Leita í fréttum mbl.is

Að vera pínulítið óléttur

Einhverntímann var sagt, að fólk væri annaðhvort ólétt eða ekki. Það væri ekki hægt að vera pínulítið óléttur. 

Svo virðist hinsvegar að það sé hægt að vera pínulítið smitaður af C-19 veirunni miðað við það sem landlæknir segir: Hún sagði í daglegum sjónvarpsþætti veirutríósins í dag, að einu skýring á því af hverju veiran nú legðist mun léttara á fólk en í vor væri ef til vill sú, að fólk fengi ekki eins mikið magn af veirunni í sig vegna sóttvarna. 

Er það ekki svo að annaðhvort smitast fólk eða ekki. Er hægt að fá meira eða minna smit eftir atvikum? Miðað við þessa nýju kenningu landlæknis, þá ætti að vera komin upp virk leið til að leysa C-19 vandann í eitt skipti fyrir öll. Þannig er þá hægt að smita fólk hæfilega lítið þannig að það fyndi ekki fyrir þessu og myndaði mótefni. Málið leyst. 

En að sjálfsögðu er það ekki svo. 

Hræðsluáróðrinum verður að viðhalda. Af hverju má ekki viðurkenna, að það sem nú er í gangi sem ný Covid smit leggjast almennt ekki þyngra á fólk en flensusmit. Frá því var greint í Daily Telegraph í gær, að fleiri deyja nú vegna sumarhita í Bretlandi en vegna Covid. Raunar er þessi seinni bylgja það væg, að engin þörf er fyrir sérstakar ráðstafanir. Þó fæstir vilji smitast og sjálfsagt sé að fólk viðhaldi almennum smitvörnum. 

Af hverju er veirutríóinu og Kára Stefánssyni svona mikið í mun að viðhalda óttanum og knýja fram ráðstafanir sem kosta hundruði milljarða? Ráðstafanir, sem munu valda verri lífskjörum, þrátt fyrir að meiningin sé að leggja stóran hluta byrðana í núinu á ungabörn og ófædda.  

Ber ríkisstjórnin ekki ábyrgð á því að starfa skv. heilbrigðri skynsemi og aflétta ónauðsynlegum frelsisskerðingum þegar í stað og segja fólki þann sannleika að miðað við þessa seinni bylgju C-19 faraldursins, þá er hættan á dauða eða alvarlegum afleiðingum vegna sjúkdómsins svo lítil, að engin ástæða sé til að halda þjóðfélaginu öllu í helgreipum vegna ógnar sem er minni en við höfum ítrekað staðið frammi fyrir án þess að skerða frelsi borgaranna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Saell Jon og takk fyrir godan pistill.

Geir 'Agustsson var med thetta vel greint

i pistli 20.agust, en hann var svona:

Árið er 2013

Skæð flensa herjar á landsmenn, meðal annarra veira. Hún minnir helst á flensuna sem gekk árið 2009, svo slæm var hún! Forstjóri Landspítalans segir svo frá, í samtali við Fréttablaðið (bls. 6):

Björn Zoëga, forstjóri LSH, segir ástandið á spítalanum erfitt en viðráðanlegt. Tæplega fjörutíu sjúklingar eru í einangrun þar vegna inflúensu, RSveirunnar og nóróveirunnar. Hann segir ástandið svipa að hluta til ársins 2009 þegar svínaflensufaraldurinn gekk yfir landið. „Þá stóðum við í raun tæpar því það var svo mikið af fólki í öndunarvél og á gjörgæslu, en það er ekki eins mikið um það núna,“ segir hann. „En síðan þá höfum við þurft að minnka okkur og núna eru svo margir sem eru að bíða eftir einhverju öðru inni á bráðadeildunum. Það er töluverður munur.“

Erfitt, en viðráðanlegt. Maðurinn var sjálfur að sinna sjúklingum og fá upplýsingar beint í æð.

„Ég hitti mína sjúklinga, tala við fólk og fylgist með aðstöðunni,“ segir hann. „Svo maður sé ekki að fá þetta allt úr Excel-skjölum.“

Vel mælt!

Spítalinn var einfaldlega að takast á við erfitt ástand. Ástandið var jú skárra en árið 2009 þegar rosalega margir voru í öndunarvél, vegna flensu og annars.

Í dag er einn einstaklingur á spítala vegna COVID-19 (sennilega eldri borgari með veikt ónæmiskerfi). Einn! Og enginn á gjörgæslu. Enginn! En ólíkt árinu 2009 og 2013 er nú búið að setja keðju utan um samfélagið til að verja það fyrir veiru sem menn eru, þrátt fyrir allt, komnir með svolitla reynslu af. Heilu fyrirtækin eru á leið í gjaldþrot og fyrir mörg þúsund Íslendinga blasir við atvinnuleysi.

Þegar menn setja hlutina ekki í samhengi þá missa menn sjónar af raunveruleikanum. Og raunveruleikinn er sá að það er búið að skera handlegginn af til að losna við sár á puttanum.

Varla haegt ad orda thetta betur.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 28.8.2020 kl. 05:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 300
  • Sl. sólarhring: 1066
  • Sl. viku: 6044
  • Frá upphafi: 2277795

Annað

  • Innlit í dag: 285
  • Innlit sl. viku: 5591
  • Gestir í dag: 283
  • IP-tölur í dag: 276

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband