Leita í fréttum mbl.is

Fyrrum formaður Viðreisnar skákar Samfylkingunni út í horn í fáránleikanum

Stofnandi og fyrsti formaður Viðreisnar skrifar athyglisverða grein í Morgunblaðið undir heitinu "Ég er ekki rasisti en..

Greinarhöfundur telur,að Viðreisn eigi ekki frekari atkvæða von hjá Sjálfstæðisfólki eða fólki hægra megin við miðju og jafnvel á miðju stjórnmálanna og því sé helst atkvæðavon að höfða til hefðbundins fylgis Samfylkingarinnar og yfirbjóða Samfylkingarfólk í rangnefnum og merkimiðapólitík.

Greinin er árás á skrif formanns Miðflokksins um samtökin BLM.  Greinarhöfundur telur Sigmund slíkt úrhrak að heimilt sé að hengja merkimiða ófrægjingar á hann m.a. að hann sé rasisti.

Skilgreiningar greinarhöfundar á því á hverja skuli hengja rasistaheitið er athyglisverð. 

Greinarhöfundur telur að gulu stjörnu rasismans skuli hengja á alla þá, sem segi: Öll líf skipta máli, en ekki bara svört. Fáir hafa slegið met fáránleikans jafn rækilega. 

Þá segir, að þeir sem þannig tali séu slægir stjórnmálamenn, sem séu að fiska í gruggugu vatni. Greinarhöfundi kemur annaðhvort ekki til hugar eða hann telur ekki pólitískt praktískt að nefna það, að einhverjir séu til, sem fari ekki í kynþáttaaðgreiningu og telji öll líf óháð því hvers litar og kynþáttar fólk er skipti máli. Nei að mati greinarhöfundar eru þeir sem þannig tala rasistar. Hlutum er snúið á hvolf eins og sósíalistum og systurflokkum þeirra fasistum og nasistum hefur tekist betur að gera en nokkrum öðrum.

En þetta er ekki nóg greinarhöfundur hefur öðlast sýn á því hvers konar skepnur það eru, sem tala um að öll líf skipti máli og eru þar af leiðandi rasistar og því fylgir að mati greinarhöfundar að slíkt fólk er: marhnútar, afætur, talar háðslega um "góða fólkið", rétttrúnaðinn og fórnarlambamenningu. En ekki nóg með það svona dýrslegar skepnur sem segja að öll líf skipti máli geri líka gys að konum, og fötluðum í góðra vina hópi.

Jafnan er fullkomin og skilgreiningin slík að ólíklegt verður að telja að helstu hugmyndafræðingar Samfylkingarinnra Logi formaður og Ágúst frændi minn Ágússon nái að toppa hana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Benedikt Jóhannesson hefur skyggnigáfu eldklerka sem þekktu einkenni Satans í fari fólks. 

Benedikt Halldórsson, 14.8.2020 kl. 13:04

2 identicon

Ágæt heimildarmynd sem var þó sýnd á RÚV nýlega, sagði frá vandamálum hundeigenda að flytja inn sauðmeinlausan hund sinn. Þar var barátta gegn afþvíbara valdakerfi sem eins og kom fram í myndinni var einnig að verki áratugum saman gagnvart banni við hundahaldi í Reykjavík. 

Þar var bannið upphaflega sett á (skv heimildarmyndinn) til að ná tökum á sullarveiki.  Áratugum eftir að sullarveikin var yfirunnin voru lögreglumenn að rífa hunda af fólki og aflífa á almannafæri í krafti afþvíbara valdboðsins. 

Vissulega er nauðsynlegt að víkja til almennum frelsishugmyndum til að ná tökum á veirunni hitt má aldrei gleymast að aðgerðirnar eru og þurfa að vera tímabundnar og afnumdar um leið og ekki er lengur þörf á. 

Haf þú þökk fyrir Jón að standa þá vakt. 

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 14.8.2020 kl. 14:28

3 Smámynd: Haukur Árnason

Góður Jón, er sammála þér.

Haukur Árnason, 14.8.2020 kl. 18:27

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er makalaust hversu menntaður reikningsmaður eins og TalnaBensi geutur verið ótrúlega heimskur á öðrum sviðum. Það er skiljanlegt að ekki var hægt að brúka hann sem formann Viðreisnar frekar en Joe Biden sem forseta Bandaríkjanna.Mapur sem hefur þá hugsjón eina vegna vantrúar á land sitt og rasistaþjóð að selja Ísland í Evrópusmbandið

Halldór Jónsson, 15.8.2020 kl. 16:07

5 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Takk fyrir góðan pistil og svo sannan.

Er ekki möguleiki að koma þér aftur á þing.??

Það er þörf að mönnum eins og þér þar.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 15.8.2020 kl. 18:50

6 Smámynd: Grímur Kjartansson

Að vera svo ómerkilegur að nota rasista stimpilinn á þá sem voga sér að gera gys að "góða fókinu" hefði ég ekki trúað upp á Benedikt Jóhannesson

Grímur Kjartansson, 15.8.2020 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 732
  • Sl. sólarhring: 1092
  • Sl. viku: 2262
  • Frá upphafi: 2293730

Annað

  • Innlit í dag: 665
  • Innlit sl. viku: 2056
  • Gestir í dag: 636
  • IP-tölur í dag: 622

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband