Leita í fréttum mbl.is

Hinir hrjáðu flóttamenn í Evrópu

Skammsýnir stjórnmálamenn opnuðu Evrópu fyrir, að þeirra sögn, hrjáðum flóttamönnum, sem neyddust til að flýja til Evrópu. 

Víðtæk flóttamannaaðstoð var skipulögð og fjöldi herskipa og íslensk varðskip, hjálpuðu flóttamönnum á leið yfir Miðjarðarhafið á lekahripum til Evrópu, í stað þess að flytja þá til baka. Afleiðingin: Enn fleiri sækja í lekahripin og fleiri koma til Evrópu og fleiri farast á Miðjarðarhafinu. 

 Í aðdraganda kosninga í Þýskalandi er rætt um, að fjöldi flóttamannanna fer í orlof til heimalanda sinna þaðan sem þeir flúðu ofsóknir og hörmungar að eigin sögn. Velferðarfarþegar sem kallaðir eru flóttamenn koma svo aftur til að njóta allrar þjónustu á kostnað skattgreiðenda í móttökulöndunum.

Þetta má ekki ræða. Stjórnmálaelítan og fréttaelítan hafnar því að öfgalausar alvöru umræður fari fram um innflytjendamál. 

Á fundi þar sem Angela Merkel hitti stofnanda Fésbókar, kvartaði Merkel yfir því að alls kyns óþverralýður væri að skrifa á fésbók og gagnrýna innflytjendastefnu hennar og Evrópusambandsins og spurði hvort ekki væri hægt að koma í veg fyrir þetta. Fésbókarstjórnandinn svaraði og sagði. "We are working on it." Við erum að vinna í því. (Það gleymdist að skrúfa fyrir hljóðnemann og þess vegna heyrðu allir)

Þeir sem hafa slæmt mjöl í pokanum og segjast ekki sjá eftir neinu eins og Merkel hermir nú eftir Edith Piaf, geta það ef þeir eru ekki minntir á eigin syndir og afglöp. En nú eru þýsku fjölmiðlarnir farnir að verða svolíti óþægilegir. Merkel gæti e.t.v farið að dæmi vinar síns Erdogan eða þess sem hún þekkir frá barnæsku og hlutast til um að fjölmiðlar hagi sér. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Merkel hefur reyndar sjálf talað um þetta í fjölmiðlum og segir að það þurfi að endurmeta meðferð hælisumsókna þeirra sem telja sér óthætt að fara í frí til þess lands sem þeir segjast vera ofsóttir í. Það er því ekki rétt að hún vilji ekki ræða málið.

http://www.mbl.is/frettir/erlent/2017/08/28/fari_ekki_i_fri_til_heimalandsins/

Merkel var ekki að skammast yfir þeim sem vilja ræða fóttamannastefnu ríkisstjórnarinnar með málefnanlegum hætti. Hún var aðeins að tala um hatursummæli og það er stefna Facebook að taka á þeim enda er verið að setja lög sem banna slíkt í flestum vestrænum ríkjum enda hafa Sameinuðu þjóðirnar hvatt aðildrríki sín til að gera það vegna þess skaða sem af líku leiðir. Það eru hins vegar engir málsmetandi menn í Þýskalandi frekar en hér að reyna að þagga niður málefnanlega umræðu um þessi mál.

Sigurður M Grétarsson, 28.8.2017 kl. 17:09

2 identicon

Þetta er "lýðræðishugmyndir" vinstri sinna ....

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 28.8.2017 kl. 18:08

3 identicon

Alveg sammála. Sendum þessa skemmtiferðamenn, velferðartúsita, sem tíma ekki að greiða fyrir lúxushótelin í Evrópu, strax aftur til síns heima -- nú eða sökkvum þeim í Miðjarðarhafið eins og þau eiga svo sannarlega skilið. Skil ekkert í þessu elítupakki sem lýgur okkur fullt, því að það bjátar jú ekkert á hjá þessum "flóttamönnum" og þeir koma okkur jú ekkert við. Vona að Trump og Le Pen kippi þessu í liðinn.

Pétur (IP-tala skráð) 28.8.2017 kl. 21:48

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

"Flóttamenn"sem fara til baka í frí!

 Koma síðn aftur í sæluna og frelsið! Með "bevís"upp á vasann frá viðtökulandinu!

 Er ég klikkaður, eða veröldin öll?

 Nei, sennilega aðeins Evrópa, sem nú keppist við að tortíma sjálfri sér, undir verndarvæng kratafífla og afdankaðra sósíalista og heiladauðra kerfisrotta og embættismanna og kvenna. Konur geta jú líka verið drullusokkar.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 29.8.2017 kl. 05:19

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hér má minna á nýja frétt um, að tugir þúsunda Sýrlendinga eru nú á heimleið, einkum frá Tyrk­landi, en "yfir 40 þúsund Sýr­lend­ing­ar hafa farið yfir landa­mær­in síðan það varð leyfi­legt 15. ág­úst, en um fjög­ur þúsund fara þangað yfir á hverj­um degi."

Og Sýrland var það land, þar sem ástandið þótti einna verst í þeim heimhluta og miklu verra en í löndum þessara meintu hælisleitenda. Geta þá ekki bara allir múslimarnir farið heim til sín á ný? Hvað segir Góða Göfuga Gáfaða Fólkið um það?

Jón Valur Jensson, 29.8.2017 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 90
  • Sl. viku: 2487
  • Frá upphafi: 2291470

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2263
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband