Leita í fréttum mbl.is

Svíar og Finnar í Nato og aukin hernaðarumsvif bandalagsins

Enn einu sinni er forsætisráðherra þjóðarinnar, Katrín Jakobsdóttir mætt á ráðsfund NATO. Þar verður ákveðið að Svíar og Finnar verði aðildarþjóðir að NATO og eru þá allar Norðurlandaþjóðirnar aðilar að varnarbandalaginu. 

Jafnframt hefur verið tilkynnt, að ákveðið verði að fjölgað verði gríðarlega í viðbragðsher bandalagsins, þannig að Katrín Jakobsdóttir mun fyrir Íslands hönd samþykkja að taka inn nýjar aðildarþjóðir Finna og Svía og auka hernaðarumsvif bandalagsins verulega.

Hér heima berst hún hinsvegar fyrir úrsögn Íslands úr NATO og herlausu landi. 

Sennilega hefur aldrei verið í þessu landi ráðherra eins mikils tvískinnungs og forsætisráðherrann okkar. Hversu langt geta menn gengið í pólitík að tala tungum tveim og tjá sig sitt með hvorri. 

Eða eins og Hamlet Danaprins sagði. "Að vera eða vera ekki það er spurningin"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Jón.

Án allrar kerskni þá kæmi mér ekki á óvart
þó Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tæki við
af Jens Stoltenberg núverandi framkvæmdastjóra NATÓ..

Reyndar átti þessi friðarhöfðingi að vera horfinn af
sviðinu en tímabil hans var lengt um eitt ár.

Hins vegar gæti Katrín tekið við stöðu frmkvæmdastjóra NATÓ strax þessvegna og færi svo er mér forvitni á hvort
það leiði til lausnar á deilu Rússa og Úkraínumanna og
þá með aðkomu fyrrum kanslara Þýzkalands.

Húsari. (IP-tala skráð) 29.6.2022 kl. 21:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 575
  • Sl. sólarhring: 898
  • Sl. viku: 6319
  • Frá upphafi: 2278070

Annað

  • Innlit í dag: 524
  • Innlit sl. viku: 5830
  • Gestir í dag: 502
  • IP-tölur í dag: 488

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband