Leita í fréttum mbl.is

Kynrænt sjálfræði og Harry Potter

Árið 2019 samþykkti Alþingi lýðveldisins Íslands, samhljóða lög um kynrænt sjálfræði. Í sjálfu sér ekki að undra,að stjórnmálastéttin skyldi standa þétt saman um að samþykkja lög, sem fara í bág við heilbrigða skynsemi og náttúrulögmálin. 

Rithöfundurinn J. K. Rawlings, sem gerði Harry Potter bækurnar hefur amast við vitleysu eins og þeirri sem koma fram í ofangreindum bulllögum Alþingis og bent á að það sé ekki fólk sem fari á túr heldur séu það konur sem fara á túr.

Vegna þessara ummæla hefur J.K.Rawlings sætt ofsóknum og hótunum og lögregla telur heppilegast að hennar sé gætt allan sólarhringinn. Þannig er nú tjáningarfrelsinu ógnað, þegar öfgahópar í stríði við sjálfa náttúruna í samferð með skrúðgöngu keisarans sem var ekki í neinum fötum, þrátt fyrir að hann teldi sig skarta fegurstu skartklæðum á jörðu hér eiga í hlut. 

Í nýlegri færslu skrifaði J.K. Rawlings: 

"Stríð  er friður" "Frelsi er þrældómur" "Fáfræði er styrkur"

"Einstaklingurinn með stóra tippið sem nauðgaði þér er kona"

Síðasta setningin vegna einstaklingsins sem skilgreindi sig sem konu og nauðgaði stúlkubarni. J.K.Rawlings var nóg boðið þegar hún heyrði  af galinni kynrænum sjálfræðishugmyndum lögreglunnar og lét þessi orð falla af því gefna tilefni. 

Er til of mikils mælst að löggjafinn leiðrétti óendanlegt bull í lagasetningu eins og umrædd lög og felli þau úr gildi og miði við að ekki sé fest í lög ákvæði um að gangur himintunglanna sé öðruvísi en þau raunverulega eru og kynræn vitund fari ekki eftir hentugleikum heldur því hvernig náttúran gerði þau karl og konu. Enda bara tvö líffræðileg kyn þó öðru sé haldið að óhörnuðum grunnskólanemendum á Íslandi. Enda eitt fárra landa sem býr við vitundarvakningur ruglsins um kynrænt sjálfræði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Að halda því fram að kynin séu fleiri en tvö,

sýnir hversu alvarlega ruglað þjóðfélagið er orðið.

Þrýstingur minnihluta hópa er nægur til þess að þingheimur

breytist í einhvers konar viðriðni og þora ekki að segja neitt

af ótta við það að verða kallaðir illum nöfnum.

Fremst í flokki er VG, enda forystusauður þess flokks

búin að lýsa því yfir að fóstureyðingar séu í lagi

fram að fæðingu. Þarf að segja eitthvað meira um þann flokk..?

Stór hættulegur íslensku samfélagi.

Sigurður Kristján Hjaltested, 14.12.2021 kl. 22:05

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Það er einkenni Marxisma að iðka rangsnúning. Orðræða sem rangsnýr eða ógnar almennu velsæmi, er stjórnarskrárbrot, og velsaæmi er skilgreint eða varðað af Kristilegu siðferði samkvæmt stjórnarskrá.

Eitt sem Marxistar elska, er að fá fólk út í að rökræða fáránleika, náttúran ákvarðar tvö kyn og kynhneigð fylgir kyni. Öfugsnúin kynhneigð er sálfræðiflækja og getur aldrei flokkast eðlileg né heldur útdregnar (abstract) kynvitundir.

Menning sem lætur svona rangsnúning viðgaangast, endar á að láta sannfæra sig um að smit sé sótt, að varðhald án dóms og laga sé í lagi sé smitkví uppnefnd sóttkví, leyfir að árlegt Kvef og Flensa séu uppnefnd farsótt, og lætur hafa sig út í stærstu lyfjatilraun og glæp gegn mannkyni sem hugsast getur, sem væri raunsæju fólki óhugsandi.

Við hefðum betur meinað Marxistum að yfirtaka menntakerfið á síðustu áratugum. Þá væri menningin (kannski) ekki sturluð.

Guðjón E. Hreinberg, 15.12.2021 kl. 06:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 445
  • Sl. sólarhring: 1302
  • Sl. viku: 1975
  • Frá upphafi: 2293443

Annað

  • Innlit í dag: 407
  • Innlit sl. viku: 1798
  • Gestir í dag: 401
  • IP-tölur í dag: 392

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband