Leita í fréttum mbl.is

Launahækkanir ábyrgðarleysi hvers

Morgunblaðið bendir réttilega á það í leiðara, að engin innistæða er fyrir launahækkunum sem hafa orðið á íslenskum vinnumarkaði í djúpri kreppu. En hvað veldur?

Þeir sem leiða launahækkanirnar og hafa gert allt þetta kjörtímabil eru stjórnmálamenn, sem létu hækka laun sín af vinum sínum í Kjararáði um leið og þeir settust í valdastóla eftir kosningar. Sú launahækkun var órökstudd og röng og það var þá þegar fyrirséð, að tæki Alþingi og ríkisstjórn ekki á því, þá mundu verða keðjuverkanir á launamarkaðnum eða höfrungahlaup eins og fjármálaráðherra kallar það. 

Sú hefur líka orðið raunin og órói hefur verið á vinnumarkaðnum allt frá þessari sjálftöku stjórnmálastéttarinnar og æðstu embættismanna ríkisins. Aðeins einn þingmaður reyndi að andæfa, en ekki var hlustað á hann og hann er því miður þagnaður.

Þegar Morgunblaðið bendir réttilega á að sú launaþróun sem orðið hefur í landinu stenst ekki miðað við aðrar þjóðhagsstærðir, þá þarf fyrst að beina athyglinni að þeim sem tróna á toppnum og eru með starfskjör, sem eru langt umfram það sem almenni vinnumarkaðurinn getur boðið eða staðið undir. 

Það er því fyrst og fremst við ábyrgðarlausa ríkisstjórn og stjórnmálasétt að sakast. Þjóðfélagið lifir ekki endalaust á seðlaprentun og gjafapökkum frá ríkisstjórninni á kostnað framtíðarinnar.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Aðalástæðan er að sjálfsögðu eins og þú segir tilkomin frá stjórnmálaelítunni ,ástæðan hjá launafólki og þeim sem eru á lægstu laununum er hækkandi leiguverð á húsnæðismarkaði,í raun hefði fyrir löngu átt að frysta hækkanir á leigumarkaði eins og gert var í Þýskalandi,en þar sem elítan ræður öllu er það sennilega vonlaust dæmi.Fjármálaöflin ráða of miklu hérlendis.

Sigurgeir Árnason (IP-tala skráð) 25.11.2020 kl. 17:17

2 Smámynd: Snorri Gestsson

Sæll Jón, mikið að einhver þorir að tjá sig um meinið !

Snorri Gestsson, 25.11.2020 kl. 19:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 36
  • Sl. sólarhring: 59
  • Sl. viku: 1697
  • Frá upphafi: 2291587

Annað

  • Innlit í dag: 33
  • Innlit sl. viku: 1523
  • Gestir í dag: 30
  • IP-tölur í dag: 30

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband