Leita í fréttum mbl.is

Evrópusambandið og fjölmiðlaelítan óttast tjáningarfrelsið.

Elon Musk, sem ku vera ríkasti maður í heimi, hefur keypt Twitter og segist ætla að tryggja tjáningarfrelsi. Hann gagnrýnir að Twitter hafi m.a. lokað á dagblaðið New York Post, sem var Joe Biden Bandaríkjaforseta mótdrægt í aðdraganda forsetakosningana í Bandaríkjunum. Blaðið hafði m.a. komist yfir ýmis gögn varðandi son Biden sem voru síður en svo þeim feðgum til framdráttar. Þetta mátti ekki sjást þó  ekki væri farið með rangt mál. Enda grétu þeir starfsmenn Twitter sem höfðu staðið fyrir ritskoðunarstefnu og útilokunarstefnu á sumt fólk og skoðanir þegar fréttist að Musk hefði keypt fjölmiðilinn.

Musk sagði í þessu sambandi: "Free speech is the bedrock of functioning democracy." (tjáningarfrelsi er undirstaða þess að lýðræðið sé virkt) Hann spyr hvort þeir sem andæfa gegn kaupum hans á Twitter séu á móti tjáningarfrelsi. Verðug spurning.

Athyglisvert er að skoða hverjir hafa goldið varhug við og jafnvel andæft kaupum Musk á Twitter og því sem hann hefur sagt um frelsi fólks til tjáningar. 

Alþjóðasamtök blaðamanna bregðast illa við þegar Musk segir að fjölmiðillinn eigi að tryggja tjáningarfrelsi en ekki hefta það.

Evrópusambandið bregst illa við þegar maður kaupir fjölmiðil og segist ætla að tryggja tjáningarfrelsið.

Lögfræðingur fjölmiðilsins sem Musk keypti fór að gráta þegar hann hafði keypt fjölmiðilinn og tilkynnti að bann sem hún hafði sett á ákveðna fjölmiðla yrði aflétt þar sem nú mundi fjölmiðillinn starfa á grundvelli tjáningarfrelsis. 

Sérkennilegt að ofangreindir lyklaverðir hins eina sannleika sem má heyrast m.a.að skipt skuli um þjóðir í Evrópu og Bandaríkjunum, kynferðislegu sjálfræði og banni við því að orðinu megi halla gagnvart múslimum eða transfólki, nauðsyn skyldubólusetninga ggn Cóvíd o.fl. o.fl., skuli bregðast svona illa við því, að nú skuli eiga að leiða tjáningarfrelsið á ný til öndvegis hjá fjölmiðlinum Twitter.

Þolir vinstri sinnaða fjölmiðlaelítan og kassafólkið og möppudýrin hjá Evrópusambandinu ekki frjáls skoðanaskipti og tjáningarfrelsi allra. Mega bara þau þóknanlegu sem hafa "réttar skoðanir" að mati kassafólksins og möppudýrana fá að tjá sig og breikka enn meira gjána sem er á milli vinstri fjölmiðla- og  stjórnmálaelítunar og almennings í Vestur Evrópu og Bandaríkjunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Vinstrið er alveg stórkostleg skemmtun. Einn vinstrimaður segir að Twitter sé eins og McDonalds sem þurfi reglulega að taka til og viðhalda röð og reglu til að halda viðskiptavinunum ánægðum. 

https://www.theguardian.com/commentisfree/2022/apr/28/elon-musk-doesnt-understand-free-speech-or-twitter-at-all

Geir Ágústsson, 28.4.2022 kl. 14:44

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Kommúnismi á erfitt uppdráttar þar sem er málfrelsi.

Það er ástæðan.

"Modereituð" forum leita til vinstri, ómodereituð til hægri.  Sem útskýrir muninn á Twitter & 4Chan.

Ásgrímur Hartmannsson, 28.4.2022 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 506
  • Sl. sólarhring: 648
  • Sl. viku: 2892
  • Frá upphafi: 2294443

Annað

  • Innlit í dag: 470
  • Innlit sl. viku: 2637
  • Gestir í dag: 450
  • IP-tölur í dag: 436

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband