Leita í fréttum mbl.is

Innrásin

Í gær var því haldið fram í fréttatíma RÚV sjónvarpsins af afganskri konu sem hér býr, að Ísland hefði ráðist inn í Afganistan. Þessi ummæli voru ekki leiðrétt í fréttatímanum, en konan ásamt stallsystur sinni var síðan gestur Kastljóss.

Íslendingar réðust aldrei inn í Afganistan, það gerðu Bandaríkin árið 2001. Íslendingar studdu ekki þá innrás þeir voru ekki um hana spurðir. NATO ríkin studdu við uppbyggingar og hjálparstarf í Afagnistan og sum sendu herlið til aðstoðar við að tryggja frið í landinu og stuðla að virkri uppbyggingu og lýðréttindum ekki síst lýðréttindum kvenna. 

Einn róttækasti þingmaður þjóðárinnar, Rósa Björk Brynjólfsdóttir segir að þáttaka Íslands hafi verið á sviði öryggismála,endurreisnar og eflingar stjórnarfarsins og landið sé eitt af áhersluríkjum okkar í þróunarsamvinnu og áherslan sé á stuðning við afganskar konur og janfréttismál. Þetta er raunar sannleikurinn í málinu, jafnvel þó að Rósa Björk segi hann. 

Við sendum lögreglumenn til að stuðla að öryggi borgara í landinu. Við sendum hjúkrunarfólk, kennara og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til að freista þess að tryggja mannréttindi og öryggi borgara Afganistan fyrir öfgafullum múslimskum miðaldahyggjumönnum.

Þær stöllur sem töluðu í Kastljósi í gær lýstu því raunar hvað þær hefðu getað notið mun meira frelsis, öryggis og lýðréttinda síðustu 20 ár meðan vestræn ríki reyndu að tryggja mannréttindi og kynjajafnrétti í landinu. 

Hver er þá sú ábyrgð sem við þurfum að axla eftir að hafa stundað hjálparstarf í landinu á annan áratug. Berum við ábyrgð á því að ekki var hægt að uppræta víðtæka spillingu í landinu. Berum við ábyrgð á því að her landsins eða yfirstjórn var reiðubúin til að verja frelsi sitt. Staðreyndin er sú, að við berum enga ábyrgð á því að herir miðaldahyggjunnar skuli hafa tekið yfir í landinu þrátt fyrir víðtæka aðstoð Vesturlanda.

Við getum verið stolt af því framlagi sem við lögðum fram í Afganistan. Það er fráleitt að reyna að koma því inn  hjá fólki, að Vesturlönd beri ábyrgð á því að afganska þjóðin skuli ekki bera gæfu til að vernda eigið frelsi. Vonandi verður það sáðkorn sem var sáð varðandi lýðréttindi á síðustu 20 árum í landinu til að eitthvað vitrænt gerist þar í mannréttindamálum og stjórnarfari á næstu árum. En sú staðreynd að þessi tilraun til að koma á vitrænu stjórnarfari í landi múslima leiðir ekki til ábyrgðar þeirra sem það reyna.

Allt tal um að axla ábyrgð leiðir í raun að því, að þeir sem það segja eru að réttlæta það að við eigum að taka við miklum fjölda fólks, sem var ekki tilbúið að berjast sjálft fyrir frelsi sínu og mannréttindum. 

Við þurfum ekki að axla neina ábyrgð. Við þurfum ekki að skammast okkar fyrir eitt eða neitt varðandi Afganistan og við þurfum ekki að leggja neitt sérstakt fram vegna aðgerða okkar þar í landi.

Það tal sem stjórnmálamenn í landinu hafa nú uppi hver um annan og éta upp eftir forsætisráðhera, að við þurfum að axla ábyrgð á Afganistan er ekkert annað en bull. Er það einhver erfðasynd sem er þess valdandi eða hvað. Megum við ekki reyna að hjálpa fólki án þess að bera ábyrgð ef það er ekki fólk til að taka við hjálpinni. Berum við t.d. ábyrgð á því að skip sekkur þar sem við höfum kennt fólki fiskveiðar?  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Jónsson

Frábært andóf við bullinu, sem veltur upp úr forsætisráðherra á tilfinningaþrungnum andartökum.  Því miður virðist utanríkisráðherra vera meðvirkur og talaði um, að Íslendingar mundu axla sinn hluta ábyrgðarinnar af gjörðum NATO, eða svo var að skilja.  Ábyrgð á því, hvernig komið er í Kabúl, er 0 í Reykjavík.  

Bjarni Jónsson, 17.8.2021 kl. 11:03

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Algerlega sammála þínum sjónarmiðum lögmaður góður.

Afganistan núna kemur okkur akkúrat ekkert við. Við gerðum það sem við gátum og meira er ekki í boði.

Hvaða skuldbindingar höfum við gagnvart þessu fólki?Verður fólk ekki að taka ábyrgð á sjálfu sér?

Séu þetta landráðamenn í augum Talibana þá er þetta fólk ekkert sem okkur við kemur. Það hlýtur að taka ábyrgð á sjálfu sér og sínum gjörðum alveg eins og hver maður annar.

Halldór Jónsson, 17.8.2021 kl. 11:27

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það fór hrollur um mig að heyra þessa afgönsku konu fara með slíkt fleypur. Um leið minni ég á að þetta kalla ég örgustu frekju.- Ég verð að segja það

Helga Kristjánsdóttir, 17.8.2021 kl. 15:40

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Íslenska Lýðveldið studdi hernám Nató í landinu síðustu tvo áratugi. Rauðlaukur og Gullaukur, ku vera laukur.

Guðjón E. Hreinberg, 17.8.2021 kl. 15:56

5 Smámynd: Jón Magnússon

Einmitt Bjarni. En það er svona með stjórnmálamenn gagnrýnislausrar  samhyggju. að þeir éta jafnan vitleysuna hver eftir öðrum þó það sé engin rökræn glóra í því sem verið er að segja.  

Jón Magnússon, 17.8.2021 kl. 16:50

6 Smámynd: Jón Magnússon

Mergurinn málsins Halldór Jónsson þetta er ekki okkar vandamál og við áttum aldrei að skipta okkur af þessu og taka Donald Rumsfeld til fyrirmyndar og segja. "This is not our broken society to worry about 

Jón Magnússon, 17.8.2021 kl. 16:52

7 Smámynd: Jón Magnússon

Það fór raunar aulahrollur um mig líka og ég var dapur að horfa á þessa dómadags frekju og tilætlunarsemi. Stjórnandi Kastljóssins sýndi enn einu sinni að hún er ekki fær um að starfa í samræmi við lög um Ríkisútvarpið. 

Jón Magnússon, 17.8.2021 kl. 16:53

8 Smámynd: Jón Magnússon

Guðjón telur þú að vera varnarliðs Bandaríkjanna í Keflavík hafi verið hernám Íslands ef ekki gildir þá ekki það sama um Afganistan?

Jón Magnússon, 17.8.2021 kl. 16:55

9 identicon

Spurt er um ábyrgð
Þegar Bandaríkjamenn gera innrás í Afganistan fyrir 20 árum síðan ,þá sat við völd í Kabul ríkisstjórn Talibana.
Það er enginn vafi að um innrás var að ræða þar sem Bandarísku hermennirnir voru þar ekki í boði þarlendra stjórnvalda.
Að auki hröktu Bandaríkjamenn Stjórn Talibana frá völdum.
Þetta er alveg augljósleg innrás og ekkert annað.
.
Þá getum við spurt okkur,hvernig stendur á að þessi stjórn Talibanna komst til valda?
Það gerðist með þeim hætti að Bandaríkjastjórn studdi þá í baráttunni gegn Sovétmönnum með vopnasendingum, fjárframlögum og herþjálfun,auk pólitísks skjóls.
Þetta gerðu Bandaríkjamenn þrátt fyrir að þeim mátti vera fyllilega ljóst hverskonar mannskap þeir voru að leiða til valda í landinu.
Það hefði átt að hringja einhverjum bjöllum þegar Talibanar réðust á skóla í Kabúl og drápu alla karlkyns nemendur og kennara en hnepptu stúlkurnar í ánauð.
Svar Bandaríkjanna var að senda þeim fleiri Stinger.
Talibanar sátu því í umboði Bandaríkjastjórnar og þar liggur ábyrgð þeirra.

Þetta er í raun saga Bandaríkjanna þegar kemur að afskiftum þeirra af öðrum ríkjum:
Þeir leita bandalags við hvaða glæpa eða ofstæisöfl sem er.
Það eru engin takmörk.
Afleiðingarnar eru alltaf alveg hræðilegar fyrir þjóðir sem verða fyrir árás af þessu tagi. 
Stuðningur Bandaríkjanna við Talibana á sínum tíma snérist aldrei um Afgönsku þjóðina.
Hann snérist um að klekkja á Sovétmönnum sama hvað það kostaði.
Þeir vissu fullvel að þetta mundi kosta Afgani hræðilegar hörmungar.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá var það versta sem hefði komið fyrir Afanskann almennig ef Sovétmenn hefðu haldið Talibönum niðri,að krakkarnir þar hefu lært að lesa og skrifa.

Boorgþór Jónsson (IP-tala skráð) 17.8.2021 kl. 22:54

10 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Eftir allt sem við höfum gert fyrir Afgani, ætlast forsætisráðherra til að við iðrumst. Þvílík öfugmæli.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.8.2021 kl. 04:40

11 identicon

Mætti snúa þessu á hvolf og spyrja hvort Íslendingar beri ábyrgð á því að Bandaríkin hafi yfirgefið Afganistan.

Heiðar Þór Leifsson (IP-tala skráð) 18.8.2021 kl. 14:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 57
  • Sl. sólarhring: 64
  • Sl. viku: 1718
  • Frá upphafi: 2291608

Annað

  • Innlit í dag: 53
  • Innlit sl. viku: 1543
  • Gestir í dag: 47
  • IP-tölur í dag: 46

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband