Leita í fréttum mbl.is

Að hafa stefnu eða hafa ekki stefnu

Ríkisstjórnin hefur þá stefnu í sóttvarnarmálum, að samþykkja tillögur sóttvarnarlæknis með fyrirvara um samþykki landsstjórans Kára Stefánssonar.

Engin heildarstefna hefur verið mörkuð af ríkisstjórninni um viðbrögð við Covid fárinu, en eina viðmiðið sem sett hefur verið fram er að heilbrigðiskerfið ráði við álagið. 

Enginn ágreiningur er um að gæta skuli öryggis til að tryggja sem bestan árangur í baráttunni við Covidið, en spurningin er hvað er nauðsynlegt að gera hverju sinni og hvenær er farið yfir mörkin.

Æskilegt hefði verið að ríkisstjórn gerði borgurunum grein fyrir því hvað þurfi til að koma til að gripið sé til mismunandi ráðstafana. Ekkert slíkt hefur verið gert og nú þegar fyrir liggur að toppnum var náð nokkru áður en hertar reglur voru síðast settar á og fjöldi smita á niðurleið, þá skal ekki slakað á og borgurunum gert að norpa fyrir utan verslanir í vetrarkulda, af því að sóttvarnarlæknir telur enga ástæðu til að bregðast við breyttum aðstæðum fyrr en tími hertra aðgerða er fullnaður í desember n.k. 

Sé eingöngu tekið mið af ráðleggingum sóttvarnarlæknis gegnum tíðina, þá er ljóst, að sá tími er kominn, sem rétt væri að létta verulega af hömlum á frelsi fólks svo sem fjölda í verslunum og kaffihúsum svo dæmi séu tekin. En valdtökumennirnir vilja ekki afsala sér kyrkingartökunum á þjóðlífinu jafnvel þó að forsenda aðgerðanna sé löngu liðin hjá. Hinir hlýðnu jarma í kór, að fara beri að hinum vísindalegu tillögum sóttvarnarlæknis, þó þær séu aðrar nú en oft áður við sömu aðstæður. Vísind á bakvið aðgerðirnar liggja því fjarri því ljós fyrir eða eru til staðar yfirhöfuð.

Ríkisstjórnin bregst að sjálfsögðu ekki við vegna þess, að hún hefur enga stefnu nema þá að ráðum hinna nýju valdsmanna, sóttvarnarlæknis og Kára verði hlýtt, þó þeir séu ekki lýðkjörnir til að taka slíkar ákvarðanir einhliða. Þægindunum við að vera ábyrgðarlaus vill ríkisstjórnin ekki afsala sér. 

Nú berast fréttir af bóluefnum sem eiga að ráða niðurlögum Covid. Það er að sjálfsögðu af hinu góða. En svo virðist, sem það hafi hleypt nýjum móði í frelsissviptingarfurstana um að gefa nú hvergi eftir í að skerða frelsi borgarana þar til að stór hópur hefur verið bólusettur. Í annan stað þá er kominn upp sú krafa, að lýðinn skuli bólusetja með góðu eða illu. Þannig hafa nokkur flugfélög tilkynnt, að þau muni ekki fljúga með aðra en Covid bólusetta farþega í framtíðinni. 

Þegar fjöldahræðsla grípur um sig eins og í þessu tilviki, þar sem fræðimenn, ríkisstjórn og fjölmiðlar leggjast á eitt um að mynda hana, þá eiga þeir erfitt uppdráttar, sem tala um einstaklingsfrelsi, meðalhóf og krefjast þess, að rök séu færð fyrir einstökum aðgerðum ríkisstjórna og heilbrigðisyfirvalda. Þeir eru hraktir og smáðir eins og þjóðníðingurinn í samnefndu leikverki Íbsens forðum.

En samt sem áður verður að fara að leikreglum lýðræðisríkis og virða þær reglur sem fara verður eftir varðandi réttindi borgaranna. Þó veruleg áhöld séu um að það hafi verið gert í Cóvíd viðbrögðunum, þá er hægt að stoppa upp í þau göt, þar sem ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp um breytingar á sóttvarnarlögum, þar sem vegið er að rétti fólksins í landinu og réttindi þess skert. Það verður þó ekki sagt annað um ríkisstjórnina en að hún hafi þó fundið fjölina sína að þessu leyti og miði við að ríkisstjórnir í framtíðinni búi við sama öryggi ábyrgðarleysis og stefnuleysis og ríkisstjórnin fylgir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Hárrétt Jón. Hvernig verður brugðist við næst? 

Það er einfaldast að loka öllu og læsa. Unglingar kunna það. Ríkisstjórnin hefur heildarmyndina og ber pólitíska ábyrgð, en varpaði henni á embættismenn sem halda sig við verksvið sín í einu og öllu sem eru sóttvarnir og ekkert annað. Gott og vel í vor, en í sumar hefði ríkisstjórnir átt að fá einhverja óháða sem ekki eru talsmenn lyfjafyrirtækja eða "græða" á einhvern hátt á því að viss leið sé farinn. Einhverja góða sem eru sjálfsstæðir, sem fengju það gríðarlega flókna verkefni að skipuleggja sóttvarnir án þess að loka samfélaginu. Kannski er ekki hægt að finna óháða í svona litlu landi? Kannski. En það var ekki að einu sinni reynt að huga að heildarhagsmunum þjóðarinnar. 

Í mörgum fyrri krísum t.d. í seinni heimsstyrjöldinni tókst Bretum að leysa ótrúlega flókin verkefni. Þeir fengu ekki einstaka vammlusa embættismenn til að koma með tillögur sem þeir færu svo alltaf eftir, enda alltof mikið í húfi.

Íslenska dellan er sú að góðviljaðir embættismenn koma með almennar ráðleggingar fyrir alla þjóðina og miklum tíma er eytt í smáatriði og enn fleiri smáatriði. Allt landið er vaktað sem gengur ekki. Athyglin er út og suður og allt fer í vitleysu. Margir deyja á spítala. Eitthvað brást? 

Ef allt fólk sem er í áhættuhópum hefði verið vaktað og lokanir í lágmarki, hefðu öll dauðsföllin á spítalanum verið "opnu landi" að kenna. Jú, vegna þess að þegar allt kemur til alls eru þessar "aðgerðir" skottulækningar og hreinar ágiskanir.  Svo er fagnað og látið eins og um mikinn sigur sé að ræða. Það vottar ekki fyrir efa, en sumir benda á að fagna ekki of snemma!!

Því minni vísindi því meiri er harkan gagnvart hverskonar "óhlýðni". 

Benedikt Halldórsson, 24.11.2020 kl. 10:45

2 Smámynd: Bjarni Jónsson

Það er ósvinna, að Alþingismenn skuli ekki rísa upp gegn ofríki duttlungafullra embættismanna og krefjast tilslakana.  Einkum svíður manni staða framhaldsskólanna.  FG (Fjölbrautaskólinn í Garðabæ) sótti um undanþágu til að fá að beita sams konar sóttvarnaraðgerðum og í vor.  Skólinn er í góðri aðstöðu til að verjast pestinni.  Svar heilbrigðisráðuneytis var nei.  Gæta yrði samræmis við aðra skóla.  Þarna brást ráðuneytið rannsóknarskyldu stjórnsýslulaga.  Ráðuneytið treður lögvarinn og stjórnarskrárvarinn rétt borgaranna niður í svaðið.  Það eru engin vísindi á bak við stefnuna.  Á meðal fremstu faraldursfræðinga heims er bullandi ágreiningur.  Þetta er æfing stjórnkerfisins í valdníðslu. Hvar eru þingmenn ? 

Bjarni Jónsson, 24.11.2020 kl. 11:09

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

"En valdtökumennirnir vilja ekki afsala sér kyrkingartökunum á þjóðlífinu jafnvel þó að forsenda aðgerðanna sé löngu liðin hjá.

Hinir hlýðnu jarma í kór, að fara beri að hinum vísindalegu tillögum sóttvarnarlæknis, þó þær séu aðrar nú en oft áður við sömu aðstæður. Vísind á bakvið aðgerðirnar liggja því fjarri því ljós fyrir eða eru til staðar yfirhöfuð".

------------------------------------------------------------------------

Ætlar þú ekki að JARMA með múgsefnuninni?

Jón Þórhallsson, 24.11.2020 kl. 12:48

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það eru engin vísindi á bak við þetta. Einungis panikk. Og svo er ýtt undir ofsahræðsluna á hinum svonefndu upplýsingafundum þegar staðhæft er að pestin sé öllum jafn hættuleg og að 2-3% þeirra sem smitast af henni deyi, þegar staðreyndin er að hún er einungis hættuleg gömlu fólki og dánarhlutfallið nú er 0,07%.

Þorsteinn Siglaugsson, 24.11.2020 kl. 13:50

5 identicon

Ríkisstjórnin getur ekki markað neina vitræna stefnu í sóttvörnum vegna þess að enginn í ríkistjórninni hefur þekkingu á þessum málum. Ekki einu sinni heibrigðisráðherrann. Þessvegna verður að reiða sig á tillögur sérfræðinga. Í sambandi við efnahagsáhrif þá hefur enginn ráðherra í raun þekkingu á þeim sviðum. Þetta eru allt saman ráðherrar sem eru kjörnir á þing sem þingmenn eftir vinsældum og ekki gert ráð fyrir að þeir hafi neina þekkingu á þeim málaflokkum sem þeir stýra. Þar þarf líka sérfræðinga. Betra væri nú að ráðherrar hefðu faglega kunnáttu svo þeir gætu skilið á milli misvitra sérfræðiálita vegna þess að ábyrgðin er alltaf þeirra.

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 25.11.2020 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 112
  • Sl. sólarhring: 124
  • Sl. viku: 4348
  • Frá upphafi: 2291367

Annað

  • Innlit í dag: 101
  • Innlit sl. viku: 4007
  • Gestir í dag: 85
  • IP-tölur í dag: 80

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband