Leita í fréttum mbl.is

"Vér einir vitum"

Sú var tíðin að danskir arfakonungar töldu sig afbragð annars fólks að vitsmunum og öðru atgervi og þessi skoðun þeirra kom iðulega fram í umræðum og við ákvarðanatökur þegar þeir sögðu "Vér einir vitum" og þá var allri alþýðu ljóst hvað var rétt og hað var rangt. 

Nú hefur Ísland eignast þingkonu Helgu Völu Helgadóttur sem hefur sama álit á sjálfri sér og hæfi sínu og arfakonungar forðum.

Þegar henni var kurteislega bent á að sósíaldemókratar systurflokkur Samfylkingarinnar hefðu svipaða stefnu og Pia Kærsgaard í innflytjendamálum þá segir Helga Vala.

"að hún þekki vel til systurflokksins í Danmörku og þyki leitt, að hann hafi villst af leið frá jöfnuði, umhyggju fyrir öðru fólki og mannréttindum." 

Systurflokkurinn er Jafnaðarmannaflokkur Danmerkur (det socialdemokratiske parti)

Ekki hefur þess orðið vart í pólitískri umræðu í Danmörku að nokkur pólitískur andstæðingur danskra jafnaðarmanna hafi gengið svona langt í gagnrýni sinni á flokkinn.

Þetta eru stór orð og að sjálfsögðu finnur Helga Vala Helgadóttir þeim ekki stað, en um það þarf ekki að ræða frekar þar sem hún telur sig hafa sama alræðisvald til skoðunamótunar og danskir arfakonungar áður "Vér einir vitum."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Ekki taldi Helga Vala eftir sér að sitja til borðs með fasistanum og kynþáttafordómaranum seinna um kvöldið. Aumkunnarverð kona í hesli hringlandahátts "bestra allra". ( If you do not agree, you suck and should be exiled, or even jailed for you beliefs.")

 Skelfileg persóna sem þrífst á því að halda umrenningum sem lengst í landinu, á kostnað alþýðunnar. Rauði krossinn og ríkið borga og þessi mannvitsbrekka er á Alþingi! 

 Eina afsökun Helgu Völu fyrir brotthvarfi sínu af þingpöllum fáránlega sviðsins á Þingvöllum, er niðurgangur. Geti hún ekki framvísað kvittun fyrir skitu á salermum elítunnar, er hún ekkert, nú sem fyrr. Það fær enginn að skíta án greiðslu á Hakinu.

 Helga Vala, sýndu kvittun, en seg ei orð ella. Ömurlegra fyrirbæri þingmanns má langt aftur leita. Helga Vala hefur toppað allt, sem óþingmannslegt er. Verði henni að góðu.

Halldór Egill Guðnason, 21.7.2018 kl. 04:10

2 Smámynd: Haukur Árnason

"Vér einir vitum."  Gleymum því ekki.

Haukur Árnason, 21.7.2018 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 81
  • Sl. sólarhring: 127
  • Sl. viku: 495
  • Frá upphafi: 2291871

Annað

  • Innlit í dag: 68
  • Innlit sl. viku: 440
  • Gestir í dag: 68
  • IP-tölur í dag: 68

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband