Leita í fréttum mbl.is

The real thing

 Fjölmennasta og íburðarmesta veisla ársins, er og verður lúxus loftslagsráðstefnan í Egyptalandi Cop27. Þangað komu um 40 þúsund manns nánast allir kostaðir af skattgreiðendum og neytendum. Meir en 400 einkaþotur lentu með þáttakendur á ráðstefnunni og ótölulegur fjöldi risaþotna sá um að flytja restina. 

Þáttakendurnir eiga það sameiginlegt,að hafa stórkostlegar áhyggjur af kolefnissporinu þínu en engar af sínu.

Hin nýja stétt, nomen klatura, nýaldarinnar þarf ekkert að spara enda borgaði Kóka Kóla fyrir herlegheitin.

Auglýsingaskilti Kóka Kóla eru iðulega reisulegustu mannvirkinn í fátækustu hlutum heimsins. "The real thing" gnæfir yfir opnum klóökum í borgum og bæjum þriðja heimsins. Hjálpin mikla. Þá skiptir heldur máli að geta gripið í flösku sem hefur að geyma "the real thing".

Þáttakendum á Cop27 fannst ekkert að því að Kóka Kóla borgaði undir rassinn á þeim, þó það hafi lengi verið talið einkennismerki hins óhefta kapítalisma. Ekki þarf lengur að vandræðast yfir því þegar þeir ofurríku eru gengnir í lið með bullinu, sem þeir hafa að sjálfsögðu fundið leið til að græða á.

Svandís Svavarsdóttir og trúarsystkini hennar í loftslagskirkjunni brostu breitt og slógu taktfast, að heimurinn væri að farast ef ekki yrði gripið til þess að rýra lífskjör fólks í Evrópu og N-Ameríku.

Hin nýja stétt umhverfisverndarsinna gerði engar athugasemdir við það,að árlega framleiðir Kóka Kóla 120 milljarða einnota plastik flaskna. Þesar einnota plastik flöskur 120.000.000.000 valda mikilli eyðileggingu, mengun og  eyðileggingu á lífríkinu, ekki síst þar sem auglýsingaskiltin um "the real thing" gnæfa yfir mannlífinu.

Fyrirheitið á auglýsingaskiltinu um hinn sanna unað og velferð, sem falin er í einnota plastflösku er álíka vitlaust og annað sem gerðist á þessari ráðstefnu hinnar sjálfhverfu nýju stéttar loftslagskirkjunnar. 

Síðustu línurnar í kvæði Steins Steinars um Kommúnistaflokk Íslands, in memoriam með lítilli breytingu eiga jafnvel við  um gildi tildurráðstefnunnar Cop27

Á gröf hins látna blikar drykkjartunna frá Kóka Kóla Company.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Eigum við ekki að segja að þessi færsla sé " The real thing"! 

Sigurður I B Guðmundsson, 30.11.2022 kl. 10:47

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þar höfum við það, hræsnin lætur ekki að sér hæða, eða hvað???  Svandís veit nákvæmlega hvað hún er að gera enda innanbúðar hjá kommúnistunum í Davos klíkunni, sennilega einn af lærisveinum KS ásamt fleirum íslenskum stjórnmálamönnum.

Þeir, KS og BG, fara ekki lengur leynt með hvað þeir stefna að. KS var meira að segja á ráðstefnu G8 ríkjanna en þar safnast saman forustumenn átta öflugustu ríkja heims, menn sem kosnir eru til forystu í ríkjum sínum. En KS hver kaus hann, hvaða ríki var hann fulltrúi fyrir?????? Jú á tali hans mátti heyra að hann ásamt þeim sem saman voru komnir hefðu öll völd í hendi sér og það væri öllum almenningi fyrir bestu að fara eftir þeirra tilskipunum.

Ætli KS sé sjálfkjörinn einræðisherra á vegum NWO (New World Order)?????

Tómas Ibsen Halldórsson, 30.11.2022 kl. 14:02

3 Smámynd: Jón Magnússon

Ég vona það Sigurður. 

Jón Magnússon, 30.11.2022 kl. 19:42

4 Smámynd: Jón Magnússon

Það er rétt Tómas. Hræsnin lætur aldrei að sér hæða.

Jón Magnússon, 30.11.2022 kl. 19:44

5 Smámynd: Gunnlaugur Baldvin Ólafsson

Fyrir hvað stendur KS og BG?

Gunnlaugur Baldvin Ólafsson, 1.12.2022 kl. 06:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 37
  • Sl. sólarhring: 57
  • Sl. viku: 1698
  • Frá upphafi: 2291588

Annað

  • Innlit í dag: 34
  • Innlit sl. viku: 1524
  • Gestir í dag: 31
  • IP-tölur í dag: 31

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband