Leita í fréttum mbl.is

Misskilið frjálslyndi

Pútín forsætisráðherra Rússlands hélt því fram í blaðaviðtali fyrir nokkru að frjálslyndi stjórnmála- of fréttaelítunar í Evrópu sem tækju réttindi ákveðinna hópa fram yfir öryggi almennings væri rangt. Að sjálfsögðu hafa ýmsir leiðtogar Evrópuríkja mótmælt þessu, en þó ekki með því að neita þessu heldur með því að segja að Pútín væri ekki maður sem hefði efni á að segja svona hluti. 

En staðhæfingarnar fyrst. Pútín sagði í viðtali við Financial Times: 

"Þessi frjálslynda hugmynd gerir ráð fyrir að það þurfi ekkert að gera- Innflytjendur geti drepið, stolið og nauðgað án þess að þeim sé refsað fyrir það, af því að vernda verði réttindi þeirra sem innflytjenda."

"Það verður að refsa fyrir alla glæpi. Sú frjálslynda hugmynd að þess þurfi ekki er úrelt og er í andstöðu við hagsmuni yfirgnæfandi meirihluta fólksins."

Sé það svo að ofangreind ummæli séu rétt eða Pútín hafi mikið til síns máls með því að hafa uppi þessar staðhæfingar er þá ekki rétt að ræða staðhæfingarnar í stað þess að fordæma manninn sem sagði þetta. 

Er t.d. ekki nauðsynlegt að allir séu jafnir fyrir lögunum hvort heldur þeir eru innflytjendur eða þeir sem búa fyrir í landinu?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Jón góð grein. Veit þetta er ekki í takt en  Hér er dálítið merkileg grein um áróður ESB í Tékkóslóvakíu á sínum tíma Eigin kona mesta áróðurspólitíkus fékk stöðu áróðursdeildar ESB þar í landi Er ekki þetta að ske á Íslandi. https://www.brugesgroup.com/media-centre/papers/8-papers/786-federalist-thought-control-the-brussels-propaganda-machine?fbclid=IwAR0ZBaOb2NNkaox_YilN-w_pj2u2uiOeNf-os8Xp1cWDVihJVGKr6Gv5kzU

þetta er hreint ótrúlegt en sama og manni grunaði. Geymið greinina í hið minnsta.

Valdimar Samúelsson, 29.6.2019 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 90
  • Sl. viku: 2487
  • Frá upphafi: 2291470

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2263
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband