Leita í fréttum mbl.is

Ralph Nader

Ralph Nader var þekktasti talsmaður neytenda um árabil í Bandaríkjunum og öðlaðist heimsfrægð. Hann varð þekktur þegar hann gagnrýndi bandaríska bílaiðnaðinn fyrir að sinna ekki öryggismálum. Í framhaldi af því skrifaði hann bókina "Unsafe at any speed".(óörugg á hvaða hraða sem er) um bifreið af tegundinni Corvair, sem General Motors framleiddi.

Viðbrögð General Motors þá stærsta fyrirtækis Bandaríkjanna, var ekki að bregðast við gagnrýninni og lagfæra galla í framleiðslu sinni heldur að veitast persónulega að Ralph Nader til að reyna að gera hann ómerkan.

Öldungardeildarþingmaðurinn Abe Ribicoff tók málið upp að höfðu samráði við Nader og málið var rannsakað og þá kom í ljós, að General Motors hafði ráðið einkaspæjara til að afla neikvæðra upplýsinga um Nader til að gera hann tortryggilegan, en ekki nóg með það þeir höfðu leigt vændiskonur til að leggja snörur fyrir Nader og honum var veitt eftirför. Allt var gert til að reyna að finna eitthvað neikvætt um Nader í stað þess að svara gagnrýninni. 

Málið endaði með þeim hætti, að General Motors var dæmt til að greiða Ralph Nader 425.000 dollara vegna brots á friðhelgi einkalífs og fleira. Nokkru síðar afgreiddi Bandaríkjaþing lög sem gerði kröfur til aukins öryggis í bandarískri bílaframleiðslu.

Þetta er rifjað upp hér af gefnu tilefni. Það er ekki ásættanlegt að stórfyrirtæki reyni að svara gagnrýni með að gera lítið úr eða veitast að gagnrýnandanum persónulega og brjóta gegn friðhelgi einkalífs hans.

Mér er ekki kunnugt um að nokkur þingmaður  á Bandaríkjaþingi hafi treyst sér til að verja þessar löglausu aðfarir General Motors gegn Ralph Nader á sínum tíma. 

Á sama tíma og gæta verður þeirrar meginreglu, að enginn sé sekur fyrr en sekt hans er sönnuð, þá er að sama skapi óafsakanlegt að vega að friðhelgi einkalífs einstaklinga, sem setja fram gagnrýni, jafnvel þó hún sé röng. Það eru með öllu óásættanlegar aðfarir hver eða hverjir svo sem í hlut eiga.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ágæt og verðug upprifjun Jón, að gefnu tilefni. Bandaríska stjórnarskráin var samin af mönnum sem mátu frjálsa hugsun og tjáningu, þó sporgöngumennirnir hafi farið langt út af sporinu eins og við þekkjum. Ralph Nader var stóhugi og bauð ofurefli byrginn til að koma málstað sínum á framfæri ef sannfæringin bauð honum. Þó hann næði ekki kjöri forseta urðu spor hans stærri en sumra sem völdu krók umfram keldu þ.e. auðveldu leiðina. Þessi góða saga sýnir að réttsýnir menn geta með einbeitni náð verulegum árangri og að sama sapi geta skynsamir menn einns og Brynjar Níelsson fallið í þá gryfju að verða um stundarsakir viðskila við samviskuna til að öðlast þæindi og jafnvel umbun fyrir flokkshollustu. Takk fyrir lærdómsríkt brot úr sögunni. (Y)

Sigurður Þórðarson, 26.5.2021 kl. 21:47

2 identicon

Blaðamennska virðist snúast orðið einmitt um það að vega að friðhelgi einkalífs t.d. með stuldi á farsíma sjúklings og nýta sér gögn þar úr, svo nýlegt dæmi sé tekið. Eins er með þessa samfélagsmiðluðu blaðamennsku þar sem menn eru ákærðir og dæmdir í "umræðunni" og sorpveitur sem kalla sig netblöð róa undir og taka þátt.  Blaðamenn réttlæta slíkt gjarnan með því að upplysingarnar eigi erindi við almenning og gera þannig fólk að "réttmætu" skotspæni sé það frægt. Setið er um að ná ólöglegum upptökum af einkasamtölum ólmóðra svo annað dæmi sé nefnt, og "leka" til þessara lélegu fjölmiðla sem þess vegna gætu hafa spunnið alla atburðarrásina frá A til Ö.  Þegar nákvæmlega þetta bítur síðan í rassinn á "frægu" blaðamönnunum af því einhver er nógu sterkur að taka á móti,  þá  fyllast þeir heilagri vandlætingu og fara að væla. Megin hugsun pistils þíns er auðvitað rétt en ég segi nú bara þar kemur vel á vondan! 

Bjarni G. Bjarnason (IP-tala skráð) 27.5.2021 kl. 00:23

3 Smámynd: Grímur Kjartansson

Málið var að Nader og hans teymi gat sýnt fram á að GM hafði vitað af áhættum með Corvair bílinn. GM taldi bara að ódýrara yrði að borga skaðabætur en að gera fyrirbyggjandi ráðstafanir. Þegar það lá fyrir þá voru skaðabæturnar hækkaðar í hæstu hæðir.

Ég hélt að það hefði lengi legið fyrir að Samherji hefði ráðið fyrrverandi rannsóknarlögreglumann. Héldu menn að hann væri bara að naga blýanta?

Ekkert bendir til þess að Samherji hafi lagt neina gildru fyrir Helga og því er slíkur samanburður vart við hæfi.

Grímur Kjartansson, 27.5.2021 kl. 06:44

4 Smámynd: Jón Magnússon

Grímur það er ekki verið að fullyrða neitt af minni hálfu heldur benda á að það verði að hafa ákveðnar meginreglur í heiðri. 

Í fyrsta lagi að hver skal talinn saklaus þangað til sekt hans er sönnuð. 

Í öðru lagi þá verða hvort heldur blaðamenn sem aðrir að virða stjórnarskrárvarin réttindi fólks eins og friðhelgi einkalífs. 

Jón Magnússon, 27.5.2021 kl. 09:32

5 Smámynd: Björn Ragnar Björnsson

Jakob Bjarnar Grétarsson orðaði aðalatriðin snilldarlega (úrdráttur af fb) "gagnrýnin verður að grundvallast á því sem fram kemur í fréttunum sjálfum. Ekki einhverjum meintum persónulegum skoðunum eða tilfinningum blaðamanna."

Við erum að tala um boltann og manninn. Er blaðamaðurinn að fara með fleipur? Hvað í hans fréttaskrifum er rangt? Ekki spyrja fyrst hverjir foreldrar hans eru eða hvað hann kann að hafa sagt í fb-spjalli eða hvort hann sé skráður í stjórnmálaflokk.

Eru rangfærslur eða bjögun í fréttinni? Sé svo er væntanlega og vonandi hægt að færa rök fyrir því.

Björn Ragnar Björnsson, 28.5.2021 kl. 01:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 142
  • Sl. sólarhring: 1214
  • Sl. viku: 5886
  • Frá upphafi: 2277637

Annað

  • Innlit í dag: 138
  • Innlit sl. viku: 5444
  • Gestir í dag: 137
  • IP-tölur í dag: 135

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband