Leita í fréttum mbl.is

Nesjamennska og útnáraháttur

Ritstjóri Fréttablaðsins kemst að þeirri niðurstöðu í leiðara í dag, að nesjamennska og útnáraháttur Íslendinga valdi því, að við erum ekki í Evrópusambandinu (ES).

Svo virðist, sem ritstjórinn hafi staðnað í sögulegum viðhorfum til alþjóðamála á fyrri öldum Íslandssögunnar. Vart verður þjóð, með hlutfallslega ein mestu  alþjóðlegu viðskipti, með fjölþjóðlegt öflugt listalíf og þúsundir útlendinga vinnandi að arðsköpun í landinu sökuð um nesjamennsku og útnárahátt.

Raunar skiptir engu máli hvað íslenska þjóðin gerir af því að nauðhyggja ritstjórans og sálufélaga hans, leiðir alltaf til  þeirrar niðurstöðu, að einungis sé um tvo kosti að velja. Að vera frjáls og fullvalda þjóð eða fórna fullveldinu og vera áfram hjáleiga utan ES eins og hann orðar það. Ritstjórinn vill fórna fullveldinu. 

Því miður hafa menn eins og ritstjórinn og útgáfuaðilar Fréttablaðsins staðnað í tilverunni varðandi viðhorf til ES og neita að horfast í augu við þá óbærilegu yfirstjórn í Brussel sem hefur tekið sér síaukin völd og krefst þess nú, að lögin þeirra gildi umfram landslög í aðildarríkjunum. 

Hvernig stendur á því að þeir sem hafa gert Evrópuguðinn ES að leiðtoga lífs síns neita að horfast í augu við þann raunveruleika, að með því að ganga í ES mundum við fórna auðlindum þjóðarinnar eins og fossaflinu og jarðvarmanum sem og aðgang að fiskimiðunum.

Af hverju neita þeir að horfast í augu við að smáþjóðin Ísland verður þá fyrst hjáleiga með því að fórna fullveldi sínu og ganga í ES. Ritstjórinn hefði betur litið í orðabók áður en hann valdi orðið hjáleiga.

Hjáleiga verður Ísland nefnilega þá fyrst færi svo illa að hún gengi í ES og fórnaði fullveldinu. 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Vantar S í nesjamennsku.

Jón Steinar Ragnarsson, 27.1.2022 kl. 15:15

2 Smámynd: Jón Magnússon

Takk fyrir það Jón. Búinn að bæta því við spurning hvenær leiðréttingin kemur fram.

Jón Magnússon, 27.1.2022 kl. 16:22

3 Smámynd: Bjarni Jónsson

Stöðnun er rétta orðið.  Hvernig ímynda þessir útnárar á Fréttablaðinu sér, að Ísland, sem er með miklu hærri þjóðartekjur á mann en flest ríki ESB, geti hagnazt á því að verða hluti af sambandsríki Evrópu  ? Minni á, að Olof Scholz, kanzlari, og ríkisstjórn hans hafa sem yfirlýsta stefnu, að ESB skuli breytast úr ríkjasambandi í sambandsríki.  Breytir það engu fyrir þennan sértrúarflokk undirlægjuháttarins ?

Bjarni Jónsson, 27.1.2022 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 69
  • Sl. viku: 855
  • Frá upphafi: 2291621

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 754
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband