Leita í fréttum mbl.is

Takmarkað gagn af fjórðu sprautu

Athyglisvert að Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir skuli nú segja að það sé takmarkað gagn af fjórðu Kóvíd sprautnni. Tel upp á að það sé rétt hjá honum. 

En stóra spurningin, sem þarf að rannsaka gaumgæfilega er sú hvort það var yfirleitt eitthvað gagn af fyrstu sprautunni, annarri eða þriðju. 

Fólk smitaðist þó það væri bólusett og það smitaði. Stjórnmála-, heilbrigðis-, og fréttaelítan flúði þá í að segja að fólk fengi sjúkdóminn vægar. En var það svo? 

Af hverju ekki rannsaka þetta mikilvæga mál í þaula, þannig að við fáum að vita hvort aðgerðir stjórnvalda víða um heim með þvingunarráðstöfunum og þrýstingi voru þýðingalausar. 

En þá jafnframt hvaða ábyrgð eiga hin ábyrgðarlausu lyfjafyrirtæki að bera, sem hafa mokað inn ofsagróða frá skattgreiðendum e.t.v. á algjörlega fölskum forsendum. 

Svo hafa misvitrir stjórnmálamenn viljað taka mannréttindi af fólki sem vildi ekki láta dæla þessu tilraunaglundri í sig. Þarf ekki að skoða það líka hvaða gögn þeir höfðu í höndum sem gat réttlætt slík brot á mannréttindum og í leiðinni hvort slík brot eru afsakanleg yfirleitt.  


mbl.is Takmarkað gagn að fjórðu sprautu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Svo merkilega vildi til að stjórnmálamennirnir gleyptu við lygum lyfjarisanna, sem þó höfðu fengið á sig marga dóma fyrir ólöglegar aðferðir í fyrri málum, jafnvel þó þeir vildu ekki láta nokkurn mann vita hvað í sullinu leyndist fyrr en eftir 75 ár. Hefði það ekki átt að kveikja efasemdir hjá stjórnmálamönnunum eða ætli þeir hafi kannski verið keyptir???

Tómas Ibsen Halldórsson, 31.3.2022 kl. 10:30

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Það má byrja á því að rannsaka hvort sóttvarnalæknir hafa orðið uppvís að skjalafalsi, því hafi hann fullyrt hluti um vírusinn, smithættu, smitvarnir, eða genasprautuna sem eru staðleysur, þá er hann sekur um skjalafals sem varðar átta ára fangelsi og sé svo þá hefur hann beitt því gegn þjóðríkinu sem eykur refsirammann um helming.

Guðjón E. Hreinberg, 31.3.2022 kl. 10:55

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hann er samt búinn að láta kaupa fyrir sig bóluefni við omikron sem enginn veit hvort virkar, vitandi að smit af þessu væga afbrigði er betri vörn og hættuminni en nokkur önnur.

Ég hef farið óbólusettur í gegnum þetta en fékk omikron um daginn, sem var eins og meðalflensa í tvo daga. Reyndar eins og tussa í viku, en það truflaði mitt daglega líf lítið sem ekkert.

Ég veðjaði greinilega rétt með að taka ekki þátt í sirkúsnum. Ef eitthvað er, þá dróg hann þetta óþarflega á langinn og gerði líkast til illt verra.

Jón Steinar Ragnarsson, 31.3.2022 kl. 18:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 69
  • Sl. viku: 854
  • Frá upphafi: 2291620

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 753
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband