Leita í fréttum mbl.is

Fólk sem fer á túr

Höfundur Harry Potter bókanna, J.K.Rowlings gagnrýndi, að sagt væri "fólk sem fer á túr" og benti á að það væru konur sem færu á túr en ekki fólk almennt. 

Ábending Rawlings á þessa kunnu staðreynd hefur leitt til þess, að sótt hefur verið að henni og hún sökuð um að móðga kynskiptinga, en sá hópur hefur skipað sér í fremstu röð þeirra hópa, sem telja sig eiga rétt á að móðgast yfir öllu mögulegu og ómögulegu, hvort sem það kemur þeim við eða ekki. 

Leikarinn sem lék Harry Potter, segist vera mjög leiður yfir þeim sársauka sem ummæli Rowlings kunni að valda og vonast til að það sverti ekki ímynd Harry Potters. 

Að Rowlings er líka sótt fyrir að segja;"ef kynferði er ekki raunverulegt þá er um leið allt þurkað út sem heitir t.d. reynsluheimur kvenna. Hún sagði einnig "Líf mitt hefur mótast af því að ég er kona ég held ekki að það sé hatursummæli að segja það."

Réttmálsumræðan er komin út fyrir öll mörk þegar það er talin hatursorðræða að skýra frá staðreyndum lífsins. 

Af hverju erum við með nám í kynjafræði við Háskóla Íslans fyrst ekki má ræða raunverulegan mismun kynjanna og umræðan á eingöngu að vera á grundvelli þess fámenna hóps, sem í síauknum mæli neitar að horfast í augu við þær staðreyndir að karlar eru karlar og konur eru konur og það er munur á kynjunum sem ber að viðurkenna og virða.

Eigum við e.t.v. að hætta að segja konur sem fæða börn og segja "fólk sem fæðir börn" og hamast að þeim sem nefna konur í sambandi við þann líffræðilega raunveruleika?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrannar Baldursson

Eru ekki alltaf einhverjir öfgafullir í allar áttir? Auðvitað eru það konur sem fara á túr. Hvað annað?

Hrannar Baldursson, 10.6.2020 kl. 12:29

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Valdníðsla réttrúnaðarliðsins sem allt veit best og fallega gáfaða fólksins er komin út í algerar öfgar. Kynjakjaftæðið er komið í slíkt öngstræti að varla nokkur maður eða kona hættir sér út í þá umræðu lengur. Krossfesting ein liggur við ef einhver vogar sér lengur að mæla af einhverri skynsemi gegn þessu rugli öllu saman. Gott ef ekki er búið að uppgötva yfir þrjátíu kyn hjá mannskepnunni einni saman hjá þessum besserwissum. Það er ekki fallegt að segja það en mikið djöfull er ég orðinn þreyttur á þessu andskotans rugli og frekjugangi.(Afsakaðu orðbragðið)

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan. 

Halldór Egill Guðnason, 10.6.2020 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 83
  • Sl. viku: 1663
  • Frá upphafi: 2291553

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1492
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband