Leita í fréttum mbl.is

Enn eitt hryðjuverkið og rödd skynseminnar.

Íslamistarnir ráðast enn gegn saklausu ungu fólki. Nú í Manchester. Þjóðarleiðtogar allt frá Guðna Th. Jóhannessyni  til Angelu Merkel hafa yfir sömu armæðis orðin og hafa verið sögð við svipuð tilvik undanfarin áratug.

Ríkisútvarpið kallar á Eirík Bergmann sem sérfræðing og hann fer einu sinni enn með ræðuna um vatn á myllu þjóðernisöfgamanna.

Nú hefur Íslamska ríkið lýst yfir ábyrgð sinni á hryðjuverkinu í Manchester og stjórnmálamennirnir láta eins og þetta sé alveg sérstakt jafnvel þó að á síðustu misserum hafi lögreglu í Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi og Danmörku tekist að koma í veg fyrir á þriðja tug hryðjuverkaárása. Þá forðast þessir aðilar að tala um að mörg þúsund vígamanna Íslamska ríkisins eru komnir til baka til Evrópulanda jafnt Norðurlanda sem Bretlands o.fl. landa. Af hverju er ekki talað um hryðjuverkaógnina sem Evrópu stafar af því fólki? Af því að það er ekki í samræmi vi pólitíska réttrúnað þöggunarinnar.

Þetta fólk hefur tekið þátt í aftökum með grimmilegum hætti, mannránum, nauðgunum og tilraunum til þjóðarmorðs á Yasídum og kristnum. En það er að sjálfsögðu velkomið heim eða hvað og allt orðið að hvítskúruðum kórdrengjum og stúlkum. "Vitið þér enn eða hvat"

Ungur maður hringdi í Bylgjuna laust fyrir kl.17 í dag og benti á að fjölmiðlar og stjórnmálaforingjar væru aldrei að tala um það sem máli skipti þegar svona hryðjuverk væru framin. Þorgeir Ástvaldsson hváði við, en ungi maðurinn benti honum á að aðalatriðið væri að fjalla um rót vandans, Íslamistarnir sjálfir og trúarrugl þeirra, innræting og áróður í moskum og víðar. Þessi ungi maður taldi þetta mikilvægara en að tala viðEirík Bergmann, jafnvel þó hann væri síður en svo hægri maður. 

Það var ánægjulegt að hlusta á þennan unga mann, koma sem fulltrúa almennrar skynsemi til að ræða þessi mál jafnvel þó hann segðist hvorki vera kristinn né hægri maður. Hvað sem því líður þá var hann málsvari þeirra staðreynda, sem stjórnmálaelítan og fréttaelítan vilja ekki horfast í augu við.

Stjórnmálamenn í Vestur Evrópu eru að hlaða í hryðjuverk nú og í framtíðinni með því að leyfa hatursáróðri Íslamistanna að hljóma í moskum og fjölmörgum öðrum samkomustöðum Múslima. Með því að gera ekki kröfu til samfélags Múslima um að koma af fullu afli gegn öfagafólki eigin trúarbragða. Að loka ekki landamærunum fyrir mögulegri hryðjuverkaógn og taka ekki upp virkt landamæraeftirlit. Að afnema ekki refsiákvæði um hatursáróður gegn hópum fólks en styrkja persónu- og æruvernd einstaklinga. Að berjast gegn þöggun og leyfa opin skoðanaskipti og fordæma þá sem telja sig eina handhafa þess sem má segja og ekki segja eins og dæmin sanna sbr. framákonu Samfylkingarinnar Semu Erlu Serdar, sem berst gegn tjáningarfrelsi annarra en sín og þeirra sem henni eru sammála. 

Meðan stjórnmálaelítan og fjölmiðlaelítan heldur áfram að dansa hrunadans vestrænnar menningar og neitar að viðurkenna staðreyndir er aðeins ein leið og það er að koma þessu fólki frá ef við viljum halda áfram að búa í frjálsu samfélagi,sem þarf ekki að eiga á hættu stöðuga ógn þeirra sem berjast gegn opnu frjálsu samfélagi, lýðræði og tjáningarfrelsi.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Það ætti að sýna Eiríki Bergmann þessa frétt. Lærdómurinn? Þjóðernisöfgamenn eru hættulegir...ef þeir snúast til Íslam.

White supremacist converts to Islam — then kills neo-Nazi pals for disrespecting his new faith

Theódór Norðkvist, 23.5.2017 kl. 21:51

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þegar múslímar fóru að streyma til vesturlanda tóku stjórnvöld þá ákvörðun að banna allt sem gæti styggt þá (múslímana).

Í stað þess að gera þá kröfu til þeirra að þeir aðlöguðust að menningu þess lands sem þeir voru komnir til fengu þeir að halda í og haga sér eins og þeir gerðu í heimalandi sínu.

Enn eru stjórnvöld á því að styggja ekki múslíma, en svo leyfist fólki að styggja alla aðra átölulaust.

Þetta leiðir til þess að múslímar ganga á lagið og gera kröfur sem öðrum leyfist ekki. Þeir taka sér landsvæði, heilu hverfin ef ekki heilu borgirnar og láta eins og það sé þeirra eigið og haga sér eins og þeim sýnist. Stjórnvöld þora ekkert að gera þar sem þau annað hvort eru svona blind eða full af ótta við þetta fólk.

Ef áfram heldur sem horfir verður íslam orðið ráðandi í allri Evrópu innan fárra áratuga.

Tómas Ibsen Halldórsson, 24.5.2017 kl. 11:22

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég heyrði líka í þessum unga manni, nafni, og sumt mælti hann ágætlega, en annað ekki, því að hann sagði kristindóminn alveg jafn slæman í þessum efnum, og var ég ekki ánægður með, að minn gamli, ágæti skólabróðir Þorgeir Ástvaldsson tók að lokum undir með honum, stuttu eftir að hann hafði talað á þennan veg. En það er margs konar reginmunur á islamstrú og kristindómi í bæði kenningu og siðferði, eins og við vitum báðir, og sér í lagi á refsisviðinu. Kristur leyfir t.d. ekki grýtingu kvenna, sem hafa haldið fram hjá manni sínum (Jóhannesarguðspj. 8.kap.), og með sama hætti vill Páll postuli, að þeir, sem stundað hafa samkynja kynlíf, geti fengið sína fyrirgefningu og verið teknir inn í söfnuðinn, þar sem þeim veitist helgun og réttlæting, með hjálp Jesú Krists og Heilags Anda (I.Kor.6.11). Allt annað blasir við í praxísnum hjá múslimum í mörgum (á 2. tug) ríkja þeirra.

Annað, minna áberandi, er það leyfi sem Kóraninn gefur múslimum til að ljúga að "vantrúuðum" (e. infidels, þar með taldir eru kristnir menn), og kallast það al-Taqiyya, sem t.d. Valdimar Jóhannesson gæti frætt betur um, en fleiri vita þó vel af sem staðreynd.* En vegna þessa getum við í raun ekki vitað, hvort lýsingar múslima á trú sinni sem friðsamlegri eru sannar eða blekking!

* Sbr. þessa athugasemd mína í umræðu rétt áðan:

http://krist.blog.is/blog/krist/entry/2196389/#comment3661811

Jón Valur Jensson, 24.5.2017 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 82
  • Sl. viku: 1662
  • Frá upphafi: 2291552

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1491
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband