Leita í fréttum mbl.is

Kemur það á óvart að það sé fjöldi ólöglegra innflytjenda á Íslandi?

Rútubíll fer út af vegi og í ljós kemur að stór hluti farþegana eiga ekki að vera í landinu. Yfirvöld bregðast við og segjast ætla að gera eitthvað í málinu. Datt þetta ofan af himnum gerðu yfirvöld sér ekki grein fyrir ástandinu fyrr en þetta slys varð?

Ég hef í meir en ár bent á það að íslensk stjórnvöld hefðu ekki hugmynd um það hvað margir útlendingar væru hér í landinu við vinnu eða annað.  Þá hef ég haldið því fram að stjórnvöld réðu ekki við ástandið. Þessu hefur verið mótmælt kröftuglega af ýmsum forustumönnum Samfylkingarinnar og nokkrum embættismönnum sem hafa haldið því fram að málin væru í besta lagi.

Það er óneitanlega kaldhæðni örlaganna að það þurfi umferðarslys til að stjórnvöld viðurkenni vandann. Þau hafa þó ekki farið lengra en að viðurkenna að það sé fjöldi útlendinga við störf í landinu án trygginga eða félagslegra réttinda. Stjórnvöld hafa hins vegar ekki gert neinar ráðstafanir til að bregðast við þeim mikla fjölda útlendinga sem hingað hafa komið á síðustu 2 og hálfu ári.

Af hverju er ekki fjölgað í lögreglunni. Af hverju eru ekki ráðnir lögreglumenn sem tala slavnesk mál. Af hverju er ekki skoðað hvort ávinningur okkar af Schengen samstarfinu sé minni en sá vandi sem skapast við að vera í Schengen. Á Schengen svæðinu eru milljónir manna týndar. Hvað skyldu margir þeirra vera hér?

Það er slæmt þegar stjórnmálamenn og opinberir starfsmenn berja höfðinu við steininn og segja fólki ekki satt um ástandið. Rútubílaslysið sýnir að það hefur ekki verið gert.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Alltaf að koma betur og betur í ljós að Schengen var mikil mistök.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.8.2007 kl. 12:46

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Schengen er enn eitt bölið sem erum að þola vegna amtstíðar Halldórs Ásgrímssonar. Ömurleg er hans pólitíska arfleifð.

Halldór Jónsson, 31.8.2007 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 532
  • Sl. sólarhring: 908
  • Sl. viku: 6276
  • Frá upphafi: 2278027

Annað

  • Innlit í dag: 485
  • Innlit sl. viku: 5791
  • Gestir í dag: 469
  • IP-tölur í dag: 455

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband