Leita í fréttum mbl.is

Clinton og Gore staðfestu ekki Kyoto.

Ég hlustaði á Gore flytja boðskap sinn og að vonum gerði hann það frábærlega með góðri hjástoð mynda á breiðtjaldi Háskólabíós. Al  Gore hefur raunar flutt þennan fyrirlestur með takmörkuðum málefnalegum  breytingum í tæp 7 ár þannig að það var að vonum að fyrirlesturinn væri frábær.  Málflutningurinn er raunar nokkuð einhæfur og áróðurskenndur eins og gengur og gerist hjá bandarískum stjórnmálamönnum og farandprédikurum.

Það dregur enginn í efa að hnattræn hlýnun hafi orðið á undanförnum árum. Menn greinir á hvað mikinn þátt maðurinn eigi í þeirri hnattrænu hlýnun og ég er einn af þeim sem dreg í efa að maðurinn hafi þar úrslitaáhrif. Samt sem áður er mikilvægt að fara að öllu með gát og leyfa náttúrunni að njóta vafans. Þess vegna þurfum við að bregðast við en þá er spurning um að bregðast við með skynsömum áhrifaríkum hætti. Það er hins vegar ekki ástæða til að bregðast við með þeim hætti sem kallar á mun verri lífskjör til langframa vegna aðgerða sem ekkert liggur fyrir um að muni skila sér í baráttu gegn hnattrænni hlýnun.

Kyoto bókunin hefur verið samþykkt af flestum ríkjum heims, en samt sem áður fara Kínverjar, Indverjar og Bandaríkjamenn sínu fram. Það er annars merkilegt að hugsa um það að Al Gore var varaforseti Bandaríkjanna þegar spurning kom upp um það hvort Bandaríkjamenn ættu að fullgilda Kyoto bókunina fyrir sitt leyti. Mér er ekki kunnugt um að hann sem varaforseti Bandaríkjanna á þeim tíma og síðar forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins hafi barist fyrir því að Bandaríkjamenn fullgiltu Kyoto.


mbl.is Þróun sem hægt er að stöðva
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ég fór ekki á fund Gora og hefði þurft áttfættan Sleipni til að koma mér á fund þessa hundingja. Nær allt sem hann segir er lygi og tilgangur hans er skammarlegur.

Sjálfsagt hefur runnið ljúft upp úr honum, en ætli ekki hefðu komið vöflur á hann ef einhver hefði spurt erfiðra spurninga, eins og þeirri: Hvers vegna hann prediki að veðurfar muni hlýna, þegar mælingar sýna kólnun ?

eða: Hvers vegna hann prediki að lífsandinn (CO2) valdi hlýnun, þegar engum hefur tekist að sýna fram á slík tengsl ?

Loftur Altice Þorsteinsson, 8.4.2008 kl. 13:01

2 identicon

Var það ekki aðallega af því að Repúlíkanar réðu báðum deildum þingsins og án þeirra gátu Clinton/Gore ekki samþykkt sáttmálann?

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 13:42

3 identicon

Óli Gneisti kemur með skýringuna. Bandaríkin, með Al Gore og Clinton i fararbroddi skrifuðu undir samkomulagið á sínum tíma, en síðan tókst ekki að staðfesta það í þinginu þar sem Repúlíkanar réðu ríkjum á þessum tíma. Bush dró síðan meira að segja undirskriftina líka til baka og neitaði að taka þátt í ferlinu.

Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 14:17

4 identicon

Ég efa það Jón að þú hafir nokkra forsendu til að draga í efa áhrif mannsins á hlýnun jarðar, og Loftur við skulum öll vona að þú haldir þig við námið og látir kennsluna alveg eiga sig.

Halldór (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 15:03

5 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Við bíðum spennt eftir að Halldór útskýri málið, en hann mun vera starfsmaður IPCC.

Hér er áhugaverð umræða í gangi:

Það liggur á að stöðva falsspár Gore

Loftur Altice Þorsteinsson, 8.4.2008 kl. 15:40

7 Smámynd: Baldur Fjölnisson

The United States (U.S.), although a signatory to the Kyoto Protocol, has neither ratified nor withdrawn from the Protocol. The signature alone is symbolic, as the Kyoto Protocol is non-binding on the United States unless ratified. The United States was, as of 2005, the largest single emitter of carbon dioxide from the burning of fossil fuels.[62]

On July 25, 1997, before the Kyoto Protocol was finalized (although it had been fully negotiated, and a penultimate draft was finished), the U.S. Senate unanimously passed by a 95–0 vote the Byrd-Hagel Resolution (S. Res. 98),[63][64] which stated the sense of the Senate was that the United States should not be a signatory to any protocol that did not include binding targets and timetables for developing as well as industrialized nations or "would result in serious harm to the economy of the United States". On November 12, 1998, Vice President Al Gore symbolically signed the protocol. Both Gore and Senator Joseph Lieberman indicated that the protocol would not be acted upon in the Senate until there was participation by the developing nations.[65] The Clinton Administration never submitted the protocol to the Senate for ratification.

http://en.wikipedia.org/wiki/Kyoto_Protocol#United_States

Baldur Fjölnisson, 8.4.2008 kl. 16:56

8 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Clinton, þáverandi forseti bandar. einflokksins, skrifaði sem sagt undir sáttmálann á sínum tíma, en það var bara til málamynda og í blekkingaskyni enda var sáttmálinn aldrei lagður fyrir bandar. þingið til staðfestingar og stóð aldrei til enda stuðningur við hann á þingi einflokksins alls enginn enda var honum hafnað 95-0 í öldungadeild einflokksins og það áður en hann leit dagsins ljós! Það er ekta gúmmístimplun. Bush, núverandi forseti einflokksins sagði síðan upp undirskrift fyrirrennara síns hinn 29. mars árið 2001, nokkrum mánuðum eftir hlægilega skrípasýningu einflokksins í sambandi við "kosningar" í þessu einflokkskerfi.

http://archives.cnn.com/2001/WORLD/europe/italy/03/29/environment.kyoto/index.html

Baldur Fjölnisson, 8.4.2008 kl. 18:32

9 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Hvernig þrautþjálfað sölumannalið bandaríska einflokksins hefur getað spilað með nytsama og trúgjarna sakleysingja hér á landi áratugum saman hefur mér verið gjörsamlega hulið og verður sjálfsagt lengi enn. Það altrúgjarnasta af þessum nytsömu sakleysingjum hefur smám saman gufað upp úr pólitík og snúið sér að því að útrýma trúverðugleika á jafnvel enn mikilvægari sviðum. Það er tímanna tákn og snýr að nýjum fræðigreinum sem gerviháskólar eiga víst enn eftir að uppgötva; það er geðhagfræðin og geðsjórnmálafræðin. Í guðs friði.

Baldur Fjölnisson, 8.4.2008 kl. 21:59

10 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Það er ágætt að skoða athafnasemina fra a-ö í þessu sambandi.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 9.4.2008 kl. 02:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 79
  • Sl. viku: 1663
  • Frá upphafi: 2291553

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1492
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband