Leita í fréttum mbl.is

Hvað börnin mega vita

Væntanlegur forustumaður Kristilegra demókrata stærsta stjórnmálaflokks Þýskalands, Armin Lanchet, hefur verið beraður af því að gefa Íslömskum, tyrkneskum harðlínutrúarbragðasamtökum kost á því að ráða hvað fái að standa í skólabókum sem kenndar eru í Þýskalandi og hvað ekki. Allt er þetta gert hjá Lanchet til að fá stuðning tyrkneska minnihlutans við flokk sinn. 

Þetta er raunar það, sem svonefndir öfgahægri menn og þjóðernispópúlistar hafa bent á að mundi gerast í kjölfar innflytjendastefnu Angelu Merkel og félaga.

Það er dapurlegt til þess að vita, að ekki megi kenna þýskum skólabörnum annað en það sem fær náð hjá þröngsýnum íslömskum trúarsamtökum, sem byggja heimsýn sína á miðaldahugmyndafræði Íslam. 

Með sama áframhaldi mun þetta líka gerast hér þegar skammsýnir, hugsjónalausir, stjórnmálamenn reyna að vinna stuðning fyrir einmenningu og miðaldasýn Íslam, þegar atkvæðastyrkur þeirra gefur hugsjónalausu valdastreitufólki tilefni til. 

Það er e.t.v. ekki skrýtið að nú skuli AfD (Alternative für Deutschland) sem er talinn yst á hægri vængnum og mótmælir stefnu Merkel í innflytjendamálum mælast stærsti flokkurinn í komandi sveitarstjórnarkosningum þ. 3. júní n.k.

En er ekki ráð að við byrgjum brunninn áður en það verður of seint?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Jónsson

Þetta held ég, að geri út um vonir CDU um tilhlýðilegan árangur á sambandsþingskosningunum í september í ár til að leiða næstu ríkisstjórn Þýzkalands.  Markus Söder er í Bæjaralandi, sem einnig sóttist eftir að verða kanzlaraefni, er miklu vænlegri stjórnmálaleiðtogi. 

Bjarni Jónsson, 28.5.2021 kl. 18:32

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Hverjir munu fylla flokk AfIsland? Hlýtur ekki að vanta einhvern málsvara fyrir vestræn gildi á Íslandi til mótvægis við Semu Erlu og Svein lækni?Hver ætlar að halda uppi vörnum fyrir okkur gamla Íslendinga? Píratar og Þórhildur Sunna? Andrés Ingi?

Halldór Jónsson, 28.5.2021 kl. 20:06

3 Smámynd: Loncexter

Það er sorglegt til þess að hugsa, að það þarf fyrst að hálfrústa íslensku samfélagi til að fólk vakni upp hér og kjósi rétt.

En að læra af mistökum annara landa er víst ekki leyfilegt, þar sem það er af flestum kallað ,,rasismi"

Loncexter, 29.5.2021 kl. 18:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 46
  • Sl. sólarhring: 1254
  • Sl. viku: 1576
  • Frá upphafi: 2293044

Annað

  • Innlit í dag: 40
  • Innlit sl. viku: 1431
  • Gestir í dag: 40
  • IP-tölur í dag: 40

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband