Leita í fréttum mbl.is

Vertu öruggur um leiðina

Á síðasta degi fjöldabólusetningar gegn Covíd boðaði sóttvarnarlæknir á ný upplýsingafund vegna aukinna smita. Á þeim fundi kom fram, að bólusetningar veita ekki vörn gegn smiti og bólusettir geta smitað. 

Eðlilega eru þetta vonbrigði fyrir alla. Lærðir sem leikir höfðu fram að þessu trúað að með fjöldabólusetningum myndaðist hjarðónæmi, við yrðum laus úr viðjum ótta og innilokunar og lífið gengi eftir það sinn vanagang eins og það var fyrir janúar 2020. 

Nú er hnípið veirutríó í vanda og veit ekki hvað í ósköpunum á til bragðs að taka. Fullyrðingar um bólusetningar hafa reynst rangar eða í besta falli gróflega yfirdrifnar. Smit aukast, en engin veikist samt alvarlega eftir því sem sóttvarnarlæknir upplýsir.

Vegna aukinna smita þó ekki alvarlegra íhugar sóttvarnarlæknir nú að grípa til aðgerða þó hann viti ekki hverjar þær eigi að vera, vegna þess að e.t.v. í framtíðinni komi í ljós, að einhverjir sem veikjast þurfi á spítalainnlögn að halda. 

Slíkar forsendur fyrir því að hefta borgaralegt frelsi eru vægast sagt ófullburða.

Telji sóttvarnarlæknir nú, að bólusetningar komi ekki í veg fyrir alvarlegar afleiðingar Cóvíd smita,þá hefur hann því miður haft rangt fyrir sér og búið er að bólusetja þorra þjóðarinnar með bóluefni á tilraunastigi, sem ekki sér fyrir endan á hvaða afleiðingar muni hafa á framtíðarheilsufar þjóðarinnar. Bóluefni sem framleiðendur taka enga ábyrgð á ekki einu sinni virkni framleiðslunnar, en ríkisvaldið taldi samt nauðsynlegt að dæla í fólk án nokkurs fyrirvara og skerti réttindi þeirra sem ekki létu bólusetja sig.

Hafi sóttvarnarlæknir rétt fyrir sér um virkni bólusetningar fyrir þá sem smitast, þá er lítil ástæða til að grípa til annarra aðgerða en að brýna fyrir fólki einstaklingsbundnar varnir.

Vafalaust hefðu stjórnvöld átt að tileinka sér einkunarorð bandarísku frelsishetjunnar Davy Crockett í allri þessari baráttu: "Vertu öruggur um leiðina og haltu síðan áfram." 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Godur pistill og sorglega sannur.

Sigurður Kristján Hjaltested, 16.7.2021 kl. 11:09

2 Smámynd: Bjarni Jónsson

Það er stórmerkileg grein í Morgunblaðinu í dag, 16.07.2021, sem leiðir sterkum rökum að því, að aðgerðir sóttvarnalæknis hafi valdið meira tjóni en gagni og að dauðsföll vegna þessra aðgerða hafi , orðið fleiri en fjölda fórnarlamba C-19 nemur.  Landlæknir virðist rangtúlka tölur um afleiðingar bóluefnanna.  

Rannsónir á áhrifum bóluefnanna á dýr eru uggvænlegar, þar sem í ljós kemur, að eiturefni frá bóluefnunum safnazt upp í milta, nýrnahettum og lifur, og geta valdið þrálátum sjúkdómum.  

Bjarni Jónsson, 16.7.2021 kl. 11:31

3 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Nokkuð margir læknar og vísindamenn, hafa bent á lyf, sem veitir betri vörn, en umrædd bóluefni. Þetta lyf hefur verið notað í Indlandi, Mexíkó, S-ameríku og mörgum fleiri löndum með góðum árangri. Íslenskur læknir hefur barist öttuglega í tæpt ár fyrir að fá að ávísa þessu lyfi hér, en ekki haft árangur sem erfiði.

Og síðustu rannsóknir um afleiðingar bólusetninga lofa því miður ekki góðu.Bendi þar á grein hér á moggabloggi.https://throstur-jonsson.blog.is/blog/throstur-jonsson/

Kristinn Ásgrímsson, 16.7.2021 kl. 17:43

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þórólfur og þríeykið vita alveg hvað á til bragðs að taka en þora bara einfaldlega ekki að segja það.

Það liggur fyrir að núna að undanförnu hafa næstum eingöngu bólusettir verið að greinast með smit og smitrakning hefur sýnt að þeir fáu óbólusettu sem greinast hafi smitast af bólusettum. Eftir að hætt var að skima bólusetta á landamærum hafa þeir jafnframt verið að bera nýju smitin inn í landið. Engin smit hafa að undanförnu komið inn í landið með óbólusettum því þeir fá ekki inngöngu nema með því að ganga í gegnum svipugöng skimunar og sóttkvíar.

Faraldursfræðin (og einföld rökfræði) segja því að nýju takmarkanirnar (sem engum ætti að dyljast að vofa yfir) verði fyrst og fremst að ná til hinna bólusettu, af þeirri einföldu ástæðu að af þeim stafar mesta hættan.

Engin rök standa hins vegar til þess að leggja takmarkanir á óbólusetta á meðan þeir eru ekki að sleikja hurðarhúna og dreifa smitum út um allt eins og hinir bólusettu sem halda sig "örugga" (vegna þess að stjórnvöld lofuðu því).

Ástæðan fyrir því að engin í þríeykinu eða sem tengist því þora að segja þetta upphátt er að með því væru þau að viðurkenna að þau hafi allan tímann haft rangt fyrir sér og loforð um "eðlilegt samfélag" þegar markmiðum bólusetningar áætlunar yrði náð reyndust á sandi byggð. Um leið og það yrði viðurkennt myndu þau missa allan trúverðugleika og um leið öll tök á fjöldastjórnuninni.

Þetta er allt að snúast upp í andhverfu sína í höndunum á þeim samkvæmt lögmálinu um ófyrirséðar afleiðingar og þau eru því miður aðeins leiksoppar í atburðarásinni.

Narratívið mun áfram taka sífelldum breytingum.

Guðmundur Ásgeirsson, 16.7.2021 kl. 22:51

5 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Bólusettir eru að veikjast illa, rangt hjá sóttvarnarlækni:
https://thordisb.blog.is/blog/thordisb/entry/2267144/

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 17.7.2021 kl. 01:11

6 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Góðpu fréttirnar eru þær að bóluefnin eru bara búin að draga 26 manns til dauða, og ekki vitað til að þau muni valda nema nokkur hundruð varanlegu heilsutjóni.

Svo er þetta með taugabilanirnar og sjálfsofnæmið sem þeir segja að megi búast við.  Hugsanlega krabbamein eftir 2-10 ár.

Þetta verða mjög skemmtilegir tímar.  Afar jákvætt, allt saman.

Hugsa sé, fólk fær bara samt einkennalaust kvef...

Ásgrímur Hartmannsson, 17.7.2021 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 558
  • Sl. sólarhring: 648
  • Sl. viku: 2944
  • Frá upphafi: 2294495

Annað

  • Innlit í dag: 520
  • Innlit sl. viku: 2687
  • Gestir í dag: 496
  • IP-tölur í dag: 481

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband