Leita í fréttum mbl.is

Sjálfsfróun og 100 kyn

Stjórnmálamenn í Bretlandi hafa vaknað upp af værðarsvefni við að foreldrar á eyjunni Mön mótmæltu því að dragdrottning annaðist um kynfræðikennslu í skólanum. 

Við skoðun kemur í ljós, að það sem verið er að kenna börnum jafnvel ókynþroska bornum er m.a. hvernig eigi að fara að við sjálfsfróun og að kynin séu 100 eða fleiri. 

Börn allt niður í 12 ára gömul eru spurð um hvað þeim finnist um munnmök og að taka í rassinn. Umfjöllun um þessa merkilegu kynfræðslu má finna í DT í dag. Einnig er sagt að forsætisráðherra Breta, Rishi Sunak sé verulega misboðið og ríkisstjórnin muni bregðast við því sem er ekki lengur kennsla heldur boðun ákveðinnar hugmyndafræði. 

En hvernig er kynfræðslu háttað á Íslandi? Er hún með sama hætti og í Bretlandi, þar sem fylgjendur ákveðinnar hugmyndafræði ráða ferðinni og ausa úr afbrigðilegu helabúi sínu bullfræðunum yfir börnin? Hvaða eftirlit og hvaða námskrá er það sem er fylgt. 

Því miður er þess ekki að vænta að forsætisráðherra sem er í sama flokki og föllnu leiðtogarnir, Nicole Stugeon, Jacinda Ardern og  Truedau, sem enn hangir sem  forsætisráðherra Kanada, hafi nokkuð við kynfræðslu af þessu tagi að athuga. Hún hefði sennilega gott af að fá fræðslu frá samtökunum 22 félagi homma og lesbía, þar sem mér sýnist skv. grein formanns félagsins í Morgunblaðinu í dag vera lýst andstöðu við bullfræði gildandi kynjafræði.

En málið er á borði menntamálaráðherra og hún ætti að taka á sig rögg og láta það ekki halda áfram að gerast áfram hér á landi, sem er að raungerast í Bretlandi þessa dagana.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Hér má sjá dæmi um kennslu og verkefni í skólum hér. Vikan heitir, VIKA SEX með tilvísun í enska orðið Sex eða kynlíf.

https://frettin.is/2023/02/20/hvad-er-vika-sex-i-grunnskolum-daemi-um-nams-og-fraedsluefni/

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 5.3.2023 kl. 08:41

2 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Þórdís fyrir gott innlegg og upplýsingar. 

Jón Magnússon, 5.3.2023 kl. 09:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 30
  • Sl. sólarhring: 71
  • Sl. viku: 883
  • Frá upphafi: 2291649

Annað

  • Innlit í dag: 29
  • Innlit sl. viku: 781
  • Gestir í dag: 26
  • IP-tölur í dag: 26

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband