Leita í fréttum mbl.is

Úkraína, NATO og Katrín Jakobsdóttir

Í gær fór forsætisráðherra íslenska lýðveldisins, Katrín Jakobsdóttir til sérstaks fundar við Jens Stoltenberg framkvæmdastjóra NATO. Í yrirlýsingu eftir fundinn segir,að þau Jens og Katrín hefðu rætt framtíðarstefnumótun NATO og áhrif innrásar Rússa í Úkraínu á öryggismál Evrópu.

Þrátt fyrir þessa sameiginlegu fréttatilkynningu, þá lætur Katrín Jakobsdóttir, sem hún hafa verið á einhverjum allt öðrum fundi og annarra erinda en opinbera yfirlýsingin segir til um.

Í viðtali við íslenska sjónvarpið að loknum fundinum sagði Katrín, að hún og flokkur hennar væru andsnúin NATO og þau í VG vildu eiga góð samskipti við allar þjóðir og Evrópusambandið og þetta sýndi hvað friður væri mikilvæg forsenda. Einmitt?

Katrín var ekki að koma af fundi með framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna,Evrópusambandsins eða einhvers alheimsfriðarráðs. Hún var að koma af fundi með framkvæmdastjóra NATO. Viðfangsefni snúast um mikilvægi NATO aðildar til að tryggja öryggi Íslands og frið í Evrópu. Um það hefur aðild að NATO alltaf snúist. 

Þegar forsætisráðherra Íslands mætir til NATO fundar og tekur þátt í stefnumótun bandalagsins, en telur samt á sama tíma, að sér komi bandalagið ekki við, þá verður vart lengra komist í að tala tungum tveim og bulla alla vega með annarri.  

Er ekki mál til komið að einhver þingmaður spyrji Katrínu Jakobsdóttur sérstaklega eftir því á Alþingi hver afstaða hennar er til öryggismála þjóðarinnar og hvort hún telur að NATO skipti þar mikilvægu máli. Sé forsætisráðherra ekki þeirrar skoðunar, þá dæmir hún sig úr leik til að sækja fundi á vegum bandalagsins. En það hefði Katrín átt að vita fyrir löngu og hún getur ekki bæði haldið og sleppt. Haldið í NATO erlendis og vélað um málefni þess, en afneitað bandalaginu síðan innanlands.

Svona afstaða er ekki einu sinni sæmandi ráðherra hvað þá forsætisráðherra á ögurstundu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Jónsson

Þetta er algerlega ótrúleg hegðun forsætisráðherra Íslands.  Ég trúi þessu varla, að hún segist núna vera andsnúin NATO, þegar þjóðir á borð við Finna og Svía eru alvarlega að íhuga að óska eftir aðild að NATO vegna yfirvofandi öryggisógnar í Evrópu, þar sem land utan NATO varð fórnarlamb (ekki hið fyrsta, sbr Georgíu). Ef hún er andsnúin NATO, er hún á móti aðild Íslands að NATO.  Þannig forsætisráðherra getum við ekki setið uppi með núna.  Þessi afstaða er ólíðandi.  Hún leikur þá opinberlega tveimur skjöldum.  Ef þetta spyrst út innan NATO, sem það vafalaust gerir, getur sá grunur fallið á ríkisstjórn Íslands, að hún stundi moldvörpustarfsemi innan NATO.  Þetta er of langt gengið í ómerkingshætti Vinstri hreyfingarinnar-græns framboðs.  Hún getur ekki samtímis stutt öryggisstefnu Íslands og viljað landið úr NATO.

Bjarni Jónsson, 3.3.2022 kl. 10:27

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir þetta Jón.

Þetta þýðir að vinstrimenn í Evrópu líta nú á NATO sem nýja félagsmálastofnun: eða GNARRTO.

Svipað og þegar EEC-tollabandalagið breytti sér í nýja sovétríkið EU (NSU), það er að segja ESB. Þá hoppuðu vinstrimenn í Evrópu loksins á vagninn, sem áður var ístruklúbbur iðnaðarins og hét: "European Economic Community".

Það styttist því í endalok NATO.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 3.3.2022 kl. 12:35

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Sýndu mér tilfelli þar em Marxistar segja sannleika og ég skal éta hattinn minn.

Guðjón E. Hreinberg, 3.3.2022 kl. 23:57

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Kata greyið kiknar alltaf í hnjánum þegar hún fær að hitta Stoltenberg. Svo fær maður alltaf kjánahroll þegar hún fer að segja frá því í sjónvarpinu að hún hafi fengið að hitta hann.

Þorsteinn Siglaugsson, 5.3.2022 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 98
  • Sl. sólarhring: 1305
  • Sl. viku: 1628
  • Frá upphafi: 2293096

Annað

  • Innlit í dag: 91
  • Innlit sl. viku: 1482
  • Gestir í dag: 91
  • IP-tölur í dag: 91

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband