Leita í fréttum mbl.is

Af hverju þarf að ausa meira fé dómsmálaráðherra?

Útlendingamálaráðherra hafði á orði þegar hún hvikaði í málum hælisleitenda í kjölfar kröfugöngu, að Útlendingastofnun þyrfti meira fé til að afgreiða mál hraðar. Það er rangt. 

Útlendingastofnun þarf ekki meira fé. Það þarf að breyta útlendingalögunum m.a. auka málahraða og stytta fresti.

Mesta meinsemdin í útlendingamálunum eru ráðherrar útlendingamála, sem taka hvað eftir annað fram fyrir hendurnar á starfsfólki útlendingastofnunar þegar þeir fara að lögum. Þeir hagræða reglum að geðþótta fyrir þá sem fara á mestu höfrungahlaupi allra hælisleitenda fram hjá lögum og reglum. 

Afstaða íslenskra yfirvalda nú mun leiða til nýrrar holskeflu hælisumsókna. Til hamingju með það Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir það mun sennilega ekki kosta skattgreiðendur minna fé en asnaspark Unnar Brá á sínum tíma. 

En ákjósanlegt fyrir þá sem vilja gera Ísland að heimili alls heimsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Mér heyrist þessi vera stefna Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur

Afstaða íslenskra yfirvalda nú mun leiða til nýrrar holskeflu hælisumsókna.

Til hamingju með það Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir það mun sennilega ekki kosta skattgreiðendur minna fé en asnaspark Unnar Brá á sínum tíma. 

En ákjósanlegt fyrir þá sem vilja gera Ísland að heimili alls heimsins.

Halldór Jónsson, 7.7.2019 kl. 12:41

2 Smámynd: Jón Magnússon

Halldór af hverju tók svona langan tíma að afgreiða hælisumsókn þessara afgönsku hælisleitenda sem höfðu þegar fengið hæli í Grikklandi? Af því að þeir sögðu ekki satt. Hefðu þeir sagt satt að þeir hefðu þegar fengið alþjóðlega vernd í Grikklandi hefði þeim verið vísað umsvifalaust í burt - það hefði ekki tekið neinn tíma. Þessi langi tími er vegna þess að fólk er að segja ósatt og fær síðan hjálp frá Rauða Krossinum og þessvegna lögfræðingum þeirra eða öðrum lögfræðingum til að viðhalda málinu. 

Svo segir ráðherra að það þurfi meiri peninga í málaflokkinn til að hraða málum.  Þess þarf ekki það þarf að breyta reglunum. Það mundu skynsamir stjórnmálamenn gera. En þeir virðast vart vera til lengur í okkar flokki Halldór minn. Alla vega ekki á Alþingi. 

Jón Magnússon, 7.7.2019 kl. 21:09

3 Smámynd: Richard Þorlákur Úlfarsson

Einsog ég skil þetta þá var Þórdís Reykás einungis að breyta lögunnum til þess að losna sjálf úr snöru fréttamanna. Nú þarf að taka bæði málin til efnislegrar meðferðar.

Richard Þorlákur Úlfarsson, 8.7.2019 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 610
  • Sl. sólarhring: 627
  • Sl. viku: 2996
  • Frá upphafi: 2294547

Annað

  • Innlit í dag: 563
  • Innlit sl. viku: 2730
  • Gestir í dag: 534
  • IP-tölur í dag: 517

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband