Leita í fréttum mbl.is

Fyrirtæki Haraldar Böðvarssonar á betra skilið.

Það eru fá útgerðarfyrirtæki í landinu sem eiga jafn farsælan feril og útgerðarfélag Haraldar Böðvarssonar á Akranesi. Heila öld hefur þetta fyrirtæki verið einn af helstu burðarásunum í atvinnulífi á Akranesi. Stundum var svo komið að Akranes hefði ekki náð fótfestu sem þéttbýlisstaður hefði þeirra athafnamanna sem byggðu upp fyrirtækið Haraldur Böðvarsson ekki notið við.

En nú er öldin önnur og kvótakerfið hefur leikið sjávarútveginn grátt hvort sem menn vilja viðurkenna það eða ekki. Í einu vetvangi er fótunum kippt undan því fólk sem sumt hefur unnið alla sína starfsævi hjá Haraldi Böðvarssyni og síðan HB Granda.  Mér er sagt að starfsmenn á Akranesi séu felstir bornir og barnfæddir íslendingar en þeir sem vinna hjá HB Granda í Reykjavík séu allt að 80 prósent innflytjendur eða fólk sem er komið til lengri dvalar erlendis frá.

Ég átta mig ekki alveg á því miðað við þá stefnumörkun sem Faxaflóahafnir hafa kynnt að það sé mikið samræmi í því sem þar er boðað og stefnu forráðamanna HB


mbl.is Svartur dagur í sögu Akraness
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hverjum er þetta kvótakerfi að koma til góða?  Ekki eru það sjómenn og fiskvinnslufólk og ekki eru það útgerðarfyrirtækin.  Samt ver sjávarútvegsráðherra vitleysuna.  Er þetta all komið á eina hendi, eða hvað?

Jón Steinar Ragnarsson, 29.1.2008 kl. 00:18

2 identicon

Kvótinn er á leið úr landi viðskiftaráðherra hefur skipað nefnd sem á ef þess er nokkur kostur að skila áliti fyrir vorir þá hvernig best er að gera erlendum fjárfestum kost á að eignast útgerð ásamt veiðiheimildum(kvóta) á Íslandi. Úrdráttur úr frétt sem birtist fyrst í mbl.is þann 29.01.2008 08:00Bankar hvattir til að fara úr landi

,,Lánshæfismatsfyrirtækið Moody´s hvetur íslenska banka til að flytja höfuðstöðvar sínar úr landi til að draga úr fjármálaáhættu íslenska ríkisins. Forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings segir að með því myndi íslenska ríkið verða af tugum milljarða króna í skatttekjur. Brýnt sé að bankarnir fái að gera upp í evrum svo þeir hrekist ekki úr landi.''

Jón þú ert löglærður maður hvað segir þú mér eða okkur sem hér lesa ef það gengi eftir að bankarnir yfirgæfu landið gætu þá bankarnir gengið á veðið sitt í Íslenskri útgerð og þá með veiðiheimildunum sem þeim fylgja á nauðungaruppboði ef til  þess kæmi því jú erlendir aðilar mega ekki eiga hér með beinum hætti í Íslenskri útgerð

Kveðja,

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

Baldvin Nielsen (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 08:55

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Sammála þér Jón um að hlúa eigi betur útgerð á Akranesi. En hvað gerðist þegar HBGranda voru settar skorður af Birni Inga að flytja bolfiskvinnslu sína á Skagann? Auðvitað átti HBGrandi að stofna dótturfélag um fasteignir sínar í Reykjavík með það að markmiði að nýta þær á annan hátt en fiskvinnsluhús eða rífa og byggja aðra óskylda starfsemi. En Björn Ingi reyndist sem formaður Hafnarstjórnar Reykjavíkur hið versta ljón á að það gæti orðið.

Við þurfum að líta heildstætt á þessi mál og forðast að gera flókin mál einföld. Það þarf að finna leið með víðsýni og hagkvæmni.

Kveðja

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 29.1.2008 kl. 10:00

4 identicon

Já margt af þessu fólki sem þarna vinnur hefur unnið þar alla ævina, margar konur sem komnar eru um og yfir fimmtugt og margir karlar sem þekkja enga aðra vinnu. Hvar á þetta fólk að fá vinnu? Hvernig er það með þá stjórnmálamenn sem styðja LÍÚ er þaim skít sama um þetta fólk bara ef kvótakóngurinn fær sínu fram? Mér er einnig spurn um það hvort við búum ekki í samfélagi? Eða er bara hver fyrir sig og það í lagi að troða á öðrum ef maður græðir á því? Frjálshyggjan er komin allt of langt, við eigum að segja hingað og ekki lengra. Fólk í fyrirrúmi.

Valsól (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 10:57

5 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Sum þeirra sem nú á að missa vinnuna hjá HB hefur starfað þar í áratugi og munu trauðla fá vinnu annars staðar. Þarna eru margar konur. Sómafólk sem hefur skilað þjóðarbúinu og Akranesbæ og samfélaginu hér á Skipaskaga ótrúlegum verðmætum gegnum tíðina. Nokkur þeirra unnu þarna þegar ég starfaði hjá HB fyrir um aldarfjórðungi síðan. Að leggja starfsemina niður eins og stjórnendur HB Granda hafa verið að gera síðustu misseri er ekkert annað en atlaga að bæjarfélaginu og grunnstoðum þess - stríðsyfirlýsing.

Mælirinn er löngu orðinn fullur þegar þetta bölvaða fiskveiðistjórnunarkerfi, gróðapungarnir og peningafíklarnir bak við það eru annars vegar.

Sjá færslu mína "Þegar varnaðarorð verða veruleiki"

Magnús Þór Hafsteinsson, 29.1.2008 kl. 11:32

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þeim er að takast að láta Vestfjörðum blæða út, nú eru þeir byrjaðir á vesturandi, norðvesturland hefur ekki farið varhluta af þessum vörgum.  Hve lengi ætla landsmenn að láta þessa ræningja lafa á  þjóðareigninni áður en við hristum þetta af okkur og látum til skarar skríða.  Menn hljóta að eiga rétt á að verja líf sitt og ævistarf.  Það er komin tími til að segja hingað og ekki lengra.  Burt með það fólk sem ekki skilur landsins söng. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2008 kl. 11:33

7 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Það er alveg rétt að Vestfjörðum er að blæða út. Ég spái hruni í byggð þar á næstu misserum. Fiskveiðistjórnunarkerfið er ekki að skila neinum árangri, þorskstofninn er í frjálsu falli og ýsan sömuleiðis á sama tíma og almenn efnahagskreppa er að skella á í þjóðfélaginu. Sjálfstæðisflokkurinn ver fiskveiðistjórnunarvitleysuna með kjafti og klóm og Samfylkingin situr hjá búin að samþykkja ruglið. Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra og Össur Skarphéðinsson byggðamálaráðherra eru staðráðnir í því að mölva þessar byggðir niður.

Báðir samþykkja síðustu atlöguna sem er að setja sjóstangveiðitrillur í kvóta, en það var atvinnuvegur sem Vestfirðingar og fleiri bundu vonir við.

Heyrðuð þið í Össuri Arabíufara í hádegisfréttum RUV rétt í þessu? Honum finnst bara í þokkalegu lagi að sjávarútvegur sé að leggjast af á Akranesi og kvótinn sem tilheyrði HB þaðan farinn - ekki út á land - heldur í kjördæmi Össurar Reykjavík Norður. Þingmenn Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi með Skagamanninn Guðbjart Hannesson í fararbroddi hljóta að vera sammála Össuri. Eða hvað? 

Magnús Þór Hafsteinsson, 29.1.2008 kl. 12:40

8 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Saga H.B.og co er ekki eigöngu bundin við Akranes.Haraldur Böðvarsson stofnaði vissulega sína útgerð á Akranesi í upphafi en flutti hana síðan til Sangerðis þar sem hann rak hana um árabil.Síðan fór hann aftur upp á Skaga.En sagan endurtekur sig 1992-1993 kaupir H.B.og co allar eignir Miðness h.f í Sandgerði, með uppistöðuna af kvótanum í bænum.En þeir létu sér það ekki nægja heldur héldu áfram að kaupa kvóta frá Sangerði.Fyrst höfðu Skagamenn uppi stór orð um að þeir yrðu áfram með vinnslu í Sandgerði þótt þeir færu með kvótann, þúsundir tonna upp á Skaga og tvo togara og þrjá báta.Þeir burðuðust í fyrstu með smá vinnslu í loðnuþurkun í Sandgerði, en ekki leið langur tími þar til þeir voru horfnir með öllu og höfnin sat eftir með skuldir.Ég vorkenni þér ekki sem Skagamanni Magnús Þór, frekar en ég vorkenni okkur Sandgerðingum.Sá sem vorkennir sjálfum sér er aumingi.

Sigurgeir Jónsson, 29.1.2008 kl. 15:33

9 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Sjóstangveiði útlendinga er ekki og hefur ekki verið bundin sérataklega við Vestfirði, sjóstangveiði úlendinga var byrjuð í Sandgerði löngu áður en hún byrjaði á Vestfjörðum.Norðlensku firðirnir og þeir austfirsku eru ekki síður góðir til sjóstangveiði en þeir Vestfirsku.Engin ástæða er til þess að vera að gefa forríkum Þjóðverjum eitt né neitt.Þeir gefa engum neitt sjálfir.Við verðum að borga allt fullu verði þegar við komum til Þýskalands.Ég hef að minnsta kosti ekki fengi neitt gefins þar.

Sigurgeir Jónsson, 29.1.2008 kl. 16:16

10 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Því miður er ég hræddur um að það sé búið að gera Vestfirðinga að vesalingum með því að vera stanslaust að vorkenna þeim. Þeir eru farnir að trúa því sjálfir að þeir geti ekki neitt.Ég vona að Skagamenn standi af sér vorkunnsemina.Þeir eiga betra skilið en að missa trúna á sjálfum sér.

Sigurgeir Jónsson, 29.1.2008 kl. 16:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 43
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 1704
  • Frá upphafi: 2291594

Annað

  • Innlit í dag: 40
  • Innlit sl. viku: 1530
  • Gestir í dag: 37
  • IP-tölur í dag: 36

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband