Leita í fréttum mbl.is

Engir höfuðklútar, blæjur eða slæður í háskólum í Tyrklandi.

Á sama tíma og ýmis kristin Evrópuríki vandræðast með það hvort banna eigi tákn kvennakúgunar og ófrelsis, blæjur og slæður ákveður stjórnlagadómstóll Tyrklands að slíkur klæðnaður sé óheimill í háskólum landsins. Semsagt konum í Tyrklandi er bannað að bera þetta tákn kvennakúgunar.

Margir hafa haldið því fram að það væri óvirðing við Íslam að vera á móti slæðu- og blæjuburði kvenna. En það hefur ekkert með trúarbrögðin að gera. Þetta tákn kvennakúgunar var tekið upp í Íslam eftir að karlarnir stálu trúarbrögðunum og fóru að túlka þau sér í hag. Blæjuburður kvenna er gamall persneskur siður.

Íslensku stjórnmálakonurnar sem hafa sett upp blæjur og slæður á ferðum sínum til Afghanistan og Saudi Arabíu svo dæmi séu nefnd síðast utanríkisráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ættu að hugleiða sjónarmið Tyrkneska stjórnarskrárdómstólsins áður en þær láta sér til hugar koma að sveipa þessu tákni kvennakúgunar um sig.

Það sem mér hefur komið mest á óvart í þessu er að ekkert skuli heyrast um þessi mál frá Femínistum eða Kvennréttindafélagi Íslands svo önnur dæmi séu tekin.


mbl.is Slæður brot á stjórnarskrá Tyrklands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Gott að heyra, og maður spyr sig oft hvað þeir sem kvaka hvað hæst í nafni pólítískrar réttsýnar gegn þeim rétti kvenna til þess að bera sig á súlustöðum virðast þegja þegar kemur að niðurrifi kvenréttinda í nafni fjölmenningarstefnu, en Tyrkland er reyndar fyrirmyndarland í trúmálum með stefnu Atatürk í fyrirrúmi.

Blöndun stjórnar og trúarbragða ber aldrei góðan ávöxt. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 5.6.2008 kl. 17:57

2 Smámynd: Jón Magnússon

Stefna Atatürk reyndist Tyrkjum vel og varð til þess að landið liðaðist ekki algjörlega í sundur og náði sér eftir hörmungar fyrri heimstyrjaldar og þjóðarmorð á Armenum sem má þó ekki minnast á í Tyrklandi. Það eru landráð. Annars merkilegt hvað margar þjóðir láta dómstóla hafa fyrir því að banna fólki að hafa söguskoðun.

Jón Magnússon, 5.6.2008 kl. 23:33

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já afar athyglisvert Jón.

Það er rétt að það heyrist lítið eða ekkert um þessi mál héðan.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 6.6.2008 kl. 00:06

4 identicon

Ég man ekki eftir neinum erlendum þjóðhöfðingjum, sem hafa klætt sig á Íslenska vísu við heimsóknir hér. En mörgum sem koma í sínum þjóðklæðum. Það finnst mér sjálfsagt.

En að Ingibjörg Sólrún skuli apa eftir öfga múslimum, bara af því að hún er að heimsækja þá er ömurlegt. Henni væri nær að klæðast Íslenskum búningi. Ef að það er ekki ásættanlegt, eigum við einfaldlega ekki brýnt erindi þangað.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 00:33

5 identicon

Hvernig skyldi standa á því að enginn gerði athugasemd við það að Inga Jóna Þórðardóttir skyldi hylja hár sitt með svartri slæðu þegar hún hitti páfa ásamt eiginmanni sínum Geir H Haarde síðasta haust. Það var í lagi að Geir væri berhöfða í viðurvist páfa enda karlmaður. Inga Jóna hefði auðvitað átt að klæðast íslenska þjóðbúningnum en ekki vera svartklædd frá hvirfli til ilja til þess að þóknast einhverjum karlfauski. Hjá strangtrúuðum kristnum kaþólikkum er síst minni kvennakúgun en hjá öfgamúslimum fyrir utan það að ekki er eitthvað samasem merki á milli þess að kona beri höfuðklút og að hún sé kúguð.

Guðlaug Björnsdóttir (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 01:06

6 identicon

Aldrei trúði ég því að sá stjórnmálaskörungur innan raða Sjálfstæðisflokksins sem gat sér frelsið án þess að sjá þann fjötra annars fót ætti eftir að heilla mig upp úr skónum með hugmynda- auðgi sinni eins og Pétur Blöndal alþingismaður gerði í viðtali hjá ljósvakamiðli fyrir örstuttu. Þar fór hann inn á þá merku hugmynd að það ætti að leita allra ráða til að fá fólk til að kaupa sparneytna bíla til að minnka megun í andrúmloftinu og til að draga úr bensín-og olíunotkun.Leið til að þetta mætti gerast var að fella niður tolla og aðflutningsgjöld sem sjálfkrafa leiddi til þess að nýjir bílar yrðu ódýrari en þeir sem eldri væru. Þá kæmi sá möguleiki að fólk gæti endurnýjað bíla sína og farið þá í neyslugrennri bíla og jepparnir gætu þá væntanlega ásamt sportkerrunum og eðalbílunum orðið að útflutningsvöru til annara landa.Þá kom annað atriði ekki síður athyglisvert að það væri löngu tímabært að leggja af þessa skriffinnsku og ónæði af borgun bifreiðaskatts tvisar á ári og það gjald beinfært inn á olíu-og bensínverðið. Hér tek ég ofan eins og bóndinn sem gat átt nóg eftir af ellilífeyrinum sem Pétri var svo hugleikinn fyrir einhverju síðan.Já, það er merkilegt þegar þvílíkur reiknihaus og svo víðsfjarri í pólitíkskum hugmyndum sínum frá mínu umhverfi geti fengið jafn góða hugmynd sem líka er gjaldeyrisvæn. 

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ 

B.N. (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 01:37

7 identicon

Þetta er alls ekki eingöngu múslimskur siður. Hann fannst í Gyðingdómi, Kristni og víðar.

Þeir sem koma fram fyrir Íslands hönd, fynnst mér eiga að vera þjóðlegir eða bara casual að öðrum kosti.

Jón, leifi mér að birta hér tengingu á síðu hógværra Múslima sem staðfestir að þeir líta einnig á þetta sem kúgun. Þarna fann ég t.d. loksins Múslima sem fordæma, og afneita öllum hryðjuverkum og öfgum í nafni þeirrar trúar.

http://pressthat.wordpress.com/2007/11/20/violation-of-human-rights-either-forcing-women-to-cover-their-hair-or-uncover-their-hair-is-headscarf-trick-or-threat/

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 01:47

8 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er alveg rétt Arnór. Megin hluti þeirra sem játa Íslam er fólk sem óttast Islamistana og er andvígt áherslum þeirra. Þess vegna er það hvorki fordómar né rasismi að berjast gegn öfgunum. Þakka þér fyrir að benda á þessar síður.

Sammála þér Ingunn.

Jón Magnússon, 6.6.2008 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 81
  • Sl. viku: 1661
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1490
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband