aleppo

En þetta er allt saman eitthvað sem verður örugglega aldrei fjallað um í fréttum hér á landi, ekki satt?

EXCLUSIVE: Aleppo Media Centre Funded By French Foreign Office, EU and US

Aleppo: What youre not being told

K
V.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 17.5.2017 kl. 20:15

3 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Fróðleg umfjöllun.

Egilsstaðir, 17.05.2017  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 17.5.2017 kl. 20:45

4 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir það Bjarne.

Jón Magnússon, 18.5.2017 kl. 18:53

5 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir innleggið Þorsteinn. Kynni mér þetta þegar ég hef tíma til.

Jón Magnússon, 18.5.2017 kl. 18:53

6 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir það Jónas.

Jón Magnússon, 18.5.2017 kl. 18:53

7 Smámynd: Theódór Norðkvist

Góð grein. Ég fór að velta svipuðu fyrir mér, þegar ég las frétt á RÚV um fund Trumps og Erdogans. Tyrkir skilgreina YPG (Kúrda) sem hryðjuverkasamtök, en Bandaríkin líta á þá sem mikilvæga bandamenn í stríðinu við ISIS og dæla í þá vopnum.

Samt hafa Tyrkir kannski ekkert lakari rök fyrir því að líta á YPG sem hryðjuverkasamtök en t.d. Bandaríkin og Ísrael hvað Hamas og Hezbollah varðar.

Spurningin er alltaf þessi. Hversu lengi verða "okkar menn" okkar menn? Einu sinni var Osama bin Laden okkar maður (eða a.m.k. Bandaríkjanna).

Theódór Norðkvist, 18.5.2017 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 82
  • Sl. viku: 1662
  • Frá upphafi: 2291552

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1491
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband