Leita í fréttum mbl.is

Ég heiti Múhameð Páll Omar bin Laden og er kona

Þegar Múhameð Páll Omar bin Laden kom til landsins og bað um alþjóðlega vernd neitaði hann að vera skráður karlmaður og sagðist vera kona. Embættismaðurinn sagði. "Þú ert karlmaður skv. skilríkjum auk þess ertu karlmannlegur í útliti og með mikið skegg. Þú ert karl og ég skrái þig þannig." Þá kæri ég þig sagði Múhameð. Gaman væri að sjá það sagði embættismaðurinn.  

Seinna um daginn lagði Múhameð fram kæru þar sem brotið hafði verið gegn kynrænu sjálfræði hans og sagði í kærunni að brotið varðaði við 10.gr. laga frá Alþingi þ.18.júní 2019 um kynrænt sjálfræði en þar segir:

"Einstaklingur sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi getur óskað eftir því að í skráningarskírteini sbr. 34.gr.laga um útlendinga nr. 80/2016 verði kyn hans skráð í samræmi við kynvitund hans enda þótt það samræmist ekki skilríkjum hans frá heimaríki."

Einboðið er að Múhameð vinni málið og verði skráð kona þar sem hann segir að kynvitund sín sé sú, að hann sé kona.

Með lagafrumvarpi um kynrænt sjálfræði greiddu 45 þingmenn atkvæði þ.á.m. allir ráðherrar. Enginn greiddi atkvæði á móti. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Mér er alveg sama hvort fólk er gagnkynhneigt eða samkynhneigt svo fremi það haldi sér innan laga og reglna. Mér er lika sama hvað fólk heitir og hverrar trúar það er. Ég er hinsvegar á móti hinu pólitíska Íslam. 

Jón Magnússon, 8.7.2019 kl. 13:47

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ef að þú værir dómsmálaráðherra í dag

myndir þú þá gefa þessum umrædda múslima sem að þú minnist á

í þinni færslu;

fullan ríkisborgararétt ef að viðkomandi væri að sækja um landvistarleyfi hér á landi?

Y/N?

Jón Þórhallsson, 8.7.2019 kl. 13:55

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ertu ekki að grínast? Er þessi persóna til?

Halldór Jónsson, 8.7.2019 kl. 13:59

4 Smámynd: Jón Þórhallsson

Nú hefur færslan hérna fyrir ofan  farið fyrir brjóstið á ritstjórum moggans svo þú hendir þá bara færslunni út

svo að það verði ekki lokað á allt bloggið hjá mér.

Jón Þórhallsson, 8.7.2019 kl. 14:14

5 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ef að ég segi burt með  kynvillu og myndi  ekki

lyfta litla fingri öðrum til  skaða líkamlega séð.

Myndi slíkt ekki flokkast meira sem SKOÐUN /TJÁNINGARFRELSI

frekar en hatur?

--------------------------------------------------------------

Hvað ætti ég frekar að segja

ef að ég vildi ekki að gaypride-gangan

fengi að vaxa út í hið óendanlega?

Jón Þórhallsson, 8.7.2019 kl. 14:55

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þessi makalausu ólög um "kynrænt sjálfræði" eru lokapunkturinn við skelfilega og andkristna ólagaframleiðslu vorþingsins 2019 og bera sízt vitni um vökula, sjálfstæða hugsun, hyggindi eða hugrekki þingmanna --- það er eins og allt slíkt hafi lagzt í dróma, eins og álög hafi lagzt á þingheim og þeir vart með réttu ráði.

Jón Valur Jensson, 8.7.2019 kl. 15:30

7 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Kynvitundarvitleysan er nú á góðri leið með að eyðileggja kvenna íþróttir, þ.s. Trans-“konur” ýta öðrum konum (líka lessum) út úr keppni. Karla íþróttir eru þó enn of hár þröskuldur en eflaust kemur að því að yfirstíga má hann með jafnréttiskröfum.

Ragnhildur Kolka, 8.7.2019 kl. 15:44

8 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Samthykkt thessa fáránlega frumvarps, bendir til alvarlegs greindarskorts medal theirra sem greiddu thessari dellu atkvaedi sitt. 

Karl getur ekki verid kona og kona getur ekki verid karl. Thetta er svo gjörsamlega galid, en alveg í takt vid endalausa eftirgjöf thingheims vegna "populískra" málefna minnihluta og örhópa, sem frekjast áfram út í eitt.

Gódar stundir, med kvedju ad sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 8.7.2019 kl. 15:46

9 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það er til máltæki sem að hljómmar svona:

"Hinu illa nægir til sigurs að hinir góðu hafist ekkert að!"

Nú virðist hið illa hafa sigrað; (gaypride-sjónarmiðin) 

en ég verð að vona

allt hið GÓÐA FÓLK sem að er hérna fyrir ofan mig mumi halda áfram hinni góðu báráttu fyrir KRISTNUM GILDUM.

Jón Þórhallsson, 8.7.2019 kl. 16:09

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvað skyldi virðing Alþíngis mælast núna á 1-10?

Halldór Jónsson, 8.7.2019 kl. 16:15

11 Smámynd: Richard Þorlákur Úlfarsson

Þetta rugl hjá krökkunum á Alþingi hefur ýmsar fyrirsjáanlegar afleiðingar.

Þannig geta barnaníðingar og krimmar skipt um nafn og kennitölu eins oft og þeir vilja með því einu að skipta um kyn.

Einnig verður núna að stofna X landslið Íslands.

Þannig getum við í framtíðinni haft karlalandslið þar sem karlar með píku eru í liðinu, kvennalandslið þar sem konur með tippi eru í liðinu og X landslið með hinu og þessu.

Richard Þorlákur Úlfarsson, 8.7.2019 kl. 19:30

12 Smámynd: Jón Magnússon

Nei nema hann ætti ótvíræðan lagalegan rétt til þess Jón.

Jón Magnússon, 8.7.2019 kl. 19:46

13 Smámynd: Jón Magnússon

Ég vona vegna persónuverndarlaga að þessi persóna sé ekki til kæri vinur minn Halldór. Ég var fyrst og fremst að vekja athygli á þessu úrkynjaða þingfólki Íslands, sem lætur sér detta í hug að samþykkja svona vitleysu. Skelfilegur landshornalýður svo ekki sé meira sagt.

Jón Magnússon, 8.7.2019 kl. 19:47

14 Smámynd: Jón Magnússon

Jón Þórhallsson ég lít ekki á það sem hatursorðræðu, þó talað sé gegn ákveðnum hópum sem hafa fulla burði til að verja sig eins og t.d. hreyfingu sem telur milljarða manna. Það er annað með einstaklinga. Ég vil setja harðari ákvæði gegn meiðyrðum gegn einstaklingum en hætta þessum dansi varðandi hópa fólks eða þjóðir. 

Jón Magnússon, 8.7.2019 kl. 19:49

15 Smámynd: Jón Magnússon

Alveg sammála Jón Valur. Þetta er tóm skelfing. Mér finnst satt best að segja að þeir sem samþykktu þetta skelfilega bull sem lög í landinu hafi ekki mikla burði til að sinna löggjafarstörfum lengur. 

Jón Magnússon, 8.7.2019 kl. 19:50

16 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er bara vont Ragnhildur og er ásamt mörgu ööru ætlað til að grafa undan eðlilegu borgaralegu þjóðfélagi. Já og Sjálfstæðisflokkurinn styður þetta, en þar á bæ er fólk greinilega komið ansi langt frá borgaralegri hugmyndafræði.

Jón Magnússon, 8.7.2019 kl. 19:52

17 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála Halldór Egill. Þetta er eiginlega svo víðáttuvitlaust að manni nánast fallast hendur yfir vitleysunni.

Jón Magnússon, 8.7.2019 kl. 19:53

18 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er gott máltæki Jón Þórhallsson og á við. 

Jón Magnússon, 8.7.2019 kl. 19:54

19 Smámynd: Jón Magnússon

Ekki veit ég það svo gjörla Halldór, en virðing mín fyrir Alþingi sem stofnun er mikil, en virðingin fyrir fólki sem samþykkir svona bull er fyrir neðan frostmarkið. 

Jón Magnússon, 8.7.2019 kl. 19:55

20 Smámynd: Jón Magnússon

Góð ábending Richard. 

Jón Magnússon, 8.7.2019 kl. 19:55

21 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Mér kæmi það á óvart ef ekki væri hægt að segja það fölsun að karl með tippi væri skráður kona og kona með gat fyrir tippi væri skráð karl. Það hefur aldrei vafist fyrir Íslenskum hestamönnum hvort um fola eða hryssu  var að ræða. 

Það hljóta að vera til reglur með karla og kerlingar rétt eins og fola og hryssur, án tillits til þess hvort viðkomandi er andlega heilbrigður eða ekki.

Mér finnst að hælisleitanda með svona fölsunar kröfur eig að vísa umsvifa laust burt.  

 

      

Hrólfur Þ Hraundal, 9.7.2019 kl. 17:38

22 Smámynd: Aztec

"Þá var öld­in bein­lín­is önn­ur og ekki enn á al­manna­vitorði að karl­ar gætu vel orðið ólétt­ir, ekki síður en kon­ur" segir Snorri Másson í Mogganum í dag.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/07/09/radherra_maerir_hastofum_bok_um_skald/

Þetta er auðvitað tóm tjara því að karlmenn geta ALDREI orðið óléttir. Ekki frekar en konur geti framleitt sáðfrumur með eigin líkama.

Andrés Briem getur aldrei orðið óléttur þótt hann hafi skipt um nafn og fengið hormónagjöf. Henrý Steinn varð ólétt því að hún er ennþá kona með virk æxlunarfæri. Kynfæraskipti og hormónagjafir breyta engu um það, að einstaklingur sem er fæddur karlkyns verður karlkyns alla ævi (allar frumur með XY litninga) og getur aldrei orðið óléttur á eðlilegan hátt né gengið með barn á eðlilegan hátt þótt hann fái ígrætt leg.

Eina leiðin til að gera það er að hann fyrst fái ígrætt leg með fóstri og öllu saman, og að legið sé tengt við vél á sjúkradeild 24/7 sem veitir fóstrinu næringu. En það finnst mér nú fulllangt gengið.

laughing

Halldór Jónsson spyr hvar virðing fyrir Alþingi sé nú á kvarðanum 1 - 10. Svarið er núll (0).

Aztec, 9.7.2019 kl. 20:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 483
  • Sl. sólarhring: 939
  • Sl. viku: 6227
  • Frá upphafi: 2277978

Annað

  • Innlit í dag: 451
  • Innlit sl. viku: 5757
  • Gestir í dag: 438
  • IP-tölur í dag: 427

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband