Leita í fréttum mbl.is

Heilbrigðisráðherra og Háskólasjúkrahús.

Á sínum tíma deildu þeir hart Alfreð Þorsteinsson og núverandi heilbrigðisráðherra í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Alfreð var þá stjórnarformaður Orkuveitunnar og lagði út í ýmsa vafasama hluti eins og risarækjueldi svo dæmi séu tekin. Heilbrigðisráðherra var þá í minnihluta og deildi hart á Alfreð. Alfreð vék fyrir síðustu kosningar til borgarstjórnar fyrir helstu vonarstjörnu Framsóknarflokksins Birni Inga Hrafnssyni og var rétt sú dúsa að verða formaður framkvæmdanefndar um byggingu hátæknisjúkrahús. Því starfi hefur hann gegnt síðan.

Nú hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að leggja niður framkvæmdanefndina hans Alfreðs og er þar með búinn að koma Alfreð út úr málinu. En spurning er hvort að það þýði að heilbrigðisráðherra vilji gera eitthvað annað eða hvort hann ætlar að halda áfram á sömu leið en með nýjum formanni nýrrar framkvæmdanefndar?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er alveg samála þér Hanna Birna ég hef aldrei verið hrifin af þessu.

Jón Magnússon, 20.9.2007 kl. 15:02

2 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Kæru félagar, málið er mér skilt eins og þið vitið. Þetta orð "hátæknisjúkrahús" sem ég veit ekki enn þá hver fann upp er orðið verulegur ÞRÁNDUR í götu fyrir eðlilegri framþróun í heilbrigðiskerfinu. Við sem vinnum á Landspítalanum þolum ekki þetta orð. Ástæðan er einföld. Landspítalinn hefur verið hátæknisjúkrahús frá 1930 þegar íslenskar konur söfnuðu pening til að byggja sjúkrahús yfir Íslensku þjóðina því forystumenn þjóðfélagsins í þá daga höfðu ekki dug í sér til að gera það.

Ég vona að íslenskar konur þurfi ekki að endurtaka sín dáð á nýjan leik.

Frá 1930 hefur verið boðið upp á þá bestu tækni sem völ er á og verður þannig áfram. Því er þetta orðskrípi hrein vitleysa, því eðli Landspítalans breytist ekkert núna, hann er, hefur verið og mun vera vel tækjum búinn.

Ástæðan fyrir nýbyggingunni er allt önnur. Ég vil benda ykkur strax á að stór hluti af nýbyggingunni sem þið virðið fyrir ykkur fer undir Háskólastarfsemi. Þar að auki erum við að sameina tvö sjúkrahús.

Ástæðan er fyrst og fremst þrengsli, gamaldags fyrirkomulag, helgað af sífelldum bráðabirgðaviðbyggingum.

Þrengsli sem hamla og þrengja mjög að öllum starfsmönnum. Sjúklingarnir líða einnig. Tökum einfalt dæmi. 4-6 sjúklingar eru saman á stofu og nota sama salernið. Einn sýkist. Sökum þrengsla þá sýkist hluti af hinum. Bara við það að fá nýtt sjúkrahús þar sem hver hefur sína salernisaðstöðu og þar með fækkar sýkingum mun greiða upp nýja sjúkrahúsið með tíð og tíma.

Að lokum, sumir sem sýkjast af spítalasýkingum vegna þrengsla á gamla Landspítalanum greiða það háu verð. Sumir eru öryrkjar fyrir lífstíð og aðrir deyja fyrir aldur fram.

Því er þetta mál DAUÐANS ALVARA, og ég bið ykkur að umgangast það sem slíkt. 

Gunnar Skúli Ármannsson, 20.9.2007 kl. 18:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 14
  • Sl. sólarhring: 74
  • Sl. viku: 867
  • Frá upphafi: 2291633

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 766
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband