Leita í fréttum mbl.is

NATO eða ekki NATO hver er stefna Vinstri grænna.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur ítrekað lýst því yfir síðast á fréttafundi í hádeginu, að það skipti öllu máli að efla samstöðu og varnarviðbúnað NATO þjóða, til að koma í veg fyrir að víðtækara stríð brjóstist út og tryggja öryggi okkar sem þjóðar. 

Atburðir síðustu klukkustunda hafa enn á ný sýnt fram á hvað aðild að NATO skiptir miklu fyrir öryggi þjóða. 

Við hlið utanríkisráðherra á fundinum stóð Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og varð í útliti eins og henni væri illt í maganum við þessar yfirlýsingar utanríkisráðherra.

Þrátt fyrir að Katrín Jakobsdóttir hafi ítrekað sótt leiðtogafundi NATO og unað sér þar, þá er stefna hennar og Vinstri grænna að Ísland segi sig úr NATO. VG hafnar því að aðild að NATO skipti máli varðandi varnarviðbúnað Íslands

Í ljósi aðstæðna verður nú að krefja forsætisráðherra svara við því, hvort hún og flokkur hennar Vinstri grænir berjist enn fyrir úrsögn Íslands úr NATO og á hverju eigi að byggja varnarviðbúnað Íslands of öryggi ef þessari stefnu VG verður framfylgt.

Sé svo, VG vilji ótrauð hér eftir sem hingað til að Ísland segi sig úr NATO er vandséð í ljósi aðstæðna að Katrín Jakobsdóttir geti áfram gegnt starfi forsætisráðherra.   

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Jónsson

Á viðsjártímum sem þessum er óviðunandi, að forsætisráðherra sé andvíg helzta haldreipi Íslendinga í öryggismálum landsins.  Yfirmaður Bundeswehr lýsti því yfir í dag, að herafli Þýzkalands væri "þurr" og átti líklega við, að hann væri gagnslaus.  Öðru vísi mér áður brá. Varnir Evrópu vestan Úkraínu hvíla á NATO.  Evrópa hefur hundsað hervarnir frá falli Ráðstjórnarríkjanna, en nú mun hún vígbúast.  Það illvirki að ráðast á friðsama þjóð í Evrópu mun verða Pútín og rússnesku þjóðinni dýrkeypt.  Innrás Rússa í Úkraínu er sturlun.  

Bjarni Jónsson, 24.2.2022 kl. 17:06

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mín analísa af þessu er að þetta byrjaði allt með Maidan uppreisninni og valdatöku hægri afla í kjölfarið. Átök sem hvött voru áfram af ESB og USA. McCain á Maidantorgi með nýnasistum með upprétta arma er í fersku minni.

Þetta gerðist í kjölfar þess að Ukraíns stjórnvöld höfnuðu viðskiptabandalagi við ESB, vafalaust undir pressu frá Putin. 
Viðbrögðin við þessum stjórnarskiptu voru þau að austurhéröðin klufu sig frá Úkraínu og lýstu yfir sjálfstæði. Síðan hafa verið skærur þar í átta ár.

Það sem gerði útslagið hér var umsókn Úkraínu um aðild að NATÓ, vafalaust með aðild að ESB í huga í kjölfarið. 

Þessar erjur nú enda með samkomulagi um að Pútín haldi Donetsk og Úkraína gengur í NATO og ESB. Held að sú sviðsmynd sé löngu ákveðin og að allt þetta húllumhæ og aðgerðarleysi vesturveldanna sé leikrit. Mín trú er sú að þetta verði búið áður en skrifræðið í ESB verður búið að ákveða nokkrar mótaðgerðir.

Nordstream verður kláruð í kjölfarið, því iðnveldin í evrópu geta ekki án hennar verið. Úkraína er bensínstöð evrópu með flóknu neti gasleiðsna frá Rússlandi. Á það verður ekki klippt sísvona.

Jón Steinar Ragnarsson, 24.2.2022 kl. 17:07

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Annað sem taka ber inn í þessa svipsmynd er að Rússland er í bandalagi með Kínverjum og þessvegna algerlega óhræddir. Vert að taka eftir að engar hótanir eða þrýstingur hefur verið settur á Kína í þessum efnum.

Ef vesturveldin fara að grafa skotgrafir í Úkraínu og festa sig þar í eilífum skærum munu Kínverjar marséra inn í Taiwan.

Raunar er bara tímaspursmál hvenær Kínverjar gera það. Hrossakaup vesturveldanna í Úkraínu munu vafalaust efla Kínverja til aðgerða í Taiwan, sem er ekki viðurkennd þjóð nema að nafninu til hér ef marka má blendin skilaboð SÞ þar að lútandi.

Jón Steinar Ragnarsson, 24.2.2022 kl. 17:17

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

NATÓ var búið að vera um leið og fyrstu sprengjunum var varpað á Líbýu, og það sáu allir hvert stefndi þegar Nató réðist á Afganistan og Írak. En í morgun dó Nató.

Guðjón E. Hreinberg, 24.2.2022 kl. 19:23

5 Smámynd: Birgir Loftsson

VG er flokkur kjána, skiptir engu máli hvað þau segja enda hafa þau samþykkt veru Íslands í NATÓ með þögninni. Verkin tala. Ræðuhöld um frið og herleysi er fyrir almenna flokksmenn.

Birgir Loftsson, 24.2.2022 kl. 19:44

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Fengu þegjandi dýrustu sætin við gnægtarborðið með afborgunum!

Helga Kristjánsdóttir, 25.2.2022 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 42
  • Sl. sólarhring: 1250
  • Sl. viku: 1572
  • Frá upphafi: 2293040

Annað

  • Innlit í dag: 36
  • Innlit sl. viku: 1427
  • Gestir í dag: 36
  • IP-tölur í dag: 36

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband