Leita í fréttum mbl.is

Það verður að endurskoða lögin.

Reykingar eru heilsuspillandi og stórhættulegar. Það er öllum ljóst ekki síst þeim sem reykja en þau sem það gera hafa kosið áhættuna. Að sjálfsögðu eiga þau að hafa möguleika á að reykja innan dyra t.d. á skemmtistöðum eða krám miðað við ákveðin skilyrði.  Þrátt fyrri að ég sé eindreginn andstæðingur reykinga þá tel ég að of langt hafi verið gengið með fortakslausu reykingabanni. Við verðum að finna eitthvað meðalhóf. Spurningin er hvað það meðalhóf á að vera. Fortakslaus bönn féalgsfræðistjórnmálamanna  og sósíalista sem sett eru í lög eru yfirleitt vond lagaákvæði.

Það verður að breyta lögunum hvað varðar fortakslaust reykingabann til þess að ekki sé gengið nær einstaklingsfrelsinu en brýna nauðsyn ber til.


mbl.is Leyfa reykingar í mótmælaskyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alexander Kristófer Gústafsson

Flott að þú stður að þetta sé breytt

Alexander Kristófer Gústafsson, 31.1.2008 kl. 17:19

2 identicon

Það er háheimspekilegt hvenær og  hvort yfirvöld þurfa að hafa vit fyrir almenningi. Þetta er jú kennt í lögfræði.

Ég var reyndar undrandi hversu liðlega lögin runnu í gegnum þingið. Lausnin finnst í meðalhófinu. Geri ráð  fyrir að þú sért með frumvarp í smíðum. Um það gæti orðið fjörleg umræða við Austurvöll.

Sýnist miðað við núverandi stöðu að það verði hæstiréttur sem búi til réttarheimildina. Nema þú verðir á undan.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 17:42

3 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Að mörgu leiti sammála þér Jón. Skammir og forsmán eru aðalmeðferðaúrræði nútímans við reykingum og offitu. Áfengissjúklingar hafa þó smá skjól og mögulega meðferð. Reykingar og offita drepa. Því væri gott skref að sjá til þess að "lyf" við fráhvarfi reykinga yrði selt í lausasölu og að þrýsta verðinu niður-ekki bara banna fólki að reykja.

Gunnar Skúli Ármannsson, 31.1.2008 kl. 18:10

4 Smámynd: Vilborg Eggertsdóttir

~ okurlánastarfsemi og óendanlegar skattaálögur hafa haft í för með sér: heilsuleysi, andlegt og líkamlegt niðurbrot og sjálfsvíg, svo eitthvað sé nefnt.

- svo hvað drepur?

Því get ég ekki annað en bent á þá augljósu tvöfeldni sem - hin föðurlega umhyggja stjórnvalda - þykist vera hafa fyrir sauðsvörtum almúganum.

Power to the people!

Vilborg Eggertsdóttir, 31.1.2008 kl. 18:34

5 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Ríkið sjálft er lang umsvifamesti fíkniefna- og eiturlyfjasali landsins (tóbak er tvímælalaust meðal ógeðslegustu eiturlyfja) og þénar feitt á öllu saman - sem kunnugt er. Nú, hræsni og tvöfeldni eru síðan pottþéttar leiðir til að rústa eigin trúverðugleika. Mynduð þið kannski vilja sjá kókaínbaróna í Reykjavík semja lagafrumvarp um meðferð kókaíns?

Baldur Fjölnisson, 31.1.2008 kl. 18:41

6 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Þannig að það er hlegið að þessum hræsnisfulla ruglnada og hann er hunsaður. Þannig grefur kerfið sjálft undan undan eigin  trúverðugleika og það er algjörlega meðvituð stefna eins og hver maður sér. Amen.

Baldur Fjölnisson, 31.1.2008 kl. 23:30

7 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Einstaklingur eins og þú og ég, Jón, eigum kröfu á því að við fáum að ráða því hvort reykt sé ofan í okkur. Hins vegar er ég frekar hlynntur svarinu "Já, ef..." en "nei" þegar sett eru lög. Ef hægt er að finna ráð til þess að reykingafólk fái afdrep til reykinga án þess að reykurinn komist út í almenninginn þá styð ég það.

Á sumum stöðum er þetta víst ekki hægt, segja eigendurnir, eða þá að þeir tíma ekki að eyða í það miklum fjármunum og minnka með því annað rými. Þá verður bara að hafa það.

Og mér finnst fráleitt að Alþingi eða einstakar stofnanir fái að gera það sem veitingastaðirnar mega ekki. En kannski er betur um búið í húsnæði Alþingis til þess að koma í veg fyrir að reykurinn berist út fyrir reykherbergið. 

Það veist þú auðvitað betur sem alþingismaður og ég treysti á þig og þingmenn í öðrum flokkum að bregðast skjótt við og setja lög sem þjóna jafnt reykingafólki og þeim sem ekki reykja.

Svarið sé: "Já, ef...." og síðan koma skilyrðin sem tryggja að aldrei aftur þurfi starfsfólk og gestir veitingastaða að vera þvingað til að anda ofan í sig heilsuspillandi reyk.  

Ómar Ragnarsson, 31.1.2008 kl. 23:45

8 identicon

Hjartanlega sammála þér Jón Magnússon í öllum atriðum, líka hversu óæskilegar reykingar eru, en það er allt annað mál.    Fortakalaust bann sem þetta á ekki heima í ríki þar sem flestir (það kjósa jú alltaf +10% VG eða álíka fyrirbrigði) eru hlynntir því að mega lifa lífinu sínu án afskipta misvitra pólitíkusa eða embættismanna.   

Meðalhóf verður að finna hér, þannig að reykingamenn geti reykt innandyra án þess að skaða aðra.   Að öðrum kosti endar þetta með að fólk verður að leita sér skjóls frá heimskum yfirvöldum, t.d. með því að stofna einkaklúbba, eins og vinsælt var í Bretlandi, þegar pöbbar máttu aðeins vera opnir til kl. 23:00.   (Life time membership kostaði gjarnan 5 pund, nema ef um flotta "exclusive" klúbba var að ræða, eins og t.d. þennan í Kópavoginum, þar sem menn geta reykt sína Havana vindla í friði í góðum félagsskap.).

Burtu með þessi ólög og önnur af svipuðum meiði!!! 

Sigurður Jónsson (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 02:55

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er sammála því að hér þarf að finna manneskjulegri lausn á þessu vandamáli. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.2.2008 kl. 10:13

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Það reyndi lítið sem ekkert á reykingabannið í sumar - þegar það var ekki verra að sitja úti en inni, en þegar fór að hausta og harðna á dalnum kom annað hljóð í skrokkinn. Þar sem loftræsting og húsnæði leyfir ætti að vera í lagi að bjóða upp á aðstöðu fyrir reykingarfólk, - en það er eflaust ekki hægt allsstaðar.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 1.2.2008 kl. 13:13

11 Smámynd: Ólafur Als

Hér í Danmörku fór löggjafinn mildari leið en annars staðar. Eigendum veitinga- og skemmtistaða var leyft að setja upp n.k. reykháfa eða reykklefa sem reykingamenn geta notað. Eins og gefur að skilja eru þessir reykháfar vel loftræstir og hefur orðið til þess að reykingafólk hefur getað leyft sér að vera innan um annað fólk og öfugt. Krár innan við 40 m2 að stærð þurftu ekki að gangast inn á reykingabannið.

Ólafur Als, 1.2.2008 kl. 15:12

12 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þótt eitthvað kunni að vera að hægt að læra af Dönum ber hins að gæta að engin Norðurlandþjóð reykir eins mikið og þar fer sjálf drottningin fremst í flokki.

Synd, því að mér er ekki sama um Margréti. Þegar mér voru nokkurra ára gömlum sögð ævintýrin af syni karls og kerlingar í koti og flaggað var fyrir kónginum mínum á afmælisdegi hans, hélt ég að þegar ég yrði stór myndi ég kannski geta gengið að eiga jafnöldru mína, krónprinsessuna á Íslandi.

Svona gat nú barnshugurinn ruglast af ævintýrunum hér í gamla daga.

Ómar Ragnarsson, 1.2.2008 kl. 23:09

13 identicon

Vitið þið að reykingarbannlögin voru samin af öfgvamönnum og voru samþykkt af Alþingi óbreitt.

t.d. foreldrar mega ekki reykja inn á heimili ef börn ingri enn 18 ára eru á heimilinu. Ekki orð um reykingar barna heima hjá sér.

Sigurður P. Þorleifsson (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 481
  • Sl. sólarhring: 678
  • Sl. viku: 2867
  • Frá upphafi: 2294418

Annað

  • Innlit í dag: 446
  • Innlit sl. viku: 2613
  • Gestir í dag: 430
  • IP-tölur í dag: 418

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband