Leita í fréttum mbl.is

Trump kveður - í bili?

Nú þegar Donald Trump lætur af embætti er hann niðurlægður af fjölmiðlum ákærður af þinginu og fær ekki að tjá skoðanir sínar á ýmsum samfélagsmiðlum. Var stjórn hans virkilega svo ill, að þetta sé verðskuldað. Svarið er afdráttarlaust nei. Þó ýmsir hlutir hafi farið úrskeiðis, þá getur Trump vel við unað þegar horft er yfir farinn veg. 

Áður en Kínaveiran færði allt úr lagi hafði tekist í stjórnartíð Trump, að koma atvinnuleysi í Bandaríkjunum niður í það lægsta sem það hefur verið í rúm 50 ár eða niður í 3.5%. Atvinnlíf í Bandaríkjunum tók við sér og tekjur fólksins sem Demókratar höfðu gleymt og fínu ríku Repúblíkanarnir höfðu aldrei munað eftir fengu verulegar raunverulegar kjarabætur og það fólk mun ekki gleyma Trump. Hann er hetjan þeirra og á það skilið. 

Trump lagði út í baráttu við Kína í andstöðu við flesta leiðtoga bandalagsþjóða sinna, en honum tókst að sýna heiminum fram á það með hvaða hætti Kína rekur sína pólitík með ofsa og yfirgangi, en nýtur í mörgum tilvikum stöðu þróunarríkis. Nýir samningar við Kína eru blóm í hnappagatið hjá Trump. 

Bullinu í loftslagsmálum var vikið til hliðar enda ljóst, að Parísarsáttmálinn er kyrkingartak á efnahagsstarfsemi Vesturlanda. Í utanríkismálum getur hann státað af ýmsu fleiru og síðast en ekki síst að hann er eini forsetinn á þessari öld, sem ekki hefur ekki hafið stríð. 

Trump var að mörgu leyti andstæðingur rótgrónu gjörspilltu stjórnmálastéttarinnar. Hann var skotspónn helstu fjölmiðla heims allan tímann meðan hann var forseti og verður það vafalaust áfram. Það er vissulega missir af því að fá ekki Trumpfréttina sína daglega frá RÚV hversu vitlausar svo sem þær gátu verið þau fjögur ár sem hann gegndi embætti. 

Raunar er með ólíkindum, að þessi sjálfhverfi maður og að mörgu leyti ógeðfelldi skyldi ná því að fá svo mikið fylgi í forsetakosningunum núna sem raun ber vitni. Hann fékk fleiri atkvæði en nokkur annar frambjóðandi Repúblíkana til forsetaembættis hefur fengið. Það fékk hann þrátt fyrir að allir helstu fjölmiðlar væri á móti honum og níddu hann niður. Það fékk hann þrátt fyrir að hefðbundnar skoðanakannanir segðu að hann fengi lítið fylgi. Það fékk hann þrátt fyrir að auðmennirnir á Wall Street og víðar gæfu milljarða á milljarða ofan í kosningasjóð Demókrata. Bankamennirnir þar á bæ vita hver er vinur þeirra og hverjum þeir geta stjórnað og það er ekki Donald Trump. Miðað við þessar aðstæður verður að segja að Trump hafi staðið sig frábærlega og umfram allar vonir. 

Trump gerði mistök í sambandi við viðbrögð gagnvart Kórónuveirunni, en verri mistök gerði hann þegar hann viðurkenndi ekki fyrr að stríðið væri tapað, hann fengi engu breytt varðandi niðurstöðu kosninganna og hætti að þybbast við með þeim afleiðingum að lokum, að ráðist var á þinghúsið.

Mesti veikleiki Trump er sennilega sjálfselskan, en það breytir í sjálfu sér engu varðandi ýmis baráttumál sem hann tók upp og  beitti sér fyrir. Sumir hafa fullyrt, að hann hafi í raun kveikt bál, sem muni magnast enn meir og ná meiri stuðningi án hans en með honum. 

Joe Biden gamalreyndur stjórnmálamaður tekur nú við. Hann hefur flotið áfram, sem þægilegur handverksmaður á vettvangi stjórnmálanna í  hálfa öld. Hann boðar afturhvarf ti fortíðar. Fróðlegt verður að sjá hvernig honum gengur og vissulega er ástæða til að óska honum og stjórn hans velfarnaðar. Góð stjórn og árangursrík í Bandaríkjunum hefur áhrif á efnalega velferð alls heimsins. Óneitanlega óttast maður samt, að vinstri slagsíðan á Demókrataflokknum muni valda miklum vandræðum fyrr heldur en síðar einkum í efnahagsmálum. 

Joe Biden var kosinn fyrst og fremst vegna andstöðu kjósenda við Trump en ekki vegna þess að nokkrum fyndist hann hrífandi stjórnmálamaður eða líklegur til að gera Bandaríkin yfirburðaríki á nýjan leik. Næstu ár skera úr um það, hvort hann átti yfirhöfuð eitthvað erindi í pólitíkina á nýjan leik.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Frábær greining Jón. Takk fyrir. Þú hefur samvisku, dómgreind og hugrekki til að segja þína skoðun. Trump er ekki sá djöfull sem "allir" segja hann vera. Hann á góðan þátt í friðinum í miðausturlöndum.  Vegna hugleysis tekur fólk þátt í einelti og allskonar óhæfu til að falla ekki i ónáð. Engin tekur að sér að verja "sakborning" sem verður æ sekari og ofsækjendurnir (á RÚV) æ reiðari með tímanum. 

Benedikt Halldórsson, 20.1.2021 kl. 11:45

2 identicon

  Það má vera að DT hafi gert eitthvað gott og þarf nú ekkert að þakka það sérstakéga til þess var hann kjörinn í upphafi.

  Hann á hinn bóginn var eins og fram kemur að ofan, algjörlega óferjandi vegna sjálfselsku og sjálfsdýrkunar sem m.a. kom frma í viðbrögðum hans varðandi Covid19, að maður tali nú ekki um að egna lýðinn til árásar á dýrmætastu stofnun Bandaríkjanna. Hann hugsaði ekki um neitt nema sjálfan sig og sinn feril og frama og gaf skít í þjóð sína alveg fram á síðasta dag. Hann leit líklegast á fólkið sem atkvæði á vogarskálum græðgi sinnar til að halda völdum og gaf skít í þau yfir fjögurhundruðþúsund sem látið hafa lífið vegna Covid19. Það er allavega eftirtektarvert hversu létt flestum leiðtogum okkar heimshluta er að vera nú lausir við DT og tala í fréttum í morgun, um að við séum að eignast vin í Hvíta húsinu á ný.

  Ég er sammála greinarhöfundi um Joe Biden að mestu og tel reyndar alveg makalaust að þessir flokkar þarna vestra skuli ekki hafa fram að bjóða yngra fólk líkt og gerist meðal okkar Evrópubúa. Vonandi tekur Kamala Harris við af karlinum sem fyrst, án þess að ég vilji honum neiitt illt blessuðum karlinum. 

  Óska annars greinarhöfundi alls hins besta.

Hjorvar O Jensson (IP-tala skráð) 20.1.2021 kl. 12:34

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég held að það sé ekki mikils friðar að vænta næstu fjögur ár og að "Trumpisminn" muni eflast og rísa næstu fjögur ár.

Höfuðástæðan er ekki stefnan heldur þær nornaveiðar sem sýnast í uppsiglingu gegn hinni nýju villutrú. Nýr McCarthyismi er að rísa þar sem 73 milljónir stuðningsmanna Trump er skotmarkið. Menn eru vel á veg komnir með að lýsa pólitíska skoðun og stöðu sem hryðjuverkastarfsemi. Það er rétt eins og Demókratar vilji borgarastríð. Þeir ögra nú hægrimönnum á svo öfgafullan hátt að eitthvað hlýtur að bresta.

Jón Steinar Ragnarsson, 20.1.2021 kl. 14:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1105
  • Sl. sólarhring: 1110
  • Sl. viku: 1519
  • Frá upphafi: 2292895

Annað

  • Innlit í dag: 1006
  • Innlit sl. viku: 1378
  • Gestir í dag: 960
  • IP-tölur í dag: 937

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband