Leita í fréttum mbl.is

Eigi skal farið að lögum

Ríkisútvarpið, Rauði krossinn og Píratar hafa hafið samræmda herferð fyrir því að ekki skuli farið að lögum varðandi útlendinga og öllum sem koma á fölskum forsendum andstætt útlendingalögum til landsins skuli umsvifalaust veitt svonefnd "alþjóðleg vernd" þó þeir eigi engan rétt til þess. 

Raunar þá barátta fyrir opnum landamærum.

Gríðarlegur fjöldi svonefndra hælisleitenda hafa komið til Evrópu undanfarin ár. Meginhluti þeirra eru ungir karlmenn, sem hafa borgað smyglurum mikla peninga til að þeir geti farið á höfrungahlaupi til þess lands í Evrópu sem þeir vilja koma til. Raunar komast þeir þannig fram fyrir aðra sem eru í meiri þörf. Þeir eyðileggja vegabréf sín og önnur skilríki að ráði smyglarana og reyna síðan að fá hæli með því að segja skröksögur. 

Eftir Kóvíd er staðan sú á Íslandi að tæplega 300 hlaupastrákar sem áttu aldrei rétt á að fá alþjóðlega vernd eru í landinu og bíða brottflutnings á kostnað skattgreiðenda. Skattgreiðendur hafa greitt fyrir hvern þeirra um hálfa milljón á mánuði þann tíma sem þeir hafa verið í landinu ólöglega og það líka eftir að lokaniðurstaða réttarkerfisins lá fyrir að þeir ættu engan rétt á að vera hér. 

Verri meðferð á opinberu fé er vandfundin. 

Stríðið í Úkraínu hefur leitt til mikils flóttamannastraums frá Úkraínu til annarra landa Evrópu. Yfir 90% flóttamanna frá þessu raunverulega stríðshrjáða landi eru konur, börn og gamalmenni. Þegar hlaupastrákarnir eiga í hlut, þá er samsetningin heldur betur önnur, yfir 90% ungir karlmenn og örfáar konur og börn. Sýnir betur en nokkuð annað hverskonar bull og rugl er í gangi. 

Þrátt fyrir að ljóst sé, að Evrópa verði að einbeita sér að því að taka við raunverulegu flóttafólki frá Úkraínu og eigi lítið eða ekkert aflögu fyrir aðra, þá lætur talsmaður Sameinuðu þjóðanna sér sæma að gagnrýna Evrópuríki og saka þau um rasisma fyrir að mismuna rauverulegu flóttafólki og hlaupastrákunum. 

Það er annars merkilegt með framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að hann hamast alltaf á Evrópuríkjum að taka við fleiri meintum flóttamönnum, en víkur aldrei orðum að Kína, Japan, Saudi Arabíu eða Flóaríkjunum. Hvað skyldu þessi ríki annars taka á móti mörgum flóttamönnum meintum eða raunverulegum. Svarið er einfalt Engum. Það er Evrópa sem á að vera gististaður,hótel og griðastaður fyrir allan heiminn.

Skyldi einhverjum detta í hug, að biðja Saudi Arabíu, Japan eða Kína að taka við flóttamönnum frá Úkraínu. Engum. Það er bara Evrópa sem er opin fyrir þá. Kveðjur framkvæmdastjóra SÞ. eru því ósæmilegar. Hann ætti að snúa sér að ríku löndunum í hinum Íslamska heimshluta, sem vilja ekki taka við einum einasta af sínum trúbræðrum og ypta öxlum og segja,"ekki við það mundi valda of mikilli röskun". 

Nú þurfum við að einbeita okkur að því að sýna mannúð þeim sem á  þurfa að halda en víkja þeim burt, sem eru hér á fölskum forsendum. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég held að grunnurinn að öllum góðum lausnum byggist á samvinnu og gagnkvæmri virðingu fyrir öllum þeim skoðunum sem ekki meiða annað fólk.
´<>e>g held að útlendingar sé í eðli sínu vont hugtak og meiðandi fyrir skapara himins og jarðar.
Jörðin er ótrúlegt ævintýri og nædtum ólýsanlegt kraftaverk í sinni margræðu fullkomnun þar sem rekast á grimmdin , miskunnarleysið og svo hin ólýsanlega fegurð, göfgi og væntumþykja.
Hinn mikli skapari þékkti enga útlendinga vegna þess að þegar einhver þrf einhvers við til að uppfylla skyldur sínar þá ber að svara fyrst þeirri spurningu hvort einhver hafi fæðst með merki á enninu sem heimilar honum að reka viðkomand frá dyrum sínum og siga á hann hundinum!

>Öll erum við jöfn við fæðingu og þinglýsing er uppfundin af andskotanum.

Engin lausn er til í þessu útlendingamáli 0nnur en sú að taka í sig kjark og tala upphátt og opinskátt um öll mál.

Við eigum að leggja okkur fram við að gefa öllum innflytjendum tækifæri og leiðbeina þeim fyrstu skrefin með því skilyrði að þeir samþykki möglunarlaust að hlíta íslenskum lögum sem byggja að estu leyti á jafnrátti og sanngirni.
>>Við eigum að vísa frá landinu öllum þeim sem trúa því að austurlenskur kauoahéðinn verði tekinn í guðatölu. 

Árni Gunnarsson, 23.5.2022 kl. 11:09

2 identicon

Ahmad Mansour er sálfræðingur af palestínskum ættum, en er búsettur í Þýskalandi. Hann hefur látið málefni innflytjenda mikið til sín taka í ræðu og riti. Hefur m.a. ritað bókina Generation Allah.

Einhvers staðar lét hann  þau orð falla að vinstri menn væru mestu rasistarnir, þeir vildu að múslímskir innflytjendur væru meðhöndlaðir eins og "Kuscheltiere", (einhvers konar tuskubangsar)                       Þeir væru svo minni máttar að ekki mætti styggja þá.

Hér er viðtal við Ahmad Mansour þar sem hann lýsir m.a. uppeldi sínu í litlu arabísku þorpi í Ísrael : Ahmad Mansour &#150; Psychologe (01.02.2016 Vis A Vis)           

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 23.5.2022 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 489
  • Sl. sólarhring: 669
  • Sl. viku: 2875
  • Frá upphafi: 2294426

Annað

  • Innlit í dag: 453
  • Innlit sl. viku: 2620
  • Gestir í dag: 436
  • IP-tölur í dag: 424

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband