Leita í fréttum mbl.is

Stórslys bandarískrar utanríkisstefnu

Nú þegar soldátar Talibana marséra syngjandi inn í Kabúl 10 dögum eftir að sókn þeirra hófst, þá er um leið staðfest mesta stórslys bandarískrar utanríkisstefnu síðan Víetnam.

Innrás Bandaríkjanna í Afganistan fyrir 20 árum, til að steypa þáverandi stjórn Talibana var í sjálfu sér rökrétt, eftir árás Al Kaída á tvíburaturnana o.fl. en þeir störfuðu í skjóli Talibananna. En það sem eftir hefur fylgt er það ekki. 

Það er ekki hlutverk Bandaríkjanna eða NATO að berjast gegn spillingu í Afganistan eða reyna að koma á lýðræði að vestrænni fyrirmynd. Þáverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna Donald Rumsfeld sagði  "They are not our broken societies to fix." og það átti að gefa auga leið. 

Á þeim 20 árum sem liðin eru síðan er áætlað að Vesturlönd aðallega Bandaríkin hafi eytt 2 trilljónum Bandaríkjadala í að byggja upp Afganistan þ.á.m. 300 þúsund manna herlið sem er hvergi sýnilegt, þegar 80 þúsund manna herlið Talibana lætur til sín taka og leggur undir sig landið á 10 dögum. 

Niðurlæging utanríkisstefnu Bandaríkjanna er því algjör og nokkuð ljóst að Talibanar sem og margir aðrir eru sannfærðir um að þeir geti farið sínu fram, þar sem núverandi Bandaríkjaforseti Joe Biden, sé hvorki til stórræðana né annarra ræðanna.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Þessir 300 þúsund (0,8% fólksins) hafa einfaldlega talið að launatékkarnir muni hætta að berast og þar með var sá her horfinn á nokkrum dögum eftir 20 ára uppbyggingu (spillingu?)
Allir Afganir sem eiga peninga flýja nú land og þar sem flytja þarf inn næstum allar nauðsynjar þá verður að spyrja 
Hvaðan mun peningarnir koma til að halda landinu gangandi?
Varla mun nokkur tilbúinn til að lána 

Grímur Kjartansson, 15.8.2021 kl. 17:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 73
  • Sl. viku: 861
  • Frá upphafi: 2291627

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 760
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband