Leita í fréttum mbl.is

Ferðaþjónustan sem lokar ekki þrátt fyrir Covid. Vegabréf óþörf

Verulega hefur dregið úr ferðum venjulegs fólks á mill landa eftir að Covid faraldurinn brast á í Evrópu. Allskonar takmarkanir eru settar, m.a. þarf fólk að vera með grímur, ekki má hafa handfarangur um borð í flugvélum (hvaða tilgangi sem það nú þjónar)ferðaframboð er takmarkað og ferðalangar þurfa að fara í skimun eða jafnvel 14 daga sóttkví. 

Önnur ferðaþjónusta, sem studd er dyggilega af auðkýfingnum Soros, Guteres framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og nytsömum sakleysingjum í Evrópu blómstrar samt sem aldrei fyrr.  Það er ferðaþjónusta glæpahringja með ólöglega innflytjendur.

Umsvif ólöglegu ferðaþjónustunar hefur aukist það mikið í Covid faraldrinum, að starfsfólk á strandgæsluskipum í Bretlandi segir að flotinn þurfi að skerast í leikinn. Alls hafa 3000 ólöglegir innflytjendur komið til Bretlands þann tíma ársins sem C-19 hefur geisað, en þeir voru alls 1.892 allt árið í fyrra. Þessir ólöglegu ferðamenn þurfa ekki að sýna passa enda eru þeir yfirleitt búnir að henda þeim til að villa á sér heimildir. Þeir fara ekki í skimun fyrr en þeir leita fyrst eftir ókeypis velferðarþjónustu. 

Starfsfólk breskra strandgæsluskipa segist ekki geta ráðið við báta með 40 ólöglegum innflytjendum eða fleiri og þessvegna verði flotinn að skerast í leikinn skv. því sem Daily Telegraph segir í frétt þ.4.8. s.l. 

Á sama tíma segir tímaritið The Economist frá því með hvaða hætti glæpahringir og fleiri undirbúi ólöglega innflytjendur fyrir að komast ólöglega til Evrópu. Það er vísað á lögmenn, sem eru hjálplegir, mannúðarsamtök, hvernig á að ganga í hagkvæmnishjónabönd eða koma sér upp fölsuðum vinnusamningum. 

Einnig eru leiðbeiningar um það hvernig á að komast hjá því að ólöglegum innflytjendum verði vísað úr landi og fái stöðu sem fólks sem nýtur alþjóðlegarar verndar eins og það heitir á pólitísku nýmáli stjórnmála- og fréttaelítunar. Þar er m.a. bent á, að fólk haldi því fram, að þau séu börn, séu að leita að föður sínum, konu, börnum eða komi frá stríðshrjáðum löndum og til þess að geta haldið þessu fram, þarf að henda vegabréfum og reyna að halda sér sem lengst í lyginni þangað til að yfirvöld gefast upp. 

Ólöglega ferðaþjónusta glæpamannanna sem standa í því að smygla fólki til Evrópu hefur allar þessar upplýsingar á reiðum höndum og hjálpfúsir nytsamir sakleysingjar í Evrópu hamast við að standa með smyglurunum í misskildu mannúðarskyni. 

Þrátt fyrir að vitað sé, að meir en 90% þeirra ólöglegu innflytjenda sem koma til Vestur Evrópu eru ekki að flýja stríð, handtöku eða hörmungar heima fyrir, hefur Evrópa undir forustu Guteres framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna tekið upp vitlausustu löggjöf sem til er í málefnum ólöglegra innflytjenda, sem voru síðar skírðir hælisleitendur og loks umsækjendur um alþjóðlega vernd. Skv. þessum lögum þ.á.m. íslensku útlendingalögunum er sönnunarbyrði alfarið lögð á ríkisvaldið en engin á ólöglega innflytjandann. Það má ekki einu sinni gera einfaldar prófanir og rannsóknir á því hvort viðkomandi er að segja satt eða ljúga t.d. hvað varðar aldursgreiningu. Íslenska ríkisstjórnin gekk síðan þennan planka á enda með því að samþykkja svokallaðan Marokkó sáttamála varðandi hælisleitendur.

Venjulegt fólk þarf að nota vegabréf til að komast á milli landa. Ólöglegu innflytjendurnir gera það ekki og framvísa ekki neinu slíku. Af hverju kemst það þá inn í land eins og Ísland sem er eyja og ólöglegu innflytjendurnir koma allir með flugi? Það er vegna þess að íslensk stjórnvöld gera ekki nauðsynlegar ráðstafanir eins og t.d. að krefjast þess, að flytji flugfélag ólöglegan innflytjenda án vegabréfs, þá verði það að koma þeim sama aðila aftur til upphafsstaðar ferðarinnar á sinn eigin kostnað. 

Venjulegur ferðamaður að og frá Íslandi þarf sjálfur að greiða fyrir fæði, uppihald, læknisþjónustu, sálfræðiþjónustu, tannlæknaþjónustu o.s.frv. Ólöglegu innflytjandinn gerir það ekki. Allur kostnaður vegna þeirra er tekinn frá skattgreiðendum. Kostnaður íslenska ríkisins vegna þessarar ólöglegu ferðaþjónustu kostar skattgreiðendur marga milljarða á ári.

Þegar fyrir liggur hvers eðlis ferðaþjónusta ólöglegra innflytjenda er, þá má ætla að einhverjir stjórnmálamenn telji eðlilegt m.a. vegna afleiðinga Covid að standa vörð um velferð eigin borgara og hagsmuni frekar en að stuðla að ólöglegum flutningum ólöglegra innflytjenda til landsins. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta rétt og skýrt hjá þér, það versta við að ef maður segir þett a opinberlega þá er maður að segja eitthvað sem er ekki í tísku, styttist í að þetta verði ósiðlegt/ólöglegt.

Það þarf eitthvað að gera til að bregðast við þessu og ég skil ekki afhverju það er ekki gert.

emil (IP-tala skráð) 6.8.2020 kl. 14:05

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Hvað hafa margir hælisleitendur komið til Íslands eftir að landið var "opnað" og hve margir hafa verið sendir burt? Það hefur engin fréttastofa kannað það eða þora ekki að segja frá því. Allt skal þaggað niður. Af hverju er þessi feluleikur? 

Sigurður I B Guðmundsson, 6.8.2020 kl. 21:37

3 Smámynd: Jón Magnússon

Emil af því að það eru svo margir hræddir við að vera stimplaðir sem úrhrök eða rasistar ef þeir tala um skynsemi í þessum málum. Þessvegna kemst ofbeldisliðið upp með þessa atlögu að hagsmunum þjóðarinnar.

Jón Magnússon, 7.8.2020 kl. 21:06

4 Smámynd: Jón Magnússon

Góð og marksviss spurning Sigurður. Það svarar þessu engin af ofbeldisliðinu.

Jón Magnússon, 7.8.2020 kl. 21:07

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Flugfélagið Wizz Air, eða hvað það nú heitir, dælir hér inn meginhluta þeirra svokölluðu hælisleitenda, sem hingað koma. Nú á tímum takmarkaðs ferðafrelsis ætti að vera auðvelt að greina þetta, en það er ekki gert. Hvað veldur, er hulin ráðgáta. Hver hefur hag af því að moka hér inn sígaunaskríl frá Rúmeníu, sem telja flesta smitaða sem til landsins koma?

 Þegar stórt er spurt, er oft fátt um svör og á meðan hellist veiran yfir okkur.

 Þakka stórgóðan pistil.

 Goðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 8.8.2020 kl. 02:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 829
  • Sl. sólarhring: 976
  • Sl. viku: 2359
  • Frá upphafi: 2293827

Annað

  • Innlit í dag: 749
  • Innlit sl. viku: 2140
  • Gestir í dag: 713
  • IP-tölur í dag: 697

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband