Leita í fréttum mbl.is

Barátta gegn kynþáttafordómum.

Dúettinn Geir og Bubbi stóðu fyrir tónleikum gegn rasisma í fyrrakvöld. Þeir sem vildu leggja málstaðnum lið mættu á staðinn en margur var fjarverandi vegna annarra verkefna eins og gengur. Einn af þeim sem mættu var Viðar Guðjohnsen formaður ungliðahreyfingar Frjálslynda flokksins. Hann vildi með því ljá baráttunni gegn rasisma lið. Svo virðist sem sumir sem telja sig eiga einkarétt á málefninu hafi ekki verið hrifnir af því að Viðar skyldi mæta þarna og því fólki finnst greinilega nauðsynlegt að búa sér til óvini án nokkurrar ástæðu.

Frjálslyndi flokkurinn hefur aldrei alið á kynþáttafordómum eða stutt slíkt. Við höfum krafist þess að það yrði gætt að því að þau takmörk yrðu sett við innflutningi fólks að geta íslenska velferðarkerfisins annaði að búa öllum borgurum þessa lands fullnægjandi lífskjör. Við höfum bent á að við höfum fyrst og fremst skyldum að gegna við þá sem eru í landinu en ekki þá sem hugsanlega ætla að koma hingað. Þess vegna er það frumskylda okkar að gæta að jöfnum hagsmunum þeirra sem hér búa.

Við Frjálslynd vöruðum við því að frjálst flæði útlendinga til landsins gæti leitt til aukinna fordóma í landinu, en Bubbi hélt tónleikana sína vegna þess að hann telur að um aukna fordóma sé að ræða í garð útlendinga. Við bentum á að nauðsynlegt væri að þeir sem hingað flyttust ættu þess kost að aðlagast íslensku samfélagi sem fyrst m.a. með því að geta lært íslensku og um íslenska þjóðfélagið. Hefði verið farið að tillögum okkar Frjálslyndra hefði ekki orðið tilefni til þess að ástardúettinn Geir og Bubbi hefðu haldið tónleika sem þessa.

Viðar Guðjohnsen á heiður skilinn fyrir að láta ekki fordóma í sinn garð varna sér í baráttunni fyrir góðum málsstað. 

Bubbi Morthens og ýmsir fleiri ættu að gaumgæfa það að ekki veldur sá sem varar við.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Ég tek undir þetta með þér Jón. Mér fannst það líka afar óþægilegt að heyra Bubba okkar opinbera fordóma á sviðinu sem var sett upp GEGN FORDÓMUM, er hann hélt því fram að enginn tæki mark á Frjálslyndum. Það er nokkuð alvarlegur hroki og hleypidómar.

Guðbjörn Jónsson, 22.2.2008 kl. 16:57

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Auðvitað er þetta rangt hjá Bubba.

Hvað eruð þið mörg?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 22.2.2008 kl. 17:42

3 identicon

Þú hittir naglan á höfuðið í þessum pistli þínum hér eins og svo oft áður. Mig langar að bæta við þetta að orðið FORDÓMAR er eitthvað það ofnotaðasta orð á íslenskri tungu í dag. Fordómar er eitthvað svona týsku orð sem slengt er fram þegar mælandinn hyggst slá sér til riddara sem þenkjandi einstaklingi. Í þá ormagryfju hefur Bubbi blessaður fallið enn eina ferðina. Sá popúlismi sem Bubbi er að boða á ekkert skylt við það að vilja taka heilstætt af ábyrgð á málefnum innflytjenda til íslands. Þvert á móti að þá skýtur hann sig í fótinn og afhjúpar eigin fáfræði, hroka og bullandi FORDÓMA sem hann sjálfur er rýghaldinn.

Bubbi: það eru ekki FORDÓMAR þegar rætt er málefnalega þar sem mælandinn hefur haldbær rök fyrir máli sínu.

Bubbi: það eru hinsvegar FORDÓMAR að vera með upphrópanir án þess að kynna sér afstöðu manna og gera öðrum upp skoðanir sem þeir alls ekki hafa.

Ég leyfi mér að lýsa því hér með yfir að Bubbi er einhver FORDÓMAfyllsti maður sem um stræti borgarinnar reikar, hann virðist ekki bera neina ábyrgð á því sem hann segir!

Viðar ætti í raun að stefna Bubba fyrir ærumeiðingar en Bubbi er einmitt mjög fróður um slík lög. 

Kv,

Umhugsun. 

Umhugsun (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 19:07

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Jón. Flott grein hjá þér, einmitt það sem ég ætlaði að fara að blogga um :) "Umhugsun" er búin að svara þessu mjög vel og það er mín skoðun að Bubbi sé nokkuð hrokafullur og mér hefur oft fundist hann komast ansi langt á hugsuninni " Æ þetta er bara Bubbi" Það er samt skemmtilegt að hann "fellur" ( hér er ekki átt við í dóp eða drykkju) um eigin fordóma á sama tíma og hann er að skapa sér ímynd sem baráttumaður útlendinga gegn fordómum og flaggar forsætisráðherra í því máli og lýsir því síðan yfir með miklu yfirlæti þess sem  best veit að Geir geti sungið í alvöru..hahahaha.  Hver vissi það ekki? Hver er bestwisser Íslands? Hver tekur mark á Bubba?

Kolbrún Stefánsdóttir, 22.2.2008 kl. 20:07

5 Smámynd: Halla Rut

"Hefði verið farið að tillögum okkar Frjálslyndra hefði ekki orðið tilefni til þess að ástardúettinn Geir og Bubbi hefðu haldið tónleika sem þessa."

Orða sanni hjá þér Jón. 

Halla Rut , 22.2.2008 kl. 22:53

6 identicon

Bubbi er að reyna slá einhverjar keilur hjá þjóðinni. Greyið maðurinn veit ekki hvað hann er hrikalega leiðinlegur í hroka sínum. Hann er svona eini maðurinn í partýinu sem setur lappirnar upp á borð og talar stórmannlega.

Valsól (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 23:59

7 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

Takk fyrir innleggið Jón.  Bubbi er þekktur fyrir minnihlutahópaaðstoðarsyndromið sitt. Hann má mín vegna halda konserta út um allt en gott væri held ég fyrir hann og alla sem að málum koma að yfirlýsingar kóngsins væru einstaka sinnum teknar í kjaftvikið frekar en kokgleyptar. Þetta "hjálpum"  þeim dæmi er alþekkt í poppbransanum, ég hef sjáfur tekið þátt í því en finn mig í seinni tíð leggja góðum málum frekar lið með því að greiða heimsenda aðstoðargíróseðla án þess að auglýsa það sérstaklega. Rasistastipillinn sem reynt hefur verið að klína á ykkur í Frjálslyndum er að mínu áliti heimskulegt fjas. Það eina sem ég hef lesið út úr tillögum ykkar varðandi innflytjendur er að hafa hlutina í lagi, til góða fyrir okkur og þá sem setjast að hjá okkur.

Pálmi Gunnarsson, 23.2.2008 kl. 00:14

8 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Hjartanlega sammála þér Pálmi. Reyndar hefur mér aldrei fundist Bubbi neinn KÓNGUR eða Bjöggi Halldórs Elvis Presley Íslands.  Samt nokkuð góðir báðir tveir,hver á sínu sviði, þeir hafa þroskast vel með musikinni. 

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 23.2.2008 kl. 00:59

9 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Það er eins og sumt fólk sem annars gegur sig út fyrir að vera samfélagslega þenkjandi og hafa vit á þjóðfélaginu, átti sig alls ekki á því að þegar hlutfall útlendinga er skyndilega á nokkrum mánuðum aukið úr 2- 3% af þjóðarheildinni í um 7% þá hlýtur að skapast spenna í þjóðfélaginu.

Tala nú ekki um þegar þetta er gert án þess í raun að ræða þetta með nokkrum hætti við þá þjóð sem fyrir er í landinu, eða tryggja að sómasamlega sé tekið á móti þeim sem hingað koma.

Það er bara staðreynd að verulega mikið vantar á að hlutirnir séu í lagi. Af hverju er ekki löngu búið að halda tónleika til að lýsa fyrirlitningu á þeirri meðferð sem margir atvinnurekendur búa útlendingum með því að borga þeim skítalaun og láta þá búa við aðstæður sem eru óásættanlegar?

Frjálslyndi flokkurinn hefur aldrei átt aðild að slíkri illri meðferð á útlendingum. Þeir sem það stunda kjósa og styðja aðra flokka en Frjálsynda. Sennilega eru flestir þeirra stuðningsmenn flokks Bubba og Geirs.

Magnús Þór Hafsteinsson, 23.2.2008 kl. 08:32

10 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Sæll Jón.  Ég er ekki stuðningsmanneskja ykkar í Frjálslindaflokknum,en hef aldrei álitið að þið predikið fordóma gegn útlendingum.Þetta er einfaldlega mál sem þarf að taka á,til þess að við getum boðið þetta fólk velkomið og látið því líða vel og hjálpa þeim að aðlagast.

Þó að við bjóðum útlendinga velkomin til landsins þá má innstreymið ekki vera galopið,það þarf að athuga vel t.d. sakaskrá viðkomandi.

Kveðja frá Maríu, sem er gift útlendingi.

María Anna P Kristjánsdóttir, 23.2.2008 kl. 09:55

11 Smámynd: Landfari

Ég missti nú af þessum tónleikum. Hvað var það sem Bubbi sagði?

Landfari, 23.2.2008 kl. 11:30

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Fínn pistill og relgulega góð svör líka.  Ég er innilega sammála því sem hér hefur komið fram.  Og ég þekki töluvert af fólki af erlendu bergi brotið, og áhyggjurnar eru þær sömu hjá þeim, því það hefur tekið á sig skatta og skyldur eins og við, og hefur áhyggjur af því að það verði frá þeim tekið, ef atvinnurekendur fara í svona miklum mæli að flytja inn ódýrt vinnuafl, svokallað.  Það er ekki erlendu verkamönnunum að kenna, heldur græðgi þeirra sem notfæra sér ástandið og það vald sem stjórnvöld hafa fært þeim.  Og ég er viss um að það verkafólk sem hingað kemur til vinnu skamman tíma vill að það sé eftirlit með því að það njóti sömu kjara og réttinda og aðrir.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.2.2008 kl. 12:00

13 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Fordómar gegn fólki vegna stjórnmálaskoðana er því miður mjög algegnt.En því miður er það ekki rétt að fordómar þekkist ekki hjá fólki í Frjálslyndaflokknum.Einstaklingar innan Frjálslyndaflokksins og jafnvel flokkurinn sjálfur er mjög fordómafullur gagnvart fólki sem að hyllist aflahlutdeildarkerfi í fiskveiðum.Fordómarnir eru slíkir að það jaðrar í sumum tilfellum við að vera sjúklegt.Þetta á reyndar við um fólk í fleiri flokkum ,en er mest áberandi í Fjálslyndaflokknum og háir flokknum.

Sigurgeir Jónsson, 23.2.2008 kl. 23:24

14 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Smitberar, glæpamenn, erlend glæpagengi, "konur geti gengið óhultar um götur", "vegið að stoðum velferðakerfisins", "vegið að kjörum launafólks". Þetta eru allt orð, sem þið í Fjálslynda flokknum hafið viðhaft í umærðu um innflytjendur. Svo þykist þið ekki hafa alið á fordómum í garð innflytjenda. Það eru einmitt þessi orð ykkar, sem hafa átt drjúgan þátt í að auka fordóma í garð innflytjenda.

Þú, Jón Magnússon hefur einnig verið duglegur við að hafa eftir ónafngreindum mönnum í lögreglunni um hitt og þetta neikvætt um útlendigna í viðtölum. Það er einmitt mjög góð leið til að ala á fordómum. Einnig man ég eftir viðtali við þig stuttu eftir að upp komst um nokkra Litháa, sem voru teknir fyrir BÚÐAHNUPL þar, sem þú talaðir um Litháa, sam hafi verið teknir fyrir INNBROT. Það er mikill munur á búðahnupli og innbroti.

Það eina, sem hin mikla aukning innflytjenda hér á landi hefur reynt á er umburðalyndi okkar Íslendinga og geta stjórnvalda og stéttafélaga til að hafa eftirlit með atvinnurekendum. Það eru vandamálin, sem taka þarf á en ekki að koma í veg fyrir að hægt sé að manna störf, sem þarf að manna hér á landi.

Tillögur ykkar í Frjálslynda flokknum stangast í veigamiklum atriðum við EES samningin án þess þó að gefa upp hvort þið viljið segja þeim samningi upp. Það fer því fjarri að þið í Frjálslynda flokknum hafið talað um þetta með málefnalegri hætti en aðrir.

Hvernig væri að fá skýrt svar við því frá ykkur hvorft þið viljið segja upp EES samningum eða ekki. Að fengnu því svari getum við rætt kosti þess og galla að segja upp EES samningum eða rætt tillögur í málefnum innflytjenda, sem heimilar eru samkvæmt þeim samningi eftir því hvert svarið verður við þessari spurningu.

Sigurður M Grétarsson, 24.2.2008 kl. 04:08

15 identicon

Sigurður þingmenn Frjálslynda flokksins tala ekki um EES samningin í þessu samhengi því það er engin hugur í þessu hjá þeim að breytta þessu ef þeir yrðu stjórntækir.

Frjálslyndi flokkurinn er að reyna að spila inn á óánægju fólks í þjóðfélaginu.

Frjálslyndi flokkurinn var í upphafi stofnaður til að afnema kvótakerfið og búa til nýtt fiskveiðakerfi í staðinn. 

Nú 9 árum seinna er ekki hægt að finna frumvarp til laga með greinagerð frá Frjálslynda flokknum sem er gegn kvótakerfinu og hvað á að taka við ef kvótakerfinu yrði í hel komið.

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 08:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 901
  • Sl. viku: 2399
  • Frá upphafi: 2293950

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 2180
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband