Leita í fréttum mbl.is

Utanríkisstefnan er andstæð hagsmunum þjóðarinnar

Sama dag og Erdogan einræðisherra sölsaði undir sig nánast allt vald í kosningum, sem Efnahags- og framfarastofnun Evrópu gagnrýnir harkalega, undirritaði utanríkisráðherra sérstakan fríverslunarsamning við Tyrki þar sem mælt er með aukinni samvinnu og vináttu þjóðanna. 

Erdogan hefur fangelsað tugi þúsunda blaða og fréttamanna og gert út af við tjáningarfrelsið og prentfrelsið í landinu sem og rekið meir en hundrað þúsund opinbera starfsmenn. Þá hefur sölsað undir Tyrki stórt landsvæðí í Sýrlandi og ætlar sér að innlima það. 

Þetta þvælist ekkert fyrir íslensku ríkisstjórninni, þrátt fyrir að mannréttindabrotin séu þau verstu í Evrópu og þeir víli ekki fyrir sér að fara með ófriði á hendur nágrannaríki og sölsa undir sig stór landssvæði. 

Á sama tíma bannar þessi sama íslenska ríkisstjórn, forseta lýðveldisins að sinna þeirri sjálfsögðu skyldu sinni að sitja í heiðursstúku þegar íslenska landsliðið í knattspyrnu keppir í fyrsta skipti á heimsmeistaramóti í knattspyrnu og veita strákunum okkar stuðning. 

Það var ömurlegt að horfa á þau Katrínu Jakobsdóttur og Guðna Th. Jóhannesson eins og tvo niðursetninga á Hrafnseyri við Arnarfjörð, norpandi fyrir framan sjónvarpsskjá við að horfa á landsleikinn við Argentínu. Þetta þurfti Guðni Th. að þola allt vegna þeirrar fáránlegu utanríkisstefnu Íslands að troða illsakir við Rússa að fyrirskipun Evrópusambandsins. 

Þessi utanríkisstefna sem felur í sér viðskiptastríð við Rússa veldur íslensku þjóðinni milljarðatjóni árlega og miklu tekjutapi bænda og sjómanna. Afsökunin er að Rússar virði ekki mannréttindi og hafi innlimað Krímskagann skv. vilja mikils meirihluta íbúa þar. Á sama tíma semur þessi sama ríkisstjórn við Tyrki sem virða engin mannréttindi og hafa innlimað landssvæði í Sýrlandi í blóðugri styrjöld gegn íbúunum. 

Hagsmunir okkar af viðskiptum við Tyrki eru nánast engir, en miklir við Rússa. Hvaða glóruleysi er þá þessi utanríkisstefna.

Í hvers þágu starfar utanríkisþjónustan? Fyrir íslendinga eða fer hún eftir dyntum Angelu Merkel og Evrópusambandsins. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Það er eitt af fáránlegustu afrekum  Ríkisstjórnar Islands að senda UTANRIKISráðherra til að finna mann sem fór í stríð- en lenda svo inná skrifstofu til að semja um að eiga viðskifti við þjóð sem almenningur er hræddur við að heimsækja og standa í striði.

 Kannski hefur hann tekið upp samninginn um að kaupa vatn frá Tyrkjum ! Við gerðum það í eina tíð.

Erla Magna Alexandersdóttir, 26.6.2018 kl. 10:49

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Mikið er ég sammála þér Jón, ég hefði ekki trúað því að ég yrði fyrir svo miklum vonbrigðum með utanríkisráðherra okkar sem raun ber vitni. Ég átta mig ekki á því hvert GÞÞ er kominn eða hvaða öfl stjórna honum, þá er ég ekki bara að tala um Tyrkja samning.

Hvað með að stórefla samband okkar og viðskipti við Ísrael sem gætu fært okkur mikla hagsæld og þekkingu á ýmsum sviðum þar sem þeir eru framar öðrum þjóðum á vísinda- og tæknisviðinu, nokkuð þar sem Tyrkir munu ekki gagnast okkur.

Tómas Ibsen Halldórsson, 26.6.2018 kl. 10:51

3 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Sæll.

Ég veit ekki betur en að á síðasta landsfundi hafi verið samþykkt áætlun sem gengur út á að aflétta þvingunum á Rússa. Það er lítið heilbrigði fólgið í þeim hugsunarhætti að Lýðveldið Ísland haldi að það geti þvingað einhvern enda er tilfellið, eins og þú segir réttilega, tapið okkar.

Ég get ekki séð að utanríkisstefna stjórnvalda sé nokkur. Virðist í besta falli felast í fálmi út í myrkrið og láta öðrum segja sér hvað gera skal.

En æðsta vald flokks sitjandi utanríkisráðherra lagði honum línu. Honum ber að fara eftir henni.

Sindri Karl Sigurðsson, 26.6.2018 kl. 14:24

4 Smámynd: Jón Magnússon

Já Erla Magnea gera samning við ríkið sem að öllum líkindum varð þess valdandi að íslendingurinn féll en hann var að aðstoða baráttusveitir Kúrda í sjálfstæðisbaráttu þeirra gegn þessu þursaveldi, sem Tyrkland Erdogan er. 

Jón Magnússon, 26.6.2018 kl. 17:14

5 Smámynd: Jón Magnússon

Því miður Tómas þá virðist utanríkisstefna Íslands mótuð af utanríkisstefnu Evrópusambandsins. 

Jón Magnússon, 26.6.2018 kl. 17:15

6 Smámynd: Jón Magnússon

Sindri Karl þú hittir naglann á höfuðið. Ég veit ekki betur en þetta hafi einmitt verið samþykkt á Landsfundi og stefna ríkisstjórnarinnar er því í andstöðu við stefnuna sem þar var mörkuð. Vægast sagt athyglisvert svo ekki sé meira sagt. 

Jón Magnússon, 26.6.2018 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 278
  • Sl. sólarhring: 356
  • Sl. viku: 4868
  • Frá upphafi: 2268012

Annað

  • Innlit í dag: 257
  • Innlit sl. viku: 4496
  • Gestir í dag: 254
  • IP-tölur í dag: 244

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband